Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Síða 23
23
DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986.
Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir
Þróttur átti
aldrei mögu-
leika gegn KA
- er KA sigraði Þrótt, 3-1
Þráinn Stefánsson, DV, Akureyri:
Þróttarar komust varla fram fyrir
miðju þegar þeir töpuðu fyrir KA hér
á Akureyri í 2. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu. KA skoraði þijú mörk í
leiknum en Þróttur eitt.
KA náði forystunni á 18. mínútu.
Það var gamla kempan Hinrik Þór-
hallsson sem skoraði markið með föstu
skoti úr vítateig eftir góða sendingu
frá Erlingi Kristjánssyni. Skot Hinriks
fór í bláhom Þróttarmarksins og var
óverjandi.
Ekki náðu KA-menn að skora fleiri
mörk í fyrri hálfleik þrátt fyrir að þeir
væru mun betri aðilinn. Það voru liðn-
ar tíu mínútur af síðari hálfleik þegar
annað markið leit dagsins ljós. Bjarni
Jónsson skoraði eftir góða sendingu
frá Áma Freysteinssyni. Áhorfendur
þurftu að bíða nokkuð lengi eftir
þriðja markinu en það var skorað þeg-
ar sjö mínútur voru til leiksloka. Nú
var Ámi Freysteinsson sjálfur á ferð-
inni eftir sendingu frá Hinriki Þór-
hallssyni. Á lokamínútunum kom
mark Þróttar og var þar um sjálfs-
mark að ræða. Var það nánast í fyrsta
skipti sem Þróttarar komust í vitateig
heimamanna og segir það mikið um
yfirburði KA í leiknum.
Þeir Ámi Freysteinsson og Erlingur
Kristjánsson vom bestu menn KA í
leiknum en ógjörningur er að benda á
einhvem einstakan leikmann í liði
Þróttar. Liðið er ' mjög slakt og
kannski ekki furða þar eð einir fjórtán
leikmenn, sem léku með liðinu í fyrra,
em hættir eða famir annað.
-SK
Jafntefli a Vopnafirði
Einherji og Selfoss skildu jöfn er liðin
áttust við í 2. deild Islandsmótsins í knatt-
spymu um helgina en leikið var á
Vopnaiirði.
Litið var um marktækifæri í leiknum
og ekkert mark skorað. Selfyssingar voru
þó nær því að skora en Njáll Eiðsson, þjálf-
ari heimamanna, bjargaði málunum á
síðustu stundu. Frammistaða Einherja
hefur vakið nokkra athygli í sumar og
greinilegt að liðið er á réttri leið. Selfyss-
ingar voru í efsta sæti deildarinnar tyrir
leikinn og flestir bjuggust því við sigri
þeirra. -SK
• Oft var hart barist i leik Vals og Fram á föstudagskvöld. Hér eru leikmenn að berjast um knöttinn en númer tiu,
fyrir miðri mynd, er Sigurjón Kristjánsson, Val. Ef myndin prentast vel má sjá blóð leka niður hálsinn en hann varð
fyrir hnjaski fyrr í leiknum. DV-mynd Brynjar Gauti.
• Gústaf Bjömsson, þjálfari KS,
skoraði mark KS á Siglufirði og
hefur skorað fjögur mörk i 2. deild.
Enn skorar
Gústaf
-jafnthjáKSogÍBÍ
Gústaf Bjömsson, þjálfari KS frá
Siglufirði, er enn á skotskónum í 2.
deild íslandsmótsins í knattspyrnu.
Um helgina iéku KS-menn gegn fs-
firðingum en tókst ekki að sigra.
Jafntefli varð í leik liðanna, 1-1, eftir
að heimamenn höfðu haft forystuna
i lcikhléi, 1-0.
Það var Gústaf Bjömsson sem
skoraði mark KS í fyrri hálfleik en
sjálfsmark heimamanna kom í veg
fyrir að öll stigin þrjú næðust í höfn.
KS er þrátt fyrir jafnteflið með góða
stöðu í deildinni og gæti blandað sér
í toppbaráttuna. Staðan í 2. deild er
nnnars þannig:
KA...........4 2 2 0 10-4 8
Njarðvík......4 2 2 0 9-5 8
Selfoss.......4 2 2 0 6-2 8
Víkingur.....4 2 11 14-4 7
KS............4 1 3 0 0-5 6
Völsungur.....4 12 15-35
Einherji......4 12 14-75
ísafjörður....4 0 3 1 8-10 3
Þróttur.......4 0 1 3 5-9 1
Skallagrímur..4 0 0 4 1-19 0
Næstu leikir í 2. deild eru á dag-
skrá 14. júní en þá leika: Þróttur-
Völsungur, Selfoss-KS, fBf-KA,
Skallagrímur-Einherji og Njarð-
vík-Víkingur.
-SK
IVö glæsileg mörk og
jafntefli Vals og Fram
- á Hlíðarenda á föstudagskvöld, 1-1
Stórglæsilegt skallamark Guðmund-
ar Torfasonar á fyrstu mínútu siðari
hálfleiks nægði Frömurum ekki til sig-
urs í leik þeirra gegn Valsmönnum á
leikvelli Vals við Hlíðarenda á föstu-
dagskvöld. Hilmar Sighvatsson náði
að jafna metin fyrir Val, þegar nokkuð
var liðið á síðari hálfleikinn, með fal-
legu marki úr aukaspyrnu rétt fyrir
utan vítateig.
Mikið fjör var í byijun leiksins og
þá voru Framarar mun frískari og
Guðmundur Torfason fékk tvö mjög
góð marktækifæri er bæði fóru for-
görðum. Þegar líða tók á fyrri hálfleik
fór maður að taka eftir Valsmönnum
á vellinum og þeir voru klaufar að
skora ekki mark í fyrri hálfleik. Fram-
arar áttu einnig sín færi og sanngjöm
staða að afloknum fyrri hálfleik hefði
verið 3-1 fyrir Fram.
Gjæsimark Guðmundar
í byijun síðari hálfleiks gaf Guð-
mundur Steinsson góða sendingu fyrir
mark Vals og Guðmundvir nafni hans
Torfason kom aðvífandi og stökk hæst
allra og skailaði knöttinn glæsilega í
netið án þess að Stefán Amarsson
næði til knattarins.
Eftir þetta mark dofnaði mjög yfir
leiknum og var síðari háifleikurinn
langt frá því að vera jafri vel leikinn
og sá fyrri.
Þrumumark Hilmars fyrirliða
Um miðjan fyrri hálfleikinn var
dæmd aukaspyma rétt fyrir utan víta-
teig Fram og vildu margir meina að
þar hefði verið um vægast sagt vafa-
saman dóm að ræða. Hvort sem þetta
var réttur dómur eða ekki er víst að
Magnús Theódórsson dómari var í
slakri aðstöðu til að sjá brotið. Eftir
að Valsmenn höfðu útfært nokkra
leikfléttu í byrjun aukaspymunnar lét
Hilmar Sighvatsson mikið þrumuskot
ríða af og í markinu hafhaði knöttur-
inn og Valsmenn höfðu jafnað.
Eitthvað vantar hjá Val
íslandsmeistarar Vals hafa ekki enn
náð sér fullkomlega á strik og eiga
ömgglega eftir að leika betur í næstu
leikjum. Enn vantar Þorgrím Þráins-
son í liðið og mun það örugglega
stvrkjast við komu hans. Ársæll
Kristjánsson var besti maður Vals í
þessum leik.
Breytingar hjá Fram
Eftir afleikinn gegn Keflavík á dög-
unum gerði Ásgeir Eliasson, þjálfari
Fram. þær breytingar á liði sínu að
hann tók Öm Valdimarsson út og setti
Arnljót Davíðsson inn i hans stað. Þá
lék Þorsteinn Þorsteinsson ekki með
í vöminni vegna meiðsla og tók Þor-
steinn Vilhjálmsson stöðu hans og lék
stórvel og var besti maður Fram í
leiknum. Eflaust besti leikur hans með
Fram frá upphafi. Um Amljót Davíðs-
son er það að segja að þar fer laginn
leikmaður en svo er að sjá sem hann
eigi nokkuð í land sem leikmaður í
1. deild. Reynsluleysi háir honum sem
skiljanlegt er og í leiknum gegn Val
vom flestallar sendingar hans afleitar.
En hann er leikmaður framtíðainnnar.
Auk Þorsteins Vilhjálmssonar var
Guðmundur Steinsson þokkalegur og
Friðrik var ömggur í markinu.
Lið Vals: Stefán Arnarsson. Magnús
Magnússon. Óttar Sveinsson (Ámundi
Sigmundsson), Guðmundur Kjartans-
son. Ársæll Kristjánsson, Sigurjón
Kristjánsson. Valur Valsson, Ingvar
Guðmundsson. Hilmar Sighvatsson,
Bergþór Magnússon (Hilmar Harðar-
son). Guðni Bergsson.
Lið Fram: Friðrik Friðriksson, Þor-
steinn Vilhjálmsson, Þórður Marels-
son, Jón Sveinsson, Viðar Þorkelsson.
Kristinn Jónsson. Pétur Ormslev.
Steinn Guðjónsson (Gauti Laxdal),
Guðmundur Steinsson, Guðmundur
Torfason. Arnljótur Davíðsson.
Dómari var Magnús Theódórsson
og hefui- hann dæmt betur. Var hann
oft ekki nægilega vel staðsettur á vell-
inum og verður að laga það. Áhorfend-
ur voru rúmlega 1100.
Maður leiksins: Þorsteinn Vilhjálms-
son, Fram. -SK
KR og Valur sigruðu í kvennabottanum um helgina
KR og Þór A léku á KR-velli um
helgina í 1. deild kvenna. KR-ingar
voru betri aðilinn i þessum leik og
sigruðu, 3-2. Staðan í hálfleik var 2-1
þeim i vil. KR-stúlkurnar náðu oft
skemmtilegum leikköflum og sköp-
uöu oft mikla hættu við mark Þórs,
en Þórdís Sigurðardóttir í marki Þórs
var þeim óþægur ljár í þúfu og bjarg-
aði oft vel.
Mörk KR-inga gerðu þær Ama
Steinsen, 2, og Dagný Halldórsdóttir
1 mark. KR-liðið virkaði nokkuð
heilsteypt í þessum leik og gæti bitið
frá sér þegar fram í mótið sækir.
Best var landsliðsmaðurinn Arna
Steinsen.
Þórsliðið barðist vel í þessum leik
- en greinilegt er að það er ekki eins
sterkt og í fyrra. Mörk Þórs gerði
Lára Eymundsdóttir.
Valur-Þór 2-0
Sl. sunnudag léku síðan Þórsstúlk-
urnar gegn Val og sigraði Valur,
2-0. Sjálfsagt hefur einhver þreyta
setið í Þórsliðinu því auðvitað hlýtur
að vera erfitt að leika erfiða leiki tvo
daga í röð.
Valsstúlkumar réðu öllu um gang
leiksins og mæddi mikið á öftustu
vörn Þórs, sem stóð sig með miklum
ágætum því það var ekki fyrr en um
miðbik síðari hálfleiks sem Ingi-
björgu Jónsdóttir tókst að skora
fyrra markið. Kristín Arnþórsdóttir,
sem var besti leikmaður Vals í þess-
um leik. skoraði annað markið þegar
stutt var til leiksloka.
Valsstúlkurnar em til alls vísar og
ættu að geta náð langt í þessu Is-
landsmóti. Liðið er skipað nokkuð
jafngóðum leikmönnum og sem
sýndu oft skemmtileg tilþrif. Þær
áttu þó í vissum erfiðleikum með að
finna leiðina að markinu að þessu
sinni - en vöm Þórs var að vísu
mjög föst fyrir og Þórdís Sigurðar-
dóttir í markinu bjargaði oft af snilld.
-HH
Úrslit í mótinu fram að þessu:
Breiðablik-Valur 1-3
Þór A-Haukar (fi-estað)
Akranes-Keflavík 2-1
Keflavík-Breiðablik 0-3
Haukar-Akranes 0-4
Staðan í 1. deild kvenna:
Akranes
Valur
KR
Breiðablik
Þór Ak.
ÍBK
Haukar
2 21 0 0 5-1 4
22005-14
11003-22
21104-32
2 0 2 0 2-5 0
20201-50
1010N0