Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Page 16
16
DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986.
Spurningin
Hvernig líst þér á
sumarið?
Þóra Vilhjálmsdóttir húsmóðir:
Þetta er búið að vera ágætt sem
af er. Ég er bjartsýn á að það sem
eftir er verði svipað.
Pétur Árnason forstjóri:
Mér líst alveg þokkalega á það.
Ég hef trú á að þetta verði prýðis-
sumar hér fyrir sunnan.
Valdimar Bjarnfreðsson, vinnur í
byggingavinnu:
Mér líst sæmilega á það. Byrjunin
lofar ailavega góðu.
Ómar Kjartansson endurskoðandi:
Ég tek bara ekki svo mikið eftir
veðrinu yfirleitt. Auðvitað vonar
maður að þetta verði sólarsumar.
Aldís Ægisdóttir nemi:
Mér líst bara ágætlega á sumarið.
Ég vona að við fáum hæfilega mikið
af sól og rigningu.
Flosi Pálmarsson nemi:
Ég veit það ekki. Það hefur rignt
mikið að undanfömu. Ætli veðrið
veifli ekki þannie í sumar.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Islendingar
Femando Scbido skrifar:
Mig langar að gera athugasemd við
það sem Baltasar sagði um spánska
flamengofiokkinn sem sýndi hér á dög-
unum. Ég ber mikla virðingu fyrir
Baltasar sem listamanni en hann hefur
ekki mikið vit á flamengo.
Flamengoflokkur þessi kemur frá
Andalúsíu þaðan sem ég er ættaður.
Sýning þeirra var kannski ekki það
besta sem ég hef séð af flamengo en
hópurinn er sannarlega ekki þriðja
ekki sviknir
flokks eins og Baltasar lét í veðri vaka.
Nokkir meðlima hópsins hafa fengið
margar viðurkenningar, meðal annars
Rósa Durán sem kennir flamengo við
akademíuna í Madrid.
Ég vil líka mótmæla því að íslend-
ingar hafi verið sviknir af sýningu
þessa hóps, eins og Baltasar gefur í
skyn. Þetta var ágæt sýning þó ég, sem
innfæddur Andalúsíumaður, hafi séð
þær betri.
Engin þriðja flokks sýning - segir Fernando um flamingoflokkinn.
Vanda-
lausar
myndir
Pálína Ásgeirsdóttir hringdi:
Ég vil láta skoðun mína í ljós í sam-
bandi við grein sem einhver Kristján
skrifaði i DV um daginn. Hann kvart-
aði þar yfir svokölluðum vandamála-
myndum í sjónvarpinu. Að mínu mati
eru þessar myndir engar vandamála-
myndir. Svona myndir fá fólk til að
hugsa og í þeim er aðalatriðið engan
vegin að lýsa ljótleika mannsins.
Svona myndir skilja eitthvað eftir sig.
1 rauninni finnst mér of fáar svona
myndir vera í sjónvarpinu og legg til
að myhdir þessarar tegundar verði
sýndar reglulega í sjónvarpinu.
Nokkrar mynda Ingimars Bergman
hafa verið sýndar i sjónvarpinu að
undanförnu. Ekki eru allir á einu máli
um ágæti þeirra.
Eltingarleikur
lögreglunnar
Kristinn Siguijónsson, Hjallabraut 15,
skrifar:
Fyrr á árum taldi almenningur lög-
regluna heimskari en gerist með aðrar
stéttir. Þó voru allir sammála um að
líkamlegt atgervi lögreglumanna væri
í góðu lagi, enda talið að smávaxnir
rindlar hefðu lítið í þetta starf að gera
(auðvitað voru konur ótækar og þykja
enn á sumum stöðum í dag!). Margir
þóttust greina að gegnumsneitt væru
lögreglumenn lítið greindir og margar
skemmtilegar sögur eru til um það.
Tilefhi þessara hugleiðinga er það,
að litlu munaði að lögreglunni tækist
að að drepa fimmtán ára ungling sem
var að aka mótorhióli út, á Granda.
Þeim þótti eitthvað athugavert við
aksturslagið og hófu þegar eftirför.
Pilturinn varð að þvf er virðist skelf-
ingu lostinn og reyndi að flýja. Undir
lokin var hann og þeir sex lögreglu-
þjónar sem eltu hann komnir á 140
km hraða og stórhættulegir öllum veg-
farendum.
Þetta endaði þannig að pilturinn ók
utan í bílskúrsvegg en slapp sem betur
fer ómeiddur. Hann hefði þó að líkind-
um örugglega drepist ef hann hefði
ekið beint á vegginn.
Já, lesendur góðir. Verður ekki að
taka upp gömlu trúna, sem ég hélt að
væri goðsögn, að stór hópur innan
lögreglunnar sé heimskari en gengur
oi? gerist.
Harðduglegir
Hvergerðingar
Útlendingur hringdi:
Ég er dálítið hissa á hvað lítið hefur
verið fjallað um allar byggingafram-
kvæmdimar í Hveragerði. Ég átti leið
þama framhjá um daginn og varð
mjög undrandi á hversu bygging hót-
elsins þama hefur gengið vel.
Það litla sem hefur verið skrifað um
þessar byggingaframkvæmdir hefur
verið mjög neikvætt. Verið er að fetta
fingur út í hvaðan allt fjármagnið, sem
hótelið er reist fyrir, kemur. En mér
er spum: Er ekki sama hvaðan gott
kemur? Þessi framkvæmd ber vott um
kjark og framsýni þeirra sem í hlut
eiga. Ég vil óska öllum Hvergerðing-
um til hamingju með þetta þrekvirki
og ég dáist að dugnaði þeirra.
Græna
Dóra hringdi:
Ég vil koma á framfæri þökkum til
gróðrarstöðvarinnar Grænu handar-
innar. Ég átti viðskipti við hana um
daginn og var þjónustan þar til mikill-
ar fyrirmyndar. Þeir sendu mér það
höndin
sem ég pantaði heim og vora í alla
staði mjög almennilegir.
Mér finnst sjálfsagt að vekja líka
athygli á því sem vel er gert í þessu
þjóðfélagi.
Abending til þula
Þorsteinn hringdi:
Mig langar að koma á framfæri
ábendingu til þula Ríkisútvarpsins.
Er ekki hægt að biðja þá um að hætta ’
pappírsskrjáfi og blýantskroti meðan
fréttimar era lesnar. Þetta heyrist
mjög greinilega í fréttalestrinum og
tekur afskaplega mikið á taugamar.
Svona nokkuð heyrist hvergi þar sem
ég hef verið erlendis. Ég vil því endi-
lega hvetja menn hjá útvarpinu til að
koma þessu í nútímalegra horf.
Vægi atkvæða
Vilhjálmur Alfreðsson skrifar:
Mig langar aðeins að benda á kosn-
ingatalnakerfið hér á landi. Ef miðað
væri við gild atkvæði hjá hverjum
flokki, í Reykjavík t.d., þá væri útkom-
an þannig: A-l, B-l, D-8, G-3, M-0
og V-l, samtals 14 fulltrúar. En D-
listi fær fulltrúa vegna svoknllaðra
dauðra atkvæða minnihlutans.
Reyndar fær D-listinn ekki 8 fulltrúa
en næstum því. Úti á landsbyggðinni
era væntanlega einnig mörg gróf dæmi
um þetta ólýðræðislega ástand. Er
ekki tími til kominn að endurskoða
þetta allt saman?