Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Side 15
DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986. 15 Hvað á að koma í stað kjamorkuvera? Þessi spuming er villandi, hún ætti að vera: „Hvemig öflum við nægrar orku á viðunandi og ömggan hátt?“ Þetta er spumingin, hún er óháð tilvem kjamorkuvera á sama hátt og hún er óháð tilveru vatnsorku- vera. Og þegar búið er að formúlera spuminguna verðum við að byija á að afskrifa núverandi orkuöflunar- aðferðir eins og þær leggja sig. Þær fullnægja ekki skilyrðum spumingariitnar. Ef þið viljið vita Þá er best að ég segi ykkur það. Við byrjum á því að þróa rafgeymi þeirra eiginleika að geta geymt eitt hundrað sinnum meiri orku en nú- tíma rafgeymar, hafi tíu sinnum lengri endingartíma og sé ekki þyngri né rúmmálsfrekari en nútima rafgeymar og sé að auki fastrar gerð- ar. Og þetta er hægt og ekki einu sinni óskaplega flókið. Menn þurfa aðeins að líta á skilyrðin og bera saman við þekkingu sína. Þetta er hægt að þróa. I staðinn fyrir að nota náttúr- lega spennu milli efiia eða efnahvörf búum við til tæki sem getur inni- haldið elektrónur á svipaðan hátt og bensíntankur bensín. Það er svo- lítið flókinn tankur en ekkert voðalega. Gott fyrir hagvöxt á jörðu Þegar slíkur geymir liggur fynr þá þrefaldast arðbæmi alls konar aðferða við að vinna orku úr náttúr- legum spennumun. Við setjum upp vindmyllur og sólarrafhlöður og virkjum hvem læk. Og auðvitað er um að ræða hrein orkuskipti án efn- amengunar, og um alllangan tíma mun vera hægt að nýta hvað sem er til orkugjafar. Það þýðir að við fáum hagvöxt á jörðu þar sem alls konar framkvæmdir bjóða upp á hagnað fyrir fólk. Síðan setjum við aðra þróun í gang. Það er að búa til flugtæki sem nýta sér eiginleika sem við höfum þekkt í 80 ár en ekki skilið hvemig er. Það er jafngildi hröðunar og af- stæðrar lengdarminnkunar. Það er að segja ef við hröðum hlut þá stytt- ist hann ef við styttum hlut og höfum sömu áhrif þá fáum við afstæða hröðun út. Við getum sýnt fram á þetta með ódýrri og einfaldri tilraun. Við fáum okkur tvo stálöxla, svona 20 m langa, og slípum endana á þeim eins fínt og tæknilega er mögulegt. Síðan notum við leysigeisla til þess að mæla lengdina á hvorum öxli um sig og höfum langt á milli þeirra. Síðan setjum við öxlana enda við enda og mælum lengd þeirra aftur. Og viti menn, þeir styttast. Síðan þarf mikið japl, fum og íúð- ur, nokkrar ráðstefnur og svo framvegis og þá kemur í ljós módel af eiginleikum efnisins í samvirkni og menn sjá að hægt er að ná valdi á því og þá er hægt að framkalla hröðun með alveg nýjum hætti. Það leiðir svo til þess, eftir mikla sam- keppni, slys og hetjudáðir að hægt verður að búa til flugtæki sem ekki þurfa loftsins með eða eldsneytis til að spúa til að geta flogið og geta flogið hátt og um tungl og plánetur. En því fylgir að hægt verður að virkja orkumun í himingeimnum og flytja hann til jarðar í geymum. Allt hreint, klárt og ferlega billegt. Tæknin er ekki vandinn Þetta er ekkert svakalegt mál tæknilega, en það er það félagslega. Það er nefnilega þannig á henni jörð að ríkisstjómir þykjast eiga þekk- ingu og hafa rétt til þess að þróa eyðingartækni til þess að mannkyn- ið geti lifað af. Þessar ríkisstjómir vita að almenningur er svo heimskur að fatta þetta ekki svo þróunin er látin fara fram í leyni þannig að fólk sé ekki að rífa kjaft'. Og þegar búið er að þróa enn eitt eyðingarvopnið þá má segja frá þvi því þá er of seint að fara að rífa kjaft. Sko, ríkisstjómir eiga þjóðir eins og annan fénað og þegar þessum fénaði fjölgar of mikið þá þykjast þeir þurfa að grisja í stofhinum og hafa svoldið stríð. Og þeir sem ekki vilja viðurkenna rétt ríkisstjóma til að eiga þekkinguna og vilja að þjóð- imar geri það opinberlega upp við sig hvemig á að fara með þekking- una em gerðir að ópersónum með leynilöggum og græjum. Þeir geta ekki liðið það að andskotans fénað- urinn standi upp og fari að rífa kjaft. Þá halda þeir nefnilega ekki á sameiginlegu viti þjóðarinnar lengur Þorsteinn Hákonarson, i landsnefnd Bandalags jafnaðarmanna. og það er hverri ríkisstjóm bráður bani ef það kemst upp. Og þá koma fleiri kjarnorku- ver Það er ekki búið að þróa þekking- una um samspil lengdar og hröðunar til gereyðingartækni ennþá svo þeir em famir að segja að nú verði vandi ef við höfum ekki kjamorkuver. ,Uá verðum við að skrúfa fyrir raf- magnið hjá ykkur, þið viljið það ekki. Þess vegna þurfum við kjam- orkuver.“ En ég er að segja ykkur tíðindi, gott fólk. Það em til aðrar leiðir en að vaða geislaryk upp í klof. En þá verðið þið að skilja að hagvöxtur er spuming um félagslega þróun en ekki tæknilega. Þá er að vinda sér í það. Þorsteinn Hákonarson ,,..Ég er að segja ykkur tíðindi, gott fólk. Það eru til aðrar leiðir en að vaða geisla- ryk upp í klof...“ Aðstoð án þróunar? Ásmundur Stefánsson, forseti Al- þýðusambands Islands, talar vafa- laust fyrir munn margra, þegar hann skrifar í ávarpi í Morgunblaðinu 1. maí að íslendingum beri að auka þróunaraðstoð við fátækar þjóðir í suðri. Hann gerir bersýnilega ráð fyrir því að vestræn ríki geti, með því að láta fé af hendi rakna til suð- rænna ríkja, stuðlað þar að þróun. Ég er hins vegar sannfærður um að ast í það að reka flugfélög með stórtapi eins og þeir gera undan- tekningarlítið? Hvað græða þegnar þeirra á því þegar þeir nota fé frá Vesturlöndum til þess að kaupa fyr- ir hergögn? Kemur það þegnum þeirra að einhveijum notum þegar þeir taka upp á því að reisa nýjar og veglegar höfuðborgir og önnur minnismerki um sjálfa sig? Stjómarherrar þróunarlandanna Kjallarinn „Ef hinar fátæku þjóðir í suðri stefna að þróun geta þær farið sömu leið og íslend- ingar á öndverðri öldinni. Þær geta útvegað sér fjármagn á frjálsum markaði, greitt fyrir það eðlilegt verð og síðan nýtt það skynsamlega.“ svo sé ekki. Til þess em tvær ástæð- ur. í fyrsta lagi hefur þróunaraðstoð, eins og hann og aðrir sósíalistar hugsa sér hana, þveröfugar afleið- ingar við það sem henni er ætlað, og í öðm lagi em aðrar leiðir miklu heppilegri að því markmiði, sem sós- íalistar em vonandi sammála okkur frjálshyggjumönnum um, en það er að fátækar þjóðir komist í bjargáln- ir. Valið er um aðstoð án þróunar eða þróun án aðstoðar. Orðið „þró- unaraðstoð" er hið herfilegasta rangnefni. Aðstoð án þróunar Þróunaraðstoð er ekki aðstoð ein- staklinga á V esturlöndum við fátækt fólk i Suðurlöndum heldur tekjutil- færsla milli tveggja ríkja. Þetta merkir að slík aðstoð treystir stjórn- arherrana i viðtökulöndunum í sessi. Þeir fá aukið fé til ráðstöíúnar og eiga þess vegna auðveldara með að hrinda áhugamálum sínum í fram- kvæmd. En flest hugðarefrú þeirra em því miður ekki til þess fallin að flýta fyrir raunvemlegri þróun. Hveiju em þegnar þeirra bættari þegar þeir láta smíða glæsileg hús undir sendiráð sín erlendis eða ráð- em langflestir einræðisherrar og af- skiptsamir úr hófi fram um hagi þegnanna. I mörgum þróunarlönd- um neita valdsmenn bændum til dæmis um sannvirði fyrir aftirðir sínar og reyna að neyða hugmyndum sínum um áætlunarbúskap upp á þá. Þetta hefur auðvitað þær afleiðingar að bændur finna ekki hjá sér neina hvöt til þess að framleiða fleiri afurð- ir en þeir nota sjálfir. Matvælaskort- urinn í þróunarlöndunum er af þessum sökum oftar en ekki heima- tilbúinn. Aðstoð við stjómarherra þeirra er því satt að segja líklegri til þess að tefja en flýta fyrir þróun. Tökum Tansaníu undir stjóm Nyer- eres til dæmis. Þetta land hefúr notið mikillar aðstoðar í mörg ár en er nú líklega fátækara heldur en það var þegar það fékk sjálfstæði fyrir aldarfjórðungi. Engu er öðm um að kenna, hygg ég, en rangri stjómar- stefnu. Þótt svo ólíklega vildi til að valds- menmmir væm allir af vilja gerðir kennir reynslan okkur að þeir geta ekki stuðlað að jafnörri þróun og atorkumenn úti í atvinnulífinu, sem ráða yfir miklu meiri þekkingu á stund og stað heldur en skriffinnar Dr. Hannes Hólm- steinn Gissurarson Frjálshyggjan er mannúðarstefna inni á skriístoftim og geta þess vegna bmgðist skjótar og betur við öllum breytingum á aðstæðum. Menn fara þrátt fyrir allt betur með eigið fé en Þróun án aðstoðar Hafa þeir sem telja svonefnda þró- unaraðstoð nauðsynlega forsendu þróunar gleymt sögu íslendinga eða annarra vestrænna manna? Við nut- um engrar þróunaraðstoðar, en þrátt fyrir það tókst okkur upp úr alda- mótunum síðustu að brjótast úr sámstu fátækt í bjargálnir. Þetta tókst okkur ekki síst af því að Thor Jensen, Jón Þorláksson, Jón Ólafs- son, Eldeyjar-Hjalti, Pétur Thor- steinsson, Ingvar Vilhjálmsson, Bjöm Ólafsson og óteljandi aðrir framkvæmdamenn höfðu frelsi til þess að reyna fyrir sér, prófa nýjar aðferðir, græða og tapa. Við bjugg- um þá sem nú við sömu skilyrði og margar þjóðir þróunarlandanna, þar sem við seldum óunnið eða lítt unn- ið hráefni á vestræna markaði. Það er að vísu rétt að útlendingar lögðu okkur til fjármagn, en þeir gerðu það til þess að græða á því sjálfir, enda tóku þeir af því æma leigu. Svipað er að segja um önnur vestræn ríki. Þar varð þrómi án aðstoðar. Og hafa fylgismenn þróunarað- stoðar aldrei litið til landanna í Suðaustur-Asíu? Það er ekki neinni þróunaraðstoð að þakka að íbúar Hong Kong búa nú við miklu betri lífekjör en aðrir Asíumenn, að Jap- önum undanskildum. Kínverskir sérfræðingar giska sjálfir á að um tíu milljónir manna hafi látist úr hungri í Kínaveldi á dögum „Stökksins mikla“ frá 1959 til 1962, en á ámnum 1945-1985 tífaldaðist íbúafjöldi Hong Kong og hið sama er að segja um Singapore, Taivan og Suður-Kóreu. Þar hefur orðið þróun án nokkurrar svoneftidrar þróunaraðstoðar. Þar hafa menn brotist af eigin rammleik úr fátækt í bjargálnir. Gömul sannindi og ný Það verður sennilega ekki of oft endurtekið að peningar em ekki auðæfi heldur ávísanir á auðæfi. Raunvemleg auðæfi em til dæmis framleiðslutæki og nýtanlegar nátt- úmauðlindir, en umfram allt hæfi- leikar manna til að framleiða vörur og veita þjónustu á frjálsum mark- aði. Breski hagfræðingurinn Peter Bauer, sem skrifað hefur manna mest um þróunarlöndin, sagði í er- indi hér í Reykjavík í júlí 1984, er birtist í tímaritinu Frelsinu árið 1985: „Þeir sem halda því fram að gjafafé frá útlöndum sé nauðsynlegt til þess að framfarir geti orðið með fátækum þjóðum mglast á orsök og afleiðingu. Það em framfarir í at- vinnumálum sem geta af sér eignir og peninga. Það em ekki eignir og peningar sem geta af sér framfarir í atvinnumálum." Ef hinar fátæku þjóðir í suðri stefna að þróun geta þær farið sömu leið og íslendingar á öndverðri öld- inni. Þær geta útvegað sér íjármagn á frjálsum markaði, greitt fyrir það eðlilegt verð og síðan nýtt það skyn- samlega. Það skiptir miklu meira máli, eins og Bauer benti á í erindi sínu, hvemig farið er með fé heldur en hversu mikið það var í upphafi. Ef hinar fátæku þjóðir hyggjast ná þessu markmiði sínu neyðast þær auðvitað líka til þess að leggja niður ýmsa siði og hætti sem tefja fyrir slíkri þróun. Umfram allt hljóta þær þó að færa innlendum framkvæmda- og atorkumönnum frelsi til að neyta hæfileika sinna. En hvað getum við Islendingar gert þeim til aðstoðar? Við getum að mínum dómi best stuðlað að þróun með eindregnum stuðningi við viðskiptafrelsi á al- þjóðamarkaði, hvar og hvenær sem við getum látið í okkur heyra, því að slíkt frelsi er nauðsynlegt (en að visu alls ekki nægilegt) skilyrði fyrir því að þjóðir þróunarlandanna geti framleitt sig út úr fátækt. Hannes Hólmsteinn Gissurarson - á árunum 1945-1985 tifaldaðist íbúafjöldi Hong Kong

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.