Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Síða 27
DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986.
27
Iþróttir lþróttir Iþróttir Iþróttir
Stórsigur Víkings í 2. deild á Hallarflotinni
6 mörk Andra
í 9-0 sigrinum
Landsliðsmaðurinn hjá Vikingi,
Andri Marteinsson, skoraði strax á
fyrstu mínútu leiks Víkings og Skalla-
gríms í 2. deild á laugardag á Hallar-
flötinni i Laugardalnum og það var
aðeins forsmekkurinn af því sem átti
eftir að sjást til hans í leiknum. Hann
átti stórleik, bar af á vellinum, og áður
en yfir lauk hafði hann sex sinnum
sent knöttinn í mark Skallagríms í 9-0
sigri Víkings.
Það var austanrok og rigning þegar
leikurinn fór fram. Víkingar léku und-
an vindinum sterka í fyrri hálfleik og
skoruðu þá sjö mörk, þrennu á síðustu
mínútum hálfleiksins. Þá virtist út-
hald Borgnesinga alveg þrotið. Þeir
áttu oft í erfiðleikum á blautu gervi-
grasinu. Andri skoraði fjögur mörk í
fyrri hálfleiknum, Björn Bjartmars,
Jón Bjarni Guðmundsson og Elias
Guðmundsson, vítaspyrna, eitt hver.
Þó Víkingar lékju gegn vindinum í
síðari hálfleik hafði liðið mikla yfir-
Eitt skot,
eitt færi
- og Njarðvík sigraði
Frá Önnu Garðarsdóttur, frétta-
manni DV ó Húsavík:
Það voru hreint furðuleg úrslit í leik
Völsungs og Njarðvíkur í 2. deild hér
á Húsavík á föstudagskvöld. Völsung-
ur sótti nær lótlaust allan leikinn -
leikmenn liðsins fengu fjölmörg tæki-
færi til að skora en inn í mark
Njarðvíkinga vildi knötturinn ekki
fyrr en rétt undir lokin. Oft var það
klaufaskapur hjá leikmönnum Völs-
ungs en markvörður Njarðvíkinga,
Sævar Júlíusson, var þeim einnig mjög
erfiður. Átti stórleik í markinu.
Hins vegar áttu Njarðvíkingar eitt
færi í leiknum og að auki eitt skot.
Hvort tveggja gekk upp. Tvö mörk.
Jón Ólafsson skoraði fyrra mark
Njarðvíkinga í fyrri hólfleik. Á 57.
mín. kom Haukur Jóhannsson Njarð-
víkingum í 0-2. Þrátt fyrir einstefhuna
ó malarvellinum tókst Húsvíkingum
ekki að skora fyrr en á 80. mín. Þá
kom Jónas Hallgrímsson knettinum í
markið, 1-2, en ekki tókst heima-
mönnum að jafiia þó þeir væru allir
af vilja gerðir. Völsungur missti þama
því dýrmæt stig í 2. deildinni og það
á heldur óvenjulegan hátt.
hsim
„Þeir voru
erfiðir"
Pólland sigraði
„Eg er mjög ánægður með sigurinn,
Portúgalar eru mjög erfiðir mótherjar.
Nú höfum við 3 stig en við munum
ekki leika upp á jafhtefli við Eng-
land,“ sagði Antoni Piechniczek,
þjálfai-i Póllands, eftir 1-0 sigur á Port-
úgal í F-riðli HM á laugardag. Wlodz-
mierz Smolarek skoraði eina mark
leiksins á 68. mín.
„Lið mitt lék eins vel og hægt er að
ætlast til við þessar aðstæður. Við vor-
um talsvert óheppnir að skora ekki i
siðari hálfleik. Það er útilokáð að spá
nokkru um hver úrslit verða í þessum
erfiða riðli. Nú þurfum við að fara til
Guadalajara til að leika við Marokkó-
menn. Það verður erfiður leikur. Þeir
hafa sýnt að þeir eiga góðu liði á að
skipa,“ sagði Jose Torres, þjálfari
Portúgal. Fréttamenn skrifa að leikur-
inn hafi verið mjög slakur.
hsím
burði sem áður. Andri skoraði þá tvö
mörk til viðbótar, sex í allt, og Víking-
ar fengu tækifæri til að auka mjög
markatöluna. Misnotuðu hins vegar á
stundum færi auk þess sem markvörð-
ur Skallagríms varði oft mjög vel. Var
áberandi besti maður liðs síns þrátt
fyrir mörkin níu. Víkingar sýndu oft
nettan leik með Andra fremstan i
flokki þrátt fyrir veðurhaminn. Borg-
nesingar hins vegar afar slakir -
Skallagrimur áberandi lakasta liðið í
2. deild.
hsim
Andri Marteinsson, lengst til hægri, skorar eitt af sex mörkum sinum á laugardag með þrumufleyg utan vítateigs.
ÐV-mynd HS.
Fegrunarnefnd Reykjavíkur
FEGRUNARVIKA
I REYKJAVIK 7.-15. HM