Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Page 30
30
DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Staða forstöðumanns við dagheimilið Bakkaborg við
Blöndubakka.
Umsóknarfrestur til 15. júní.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri og umsjónar-
fóstrur í síma 27277.
Fóstrustöður á dagheimilið og leikskólann Hraunborg,
Hraunbergi 10.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 79770.
Umsóknarfrestur til 24. júní.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð.
LAUSAR SIÖDUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
HEILSUGÆSLUSTÖÐ REYKJAVÍKUR
Deildarmeinatæknir í fullt starf á rannsóknarstofu
Heilsuverndarstöðvarinnar. Hlutastörf koma til greina.
Bókasafnsfræðing í hálft starf við bókasafn Heilsu-
verndarstöðvarinnar.
Ljósmóðir til afleysinga á mæðradeild.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri heilsugæslu-
stöðva í síma 22400.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum
umsóknareyðublöðum sem þar fást fyrir kl. 16.00
föstudaginn 13. júní.
ÚTIVISTARVIKA
Á vegum skátafélagsins Skjöldunga fyrir börn
á aldrinum 8-12 ára.
1. námskeið 2. júní - 6. júní.
2. námskeið 9. júní - 13. júní.
3. námskeið 16. júní - 20. júní.
4. námskeið 23. júní - 27. júní.
5. námskeið 30. júní - 4. júlí.
6. námskeið 7. júlí - 11. júlí.
7. námskeið 14. júlí - 18. júlí.
8. námskeið 21. júlí - 25. júli.
9. námskeið 11. ágúst - 15. ágúst.
10. námskeið 18. ágúst - 22. ágúst.
Námskeiðin standa frá kl. 10-16 og hægt er að leita
allra upplýsinga og innrita á sama tíma í síma 686802
allan námskeiðstímann.
Skátafélagið Skjöldungar, Sólheimum 21 a.
ILAUSAR S1ÖÐUR HJÁ
_____I REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
1. Fóstrur athugið!
Á dagheimilið Suðurborg við Suðurhóla vantar
fóstrur nú þegar eða í haust. Boðið er upp á mjög
góða vinnuaðstöðu bæði hvað varðar almennt
uppeldislegt starf og séraðstoð.
Upplýsingar gefur forstöðumaður á staðnum eða
í síma 73023.
2. Á leikskólann.
Árborg, Hlaðbæ 17, vantar fóstrur við almenn
uppeldisstörf og fóstrur eða þroskaþjálfa til að
sinna börnum með sérþarfir, hálft starf.
Upplýsingar gefa forstöðumenn á staðnum eða í
síma 84150.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum
umsóknareyðublöðum sem þar fást fyrir kl. 16.00
mánudaginn 16. júní.
Þau eru glæsileg verðlaunin sem i boði eru í Ökuleikni sumarsins. i reiðhjólakeppninni eru það tvö gullfalleg
DBS reiðhjól sem Fálkinn hf. gefur og í bílakeppninni er það splunkunýr Mazda 626 árgerð 1987, sem Mazda-
umboðið Bilaborg mun gefa þeim keppanda er aka mun villulaust þrautaplanið i úrslitakeppninni. Frá vinstri eru
Kristinn Breiðfjörð, fulltrúi Bílaborgar, Guðmundur Gunnarsson frá Fálkanum og Einar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Ökuleikninnar.
Ökuleikni BFÖ - DV
Ökuleiknin að hefjast
- hefst með pressukeppni á þriðjudaginn
Bindindisfélag ökumanna og DV
munu i sumar, eins og undanfarin
sumur, vera með keppni í ökuleikni
víðs vegar um landið.
I fyrra var metár í 8 ára sögu Oku-
leikninnar. Þá voru keppendur
rúmlega 600 og hafa því 2100 öku-
menn tekið þátt í ökuleikni frá
upphafi.
Nokkur fjölgun verður á keppnis-
stöðum í ár. Keppt verður á 33
stöðum um landið að íslandsmeist-
arakeppninni meðtalinni. f öku-
leikninni verður keppt í karlariðli
og kvennariðli og munu sigurvegar-
ar í hvorum riðli komast í úrslit.
Auk þess verður á hverjum stað
einnig reiðhjólakeppni o'g keppt þar
í tveim riðlum, annars vegar á aldr-
inum 9-11 ára og hins vegar á
aldrinum 12 ára og eldri.
Bindindisfélag ökumanna og DV
hafa fengið til liðs við sig í ökuleikn-
inni Mazda umboðið Bílaborg hf.,
sem mun gefa vegleg verðlaun í fs-
landsmeistarakeppninni, Mazda 626
árg. 1987. Einnig mun umboðið lána
bíla til úrslitakeppninnar, ásamt því
að styðja keppnina fjárhagslega. f
reiðhjólakeppninni fengu BFÖ og
DV hins vegar reiðhjólaverslunina
Fálkann hf. til liðs við sig. Mun
Fálkinn meðal annars gefa öll verð-
laun í hverri hinna 32 keppna og auk
þess gefa tvö gullfalleg reiðhjóf sem
tveir heppnir keppendur fá í haust
en allir keppendur i reiðhjólakeppn-
inni fá happdrættismiða. Úr þeim
verður dregið og hljóta tveir kepp-
endur reiðhjólin. Þá lét Fálkinn hf.
í té reiðhjól sem notað verður við
reiðhjólakeppnina í sumar.
Ökuleiknin mun fara af stað
þriðjudaginn 10. júní við Hús versl-
unarinnar í Reykjavík kl. 20.00 og
verður sú keppni svokölluð p'ressu-
keppni, en þar mæta fulltrúar allra
fjölmiðlanna og spreyta sig.
Formlega hefst Ökuleiknin í
Reykjavík laugardaginn 14. júní nk.
kl. 14, einnig við Hús verslunarinnar
og þar gefst mönnum kostur á að
reyna sig. Ökuleiknin byggist á
tveimur þáttum aðallega, annars
vegar á umferðarspumingum og
hins vegar á þrautaakstri þar sem
hæfhin skiptir máli en hraðinn ekki.
Allir er hafa ökuleyfi og skoðunar-
hæfan bíl geta tekið þátt í keppninni
gegn vægu þátttökugjaldi og ekki
er nein hætta á að bílar skemmist í
keppninni.
Miðvikudaginn 18. júní hefst
hringferð Ökuleikninnar og verður
byrjað á því að fara-austur um og
keppt á Hellu. Auglýsingar verða
hengdar upp á hverjum stað þegar
þar að kemur. Einnig mun DV segja
jafhóðum frá keppnisstöðum í sumar
og greina frá úrslitum hverrar
keppni og birta myndir og viðtöl við
keppendur.
Sigurvegarar úr hvorum riðli
munu fara í úrslitakeppnina þann
6. september næstkomandi og eins
og fyrr sagði verða vegleg verðlaun.
Sigurvegarar fá utanlandsferð með
Amarflugi auk bikarverðlauna. Sá
er aka mun villulaust í gegnum
þrautaplanið f keppninni hlýtur
Mazda bílinn að launum sem Mazda
umboðið Bílaborg gefur til keppn-
innar.
Nokkrir nýir staðir verða heim-
sóttir í sumar með ökuleikni. Má það
meðal annars nefna Vopnafjörð,
Fáskrúðsfjörð, Hólmavík, Flateyri
og Þorlákshöfh. Nánar um það í DV
þegar nær dregur.
EG
Hólmadrangur i heimahöfn á Hólmavík. Skipinu var breytt nýlega. Slippstööv-
ar sögðu að verkið tæki 6-8 vikur. Hólmvíkingar sögðu nei við þvi og breyttu
skipinu sjálfir á þrem vikum. Harkan sex!
Sögðu þvert nei
við átta vikum
„Kubburinn" á
Hólmavík
Flugstöðin á Hólmavík er kubbsleg
bygging í meira lagi, en hún gerir sitt
gagn. Flugið gegnir stóru hlutverki á
Hólmavík. Amarflug flýgur þangað
tvisvar i viku, með stans á Gjögri.
Annars er það af flugvellinum á
Hólmavík að segja að hann er rétt við
afleggjarann að bænum. Brautin er
um 800 metrar og á hvorum enda eru
100 metrar malbikaðir til að loftfórin
geti spymt sér vel af stað.
Sjálf er hin kubbslega flugstöð 8
ára. 1 henni er einmitt þessa dagana
verið að bæta aðstöðuna fyrir farþega.
Gott verk það.
Ekki Heathrow, heldur flugstöðin á
Hólmavik. DV-mynd JGH
Nokkrar breytingar hafa verið gerð-
ar á hinum landsfræga togara,
Hólmadrangi frá Hólmavík. Skemmti-
leg saga er á bak við verkið. Þegar
Hólmvíkingar buðu það út bámst til-
boð frá nokkrum skipasmíðastöðvum
sem sögðu að ekki tæki minna en 6-8
vikur að breyta skipinu.
Það sættu heimamenn sig ekki við,
fannst það of langt stopp fyrir aflaskip-
ið. Þeir tóku sig því til sjálfir og luku
verkinu á þremur vikum í stað sex.
Breytingamar á Hólmadrangi fólust
í því að bætt var frystitækjum í skipið
auk þess sem vinnurými á dekki var
stækkað.
Reyndar er það um útgerð á Hólma-
vík að segja að þaðan em gerðir út
11 bátar sem allir veiða djúprækju en
trillumar em á grásleppuveiðum. Svo
er það sjálfur kóngurinn, Hólma-
drangur. JGH/Ákureyri