Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Side 22
22 DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986. iHÉfcss Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir ÆU/I/IENIA EU 455 S Litla þvottavélin meö þurrkara sem tekur 4 kg af þurrum þvotti og notar 1/3 af orku, er fljót aö þvo og þvær betur en áður hef- ur þekkst. Mál: 55x53x76,5. Rafbraut Suðurlandsbraut6, 105-Reykjavik Simar 681440 og 681447. uvnm alla vikuna j Háaleitisbraut 68 fTTj Austurver Simi 8-42-40 Cabrini Tardelli ® nsíuriD ® SPORTVÖRUVERSLUN Zico grasskór stæröir 28-36. Verð kr. 1.250. Zico ^ fótboltaskómir Zico Zico malarskór stærðir 28-36. Verð kr. 1.195. Þórður Hallgrímsson, lengst til hægri, horfir angistarfullur á eftir knettinum í markið - sjálfsmark, sem tryggði Keflvíkingum stigin þijú. DV-mynd Hilmar Bárðarson. Sama hvaðan gott kemur þegar mikið er í húfi Islandsmótið 1. deild. Keflavíkurvöllur, IBK-ÍBV 1-0 (0-0) Keflvíkingar eru nú farnir að sýna í sér vígtennurnar. Þeir hafa nú unn- ið tvo leiki í röð eftir mjög slaka byrjun og eru búnir að næla sér í sex stig. Staðan er fljót að batna þegar þrjú stigin nást með sigrum. Allt í einu er ÍBK komið upp í miðja röð- ina eftir leikinn við botnliðið í 1. deildinni, ÍBV, sem aðeins hefur hlotið eitt stig það sem af er. Sigur ÍBK var fyllilega verðskuldaður sé miðað við gang leiksins og mark- tækifærin. Hins vegar voru það gestirnir sem sýndu þann höfðings- skap að gera það sem heimamönnum tókst ekki - að skora mark - en það var því miður í sitt eigið mark. Kefl- víkingar fögnuðu innilega enda er alveg sama hvaðan gott kemur þegar mikið er í húfi. ÍBK-liðið hefur tekið miklum stakkaskiptum að undanfömu. Hraði og léttleiki er kominn í leik þess og liðið er heilsteypt - menn skilja hver annan og ná því oft góð- um samleiksköflum, en eitt vanda- mál er óleyst, að nýta góð færi sem gefast. Hefði það tekist í þessum leik hefðu 4-5 mörk gegn engu verið eðli- leg markatala. Sigurjón Sveinsson, Sigurður Björgvinsson, Freyr Sverr- isson, Valþór Sigþórsson og Skúli Rósantsson komust hvað eftir annað í góð færi, með höfði og fótum, en brást heldur betur skotfimin. Freyr var mjög virkur sem tengiliður og hanji ætlaði Sigurði Björgvinssyni knöttinn með skallasendingu þegar Þórður Hallgrímsson stökk upp og komst inn í sendinguna. Hvort hann ætlaði að skalla yfir markið eða til markvarðar veit hann einn, en svo slysalega vildi til að knötturinn sveif beint í markið, óverjandi fyrir Hörð Pálsson, snjallan mgrkvörð ÍBV. Þetta gerðist á 64. mín. og segja má með sanni að Þórður ætlar að vera seinheppinn þegar ÍBK á í hlut. Hólmbert Friðjónsson, þjálfari ÍBK, er óragur við að reyna nýja liðs- skipan. Einar Ásbjörn er kominn í öftustu vörnina og stóð sig vel. Freyr leikur framar en áður og nýtist betur þar en í vörninni. Sigurður Björg- vinsson og Óli Þór Magnússon voru sívinnandi allan leikinn, sérstaklega sá fyrrnefndi, sem hefur sjaldan verið betri. Þorsteinn Bjamason fékk lítð að starfa í markinu, utan einu sinni þegar Elías Friðriksson skaust inn fyrir ÍBK-vömina og átti Þorstein einan eftir til hindrunar - og Þor- steinn sá við honum og varði fast jarðarskot með því að slá knöttinn aftur fyrir endamörk. Eyjapiltarnir léku þokkalega knattspyrnu, reyndu samleik en vom greinilega ekki nógu kvikir til að brjóta sér leið í gegnum ÍBK-vömina sem var með sprækasta móti og kæfði í fæðingu allar sóknartilraunir mót- herjanna. Undir lokin lögðu Eyja- menn meira í sóknina með því að setja nýja menn í leikinn en allt kom fyrir -ekki. Þrátt fyrir tapið og klaufaskapinn þegar markið var skorað þá býr margt gott í liðinu sem vonandi fyrir ÍBV skilar sér þegar á líður sumar. Eyjamenn leggja áreið- anlega ekki árar í bát þótt á móti blási um sinn. Hörður Pálsson mark- vörður var þeirra besti maður, einnig stóðu sig vel Þorsteinn Viktorsson, Viðar Elíasson og Elías Friðriksson. Dómari var Gísli Guðmundsson og dæmdi mjög vel. Áhorfendur 634. Gul spjöld: Viðar Elíasson, Þórður Hallgrímsson, ÍBV. Lið IBK: Þorsteinn Bjarnason, Gísli Grétarsson (Sigurður Guðnason s.h.) Einar Ásbjörn Ólafsson, Valþór Sig- þórsson, Rúnar Georgsson, Sigurður Björgvinsson, Gunnar Oddsson, Freyr Sverrisson, Óli Þór Magnús- son, Sigurjón Sveinsson, Skúli Rósantsson, ívar Guðmundsson (inn á í lokin fyrir Sigurð Guðnason). Lið ÍBV: Hörður Pálsson, Jón Bragi Arnarson, Þórður Hallgrímsson, Þorsteinn Viktorsson, Viðar Elías- son, Elías Friðriksson, Lúðvík Bergsteinsson, Páll Hallgrímsson (v.m. í s.h.) Jóhann Georgsson, Ómar Jóhannsson, Ingi Sigurðsson, Karl Sveinsson, Jón Atli Gunnarsson (v. m. sh.) Maður leiksins: Sigurður Björgvins- son, Keflavík. emm 4. deild - 4. deild - 4. deild - 4. deild Þingeyingar skoruðu ellefu - átta mörk í þremur leikjum Mikið var leikið í 4. deildinni á ís- landsmótinu í knattspyrnu um helgina en þó var leikjum frestað. Þegar er talsvert um frestaða leiki í deildinni. Þar er keppt í sjö riðlum víðs vegar um landið. Úrslit um helg- ina: A-riðill: Þór, Þ.-Haukar 2-3 Snæfell-Skotfél. Rvk. 2-1 Grundarfjörður-Augnablik fr. Staðan í A-riðli Skotf. R. 3 2 0 1 9-5 6 Snæfell 3 2 0 1 5-4 6 Haukar 2 10 1 3-3 3 Augnablik 2 10 1 6-8 3 Þór, Þorláksh. 3 1 0 2 4-6 3 Grundarfjörður 10 0 1 1-2 0 -Róbert B-riðill: Afturelding-Víkingur, Ól. 8-0 Hveragerði-Léttir 5-2 Vík verj i-Stokkseyri 5-1 C-riðill: Eyfellingur-Leiknir, R. 0-5 Grótta-Hafnir 1-0 Staðan i C-riðli Grótta 2 2 0 0 7- 0 6 Leiknir, R. 2 110 8-34 Árvakur 2 110 7-44 Hafnir 3 1 0 2 6- 6 3 Eyfellingur 3 0 0 3 1-16 0 D-riðiIl: Badmintonf. Ísafj.-Reynir, Hn. 0-1 Bolungarvík-Stefnir 8-0 Reynir, Hn.-Geislinn 0-8 E-riðiIl: Hvöt-Svarfdælir 1-0 Kormákur-Svarfdælir 1-3 F-riðill: Núpar-Æskan 5-3 HSÞ b-Austri, R. 11-0 G-riðill: Súlan-Neisti l-l Höttur-Sindri 3-0 Staðan í G-riðli: Höttur 2 2 0 0 6-0 6 Sindri 2 1 0 1 3-4 3 Neisti 2 0 2 0 2-2 2 Hrafnkell 1 0 1 0 1-1 1 Súlan 2 0 1 0 1-4 1 Huginn 1 0 0 1 1-3 0 JFJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.