Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Qupperneq 24
24
DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986.
íþróttir
• Eusebio - var ánægöur.
„Vantaði meira
samspil"
- sagði Eusebio
Atli Hilmarsson, DV, Þýskalandi:
„Leikmenn Vestur-Þýskalands byij-
uðu þennan leik mjög vel en samt
fannst mér vanta mun meira samspil
á milli leikmanna," sagði hinn heims-
frægi knattspymumaður hér á árum
áður, Eusebio frá Portúgal, sem um
tima var álitinn einn besti knatt-
spymumaður heims.
Hann var á meðal áhorfenda á leik
Þýskalands og Skotlands og sagði álit
sitt á leiknum í vestur-þýska sjón-
varpið. „Mér fannst Skotamir einnig
mjög góðir og þeir hefðu átt að geta
jaJEnað í lokin. Gordon Strachan var
besti maðurinn í liði þeirra en hjá
Þjóðverjum fannst mér aftasta vömin
betri hluti liðsins, að Schumacher í
markinu meðtöldum," sagði Portúgal-
inn heimsfrægi. -SK
NaumthjáBelgum
- unnu írak. 2-1
„Vissulega spiluðum við af hörku
en það gera hin liðin einnig. Við erum
ekki komnir til Mexíkó til að vinna
bikar fyrir góða hegðun. Stundum
missa leikmenn stjóm á skapi sínu en
það getur verið eðlílegt í leíknum,"
sagði Evaristo de Macedo, þjálfari ír-
aks, en harka leikmanna Iraks í
leiknum við Belga í gær vakti mikla
athygli. Einn leikmanna íraks var rek-
ínn af leikvelh og fimm leikmenn voru
bókaðir.
Belgar unnu leikinn. 2 1, eftir að hafa
verið 2 0 yfir í háifleik. Það voru þeir
Enzo Scífo og Nico Claesen (víti) sem skor-
uðu mörk Belga. frakar sóttu síðan mjög
í seinni hálfleík og uppskáru mark á 57.
mínútu. Ahmed Itadhi skoraði það. frökum
tókst þó ekki að jafna, aðallega vegna
góðrar frammistoðu -Jean -Marie Pfaff í
marki Belga.
„Við reyndum að spila sóknarleik en það
tókst ekki nema í fyrri hálfleik. Seinni
hálfleik lékum við mjög illa," sagði Guy
Thys, þjálfari Belgíumanna, eftir leikinn.
Belgíumenn hafa nú tvö stig eins og
Paraguaymenn í B-riðli. Þessi tvö lið
mætast á miðvikudaginn. -SMJ
íþróttir íþróttir íþróttir íþn
„Vantaði meira öryggi
í leik minna manna“
- sagði Beckenbauer eftir sigurínn gegn Skotiandi
„Við erum nú næstum því öruggir
áfram í keppninni. Ég er mjög ánægð-
ur með sigurinn gegn Skotum en því
er þó ekki að neita að mínir menn léku
ekki eins vel og gegn Uruguay,“ sagði
Franz Beckenbauer, þjálfari vestur-
þýska fandsliðsins í knattspyrnu, eftir
sigur Vestur-Þýskalands á Skotum í
Mexíkó í gærkvöldi.
„Skotamir voru hvorki betri né verri
en við áttum von á fyrir leikinn. Við
vissum að þeir yrðu erfiðir andstæð-
ingar. Eins og ég sagði þá er ég tiltölu-
lega ánægður með sigurinn en það
helsta sem ég get sett út á leik minna
manna er að þeir léku ekki af nægi-
lega miklu öryggi eftir að staðan var
orðin 2-1,“ sagði Beckenbauer.
Skotar skoruðu fyrst
Það blés ekki byrlega fyrir Þjóðveij-
um í upphafi þvi Gordon Strachan
skoraði strax á 18. mínútu leiksins
fyrir Skota. Rudi Völler jafnaði fyrir
'eikhlé og Klaus Allofs skoraði síðan
sigurmarkið í síðari hálfleik. Þessi
ósigur Skota gerir það að verkum að
þeir verða væntanlega að hverfa heim
á leið einn ganginn enn en Þjóðveijar
tryggðu sér því sem næst áframhald
með sigrinum.
„Við erum öruggir“
„Eftir þennan sigur erum við örugg-
ir áfram og nú er það markmið okkar
að ná efsta sætinu í riðlinum þannig
að við leikum áfram hér í Queret-
aro,“ sagði Klaus Allofs eftir leikinn
og hann bætti því við að hann hefði
Bandaríska körfuknattleiksliðið
Boston Celtics varð í gærkvöldi banda-
rískur meistari í NBA-deildinni í
körfuknattleik er liðið sigraði Houston
Rockets, 114-97, í sjötta urslitaleik lið-
anna. Þetta er 16. meistaratitillinn hjá
Boston og í vetur tapaði liðið aðeins
einum leik á heimavelli.
Búist var miklum hasar eftir stags-
málin í Houston í síðasta teik liðanna
þegar Ralph Sampson sló menn eins
og flugur um víðan völl. Hann var
hins vegar tekinn á taugum í Boston
Garden í gær og skoraði aðeins 8 stig
í leiknum.
Þeir Larry Bird, sem í gær var út-
nefndur besti leikmaður úrslitakeppn-
innar, og Kevin McHale voru mjög
góðir hjá Boston í gærkvöldi en báðir
skoruðu þeir 29 stig í leiknum. Staðan
eftir fyrstu lotuna var 29-23 fyrir Bost-
on en í leikhléi var staðan orðin 55-38
og ljóst hvert stefhdi. Eftir þijár lotur
aldrei átt von á því fyrir keppnina að
mynda sóknina ásamt Völler.
„Vantar meira samspil“
„Mikilvægast var auðvitað að sigra
í þessum leik. Mér fannst það óþarfi
hjá leikmönnum þýska liðsins að
hætta að sækja eftir að þeir komust
yfir. Þeir hefðu átt að reyna að bæta
við þriðja markinu. Annars vantar
allt samspil í sóknarleikinn. Menn
reyna alltof mikið upp á eigin spýt-
ur,“ sagði Otto Rehagel, þjálfari þýska
liðsins Werder Bremen, eftir sigurleik
Þjóðveija í gær.
*Rudi Völler bætti því við að leikur-
inn hefði verið mjög erfiður en góður
að sama skapi og leikmenn beggja liða
hefðu leikið vel. Hann sagði að þetta
hefði verið leikur þar sem leikmenn
beggja liða hefðu gefið e.llt sem þeir
áttu.
„Slæmur dagur hjá okkur“
„Leikmenn mínir léku í meiri hita
og við erfiðari aðstæður en þeir hafa
nokkru sinni þurft að þola áður. Hver
leikmaður í liðinu léttist um 3,5 kg í
leiknum. Þetta var mjög slæmur dagur
hjá okkur. Leikmenn eru auðvitað
miður sín,“ sagði Alex Ferguson, þjálf-
ari skoska liðsins, eftir leikinn. Hann
bætti við: „Við grófum okkar eigin
gröf þegar við vorum komnir með for-
ystuna. Þá héldum við ekki knettinum
og létum tímann alls ekki vinna með
okkur. Við gáfum þeim jöfhunarmark-
ið og í því síðara fór einn minna manna
í tæklingu og knötturinn barst til
Þjóðveija sem skoraði. Það er ekkert
var staðan 82-61 og sigurinn nánast
tryggður.
Gífurlegur fögnuður
Eftir sigurinn í gær trylltust leik-
menn og aðdáendur Boston gersam-
lega og heimavöllur meistaranna og
búningsklefi Boston flaut í kampavíni
eftir leikinn. Og einna glaðastur var
gamla brýnið, Bill Walton, en hann
varð síðast meistari með Portland Tra-
ilblazers fyrir níu árum.
Eins og áður sagði skoruðu þeir
Larry Bird og Kevin McHale 29 stig
hvor, Danny Ainge skoraði 19 stig,
Robert Parish 12 og þeir Dennis Jo-
hnson og Bill Walton gerðu 10 stig
hvor.
Akeem Olujuvón var stigahæstur
hjá Houston með 19 stig og hélt Par-
ish honum í skefjum mestan hluta
leiksins með frábærum vamarleik.
-SK/JBI
sem maður getur gert við svoleiðis
hlutum,“ sagði Ferguson.
Lið V-Þýskalands: Schumacher, Bri-
egel (Jakobs), Berthold, Förster,
Augenthaler, Eder, Matthaeus, Ma-
gath, Littbarski (Rummenigge), Völler
og Allofs.
Lið Skotlands: Leighton, Gough, Na-
rey, Miller, Malpas, Strachan, Sou-
ness, Aitken, Nicol (McAvennie),
Bannon (Cooper) og Archibald.
*Leikinn dæmdi Ioan Igna frá
Rúmeníu að viðstöddum 30 þúsund
áhorfendum. -SK
„Það verður partí hjá okkur í kvöld
eftir þennan fallega leik gegn Urugu-
ay. Og á morgun verðum við komnir
niður á jörðina og förum að búa okkur
undir sigur gegn Vestur-Þýskalandi,“
sagði Sepp Piontek, landsliðsþjálfari
Dana í knattspyrnu, eftir stórsigur
sinna manna gegn Uruguay í gær-
kvöldi á HM í Mexíkó, 6-1. „Leikmenn
danska liðsins þekkjast mjög vel og eru
góðir vinir. Það er leyndardómurinn á
bak við velgengni okkar,“ sagði Pion-
tek ennfremur. Danir voru allan
tímann betri aðilinn i leiknum og þeg-
ar á heildina er litið var þetta sigur
fyrir knattspyrnuna. Hið leiðinlega lið
Uruguay mætti ofjörlum sínum á öll-
um sviðum og nú verður gaman að sjá
hvað danskurinn gerir. I gærkvöldi var
greinilegt að Islendingar eru margir
hveijir orðnir hinir mestu Danir í sér
og ljóst er orðið að Danir eru „okkar
menn“ í Mexíkó.
Það er í raun óþarfi að fara mörgum
orðum um leikinn sem slíkan. Hann
var skuldlaus eign Dana frá fyrstu
mínútu. Einum Uruguay-leikmanni
var vikið af leikvelli á 19. mínútu og
þar með fóru leikmenn Uruguay end-
anlega i gröfina.
„Varð fyrir áhrifum“
„Ég verð að viðurkenna að ég varð
fyrir miklum áhrifum á þessum leik,“
sagði Franz Beckenbauer, þjálfari
Vestur-Þýskalands, eftir leikinn.
Hann hafði lýst því yfir fyrir HM að
það lið sem skoraði fleiri en tvö mörk
hjá Uruguay yrði heimsmeistari í
Mexíkó.
„Laudrup er bestur“
„Það gekk allt upp hjá okkur í þess-
• Preben Elkjær skorar eitt af þremi
um leik og þetta voru góð úrslit,“ sagði
fyrirliðinn frábæri, Morten Olsen, af
sinni alkunnu hógværð. „Það er mín
skoðun að danska liðið sé mun betra
nú en á EM 1984 og Michael Laudrup
er besti maður keppninnar. Maður
getur oft orðið vitlaus út í Preben
Elkjær en svo allt í einu fer hann af
stað og áður en maður veit af þá er
hann búinn að skora. Hann var frábær
í þessum leik,“ sagði Olsen.
„Nú skal ég spila“
„Ég get ekki gert upp á milli þessara
marka. Mark er mark og aðalatriðið
að tuðran fari í markið,“ sagði Preben
Elkjær Larsen eftir leikinn en hann
skoraði þijú markanna. Og þegar
dönsku leikmennimir komu inn í bún-
ingsklefann sagði hann:„Strákar
mínir: Ég skafysjá um leikinn gegn
Vestur-Þýskalandi. Veriði bara rólegir
og slappiði af.“
„Danir verða heimsmeistarar“
Eftir stórsigur Dana í gærkvöldi var
það samdóma álit þýskra fréttamanna,
sem sáu leikinn, að Danir yrðu heims-
meistarar. Þeir áttu ekki orð til að
lýsa ánægju sinni á frábæru dönsku
liði og víst er að þetta em óvæntustu
úrslit keppninnar til þessa.
Troelsen stóð á öndinni
Knattspymusérfræðingur danska
sjónvarpsins, Tommy Troelsen, átti
varla til lýsingarorð til að lýsa leik
danska liðsins í gærkvöldi og þá sér-
staklega Michaels Laudmp. Þó sagði
hann að liðsheildin hefði sigrað og um
Laudrup sagði hann:„Hér er á ferð ný
súperstjarna í knattspyrnu." Fjöldi
Dana var saman kominn í sjónvarps-
Boston varð
meistari
-sigraði Houston í gær, 114-97
Þaðve
eftirþen
SÓLSKINSEYJAf ma 4 H 1 or Fjölskyldutilboð 2.júlí i' 3 vikur. ERTU MEÐ ? ATH! Aðeins þessa einu ferð.
Þú ert íöruggum höndum hjá FERÐASKRIFSTOFA,Iöna6arhúsinu Hallveigarsiigl. sími ÚI-2K3SS.