Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Síða 19
DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986. 19 Menning Menning Menning Menning Sleipir slagverksmenn LISTAHÁTÍÐ í REYKJAVÍK interRent Eyjólfur Melsted Tónleikar The New Music Consort á Kjarv- alsstöðum 7. júní. Samverkamenn: Gisli Magnússon og Halld- ór Haraldsson. Efnisskrá: Elliott Carter: Timpani Solos; Béla Bartók: Sónata fyrir tvö píanó og slagverk; Áskell Másson: Helfró; John Cage: Third Construction; Guðmundur Hafsteinsson: Or a Tolling Bell. The Music Consort er sveit sem marga hefur lengi dreymt um að fá hingað til lands. Nú varð draumurinn að veruleika á Listahátíð. Þó aðeins að hluta því hingað komu f]órir slags- verksmenn, en alls eru sextán í hópnum fullskipuðum. Fyrsta verkið var einleiksverk fyrir pákur, heims- þekkt verk og vinsælt eftir Elliott Carter, strmdum kallað draumur pá- kuleikarans. Ég þekki þá því miður ekki í sundur, Frank Cassara, Kory Grossman, Michel Pugliese og Will- iam Trigg, en mikið rækalli voru Timpani Solos vel spilaðar, hver þeirra sem lék. Góðir samverkamenn Samverkamenn tveir voru til kallað- ir að kveða Sónötu Béla Bartóks fyrir tvö píanó og slagvérk. Ekki var í kot vísað að fá þá Gísla Magnússon og Halldór Haraldsson til liðsauka. Bart- ók hlaut þama óskaflutning. Þá kom kærkomið hlé, því hitna tók og loft að þyngjast mjög í vestursal Kjarvalsstaða. En svo kom að Helfró Áskels Mássonar. Helfró er allþekkt verk og hefur meðal annars komið út á plötu, Steinhljóð 003. Ánægjan yfir leiknum var hér tvöföld á við að hlusta á plötuna, þar sem höfundur lék sjálf- ur ásamt Þóri Sigurbjömssyni, því hið sjónræna skiptir ekki svo litlu máli við flutning af þessu tagi. Fyrir vikið fannst mér það jafnvel betur spilað en á plötunni. Svo þarf samt alls ekki að vera og er síst ætlunin að níða góðan leik á plötunni - aðeins geta þess að lifandi flutningur tekur jafnan niður- suðunni fram. Þroskamerki? Ekki veit ég hversu gamalt verk Johns Cage, Third Construction, er. Líklega er það frá lokum fimmta ára- tugarins. Það eitt er þó víst að margan hefur það hlotið að hneyksla á sinni tíð. Nú erum við þess sem betur fer umkomin að finna frumleikann, leik- gleðina og sérstæða andagift í verki af þessu tagi - Þroskamerki? - Von- andi. En það er heldur ekki gaman að hlusta á annað en snillinga á borð við meðlimi New Music Consort flytja verk af þessu tagi. Þegar réttur er litli fingur Síðast á dagskrá var Or A Tolling Bell, slagverkssinfónía eftir Guðmund Hafsteinsson. Hér heima held ég að ekki hafi verið flutt annað eftir Guð- mund en Bmnnu hvarma björt ljós (ég vona að ég muni titilinn rétt), tríó fyr- ir píanó, klarínettu og selló - magnað stykki. Slagverkssinfónia Guðmundar, sem hér var flutt, tekur rúman hálf- tíma í flutningi. Ha! segja víst þeir sem ekki tóku tímann, þvi við flókinn tón- vef ásláttarhljóðfæranna, eins og hann var hér ofinn, gleyma menn bæði stund og stað. Að heyra verkið einu sinni er vitaskuld allt of lítið til að gera sér neina grein fyrir þvi svo heitið geti. Því hefði ég kosið að fá að heyra það tvíleikið á þessum tónleikum, en hér var, held ég, um frumflutning að ræða. Það sem ég heyrði við þennan eina flutning æsti upp í mér löngun til að heyra það aftur, og það sem fyrst. Þeir em sannarlega sleipir slag- verksmennimir í The New Music Consort. Listahátiðarstjóm ber þakkir fyrir að stuðla að hingaðkomu þeirra. Sem fyrr var getið hafa menn haft á því hug án þess að fá við kostnaðinn ráðið. Þegar réttur er litli fingur vill þiggjandinn gjaman fá alla höndina. Lái mér hver sem vill að óska þess að fá flokkinn allan á næstu Listahátíð - helst fyrr. EM Útibú í kringum landið REYKJAVÍK:.... 91-31815/686915 AKUREYRI:.......96-21715/23515 BORGARNES:............93-7618 BLÖNDUÓS:.........95-4350/4568 SAUÐÁRKRÓKUR: ....95-5913/5969 SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489 HÚSAVÍK:........96-41940/41594 EGILSSTAÐIR:...........97-1550 VOPNAFJÖRÐUR:....97-3145/3121 FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166 HÖFN HORNAFIRÐI: ......97-8303 BJARTUR er bónaóur bíll Komdu með bílinn eða láttu okkur sækja hann og þú færð nýbónaðan bílinn kláraðan samdægurs, fyrir sölu eða eigin ánægju. Við bjóðum uppá eftirfarandi þjónustu: • Tjöruhreinsun . Bón . Djúphreinsun (sæti og teppi) . Sprautun á felgum • Vélarhreinsun Opið áUa virka daga frá kl. 8-19. Laugardaga frá kl. 9—18. VISA BORGARTUNI 29 bakatil. SÍMI 622845 SVEITARSTJÓRI Staða sveitarstjóra í Grundarfirði er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 20. júní. Nánari upplýsingar gefur Sigríður A. Þórðardóttir í síma 93-8640. Tónlist

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.