Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Qupperneq 31
DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986.
31
t
Sandkorn Sandkorn
Aldrei eins mörg börn fæðst á
Skagaströnd og eftir hvatn-
ingu sveitarstjóra.
Sigfús hleypur
Sigfús Jónsson, hlaupari
með meiru, hefur verið ráð-
inn bæjarstjóri á Akureyri.
Nú óttast gúrungarnir næst
að hann hlaupi frá störfum
á miðju kjörtímabili. Ann-
ars er það um Sigfús að
segja að sem sveitarstjóri á
Skagaströnd hvatti hann
þar til barneigna með þeim
árangri að árið eftir hafa
aldrei fæðst eins mörg börn
á Skagaströnd. Nú veðja
líka margir á að stjórinn
ætli að láta hleypa til á
Akureyri.
Meira um
bolta
Mörgum hér á Akureyri
finnst það koma spánskt
fyrir sjónir að helsti sér-
fræðingur útvarpsins á HM
í Mexikó, Kristinn R. Ólafs-
son, er staddur í Madrid á
Spáni. Þaðan sagði hann
nokkuð frá því t.d. hvernig
Danir unnu Skota en auð-
vitað sáu íslendingar leik-
inn beint eins og Kristinn.
Sniðugir hjá útvarpinu.
Á bílasölu
Nú hafa um 400 nýir bílar
verið keyptir til Akureyrar
eftir að bíla- og
myndbandakjarasamning-
urinn var gerður í lok
febrúar. Mikið fjör er líka
hjá bílasölum þessa dagana
á Akureyri. Á einni heyrð-
ist þessi: „Góðan daginn,
ég er að hugsa um Benzinn
þarna, en það er með út-
borgunina, takið þið Kjarv-
al uppí?“
„Álveg sjálfsagt, hvað er
hann mikið keyrður?"
Heimfari setti
met
Heimfari, þota Flugleiða,
setti hraðamet á leið sinni
frá f slandi til London í sið-
ustu viku. Menn eru ekki
par hissa, þotan var auðvit-
að að flýja svæði íslenskra
flugumferðarstjóra þar
sem allt er nú upp í háaloft.
Mývetningar
rífast
Arnaldur Bjarnason,
sveitarstjóri í Mývatns-
sveit, er að hætta og flytja
í burtu frá Mývatnssveit.
Við Víkurblaðið ræðir hann
um ágreining í sveitinni.
„Þó hefur maður ætlað
að slíkur ágreiningur ætti
að hverfa smám saman
enda er atvinnurekstur hér
vegna kísiliðjunnar nær-
fellt orðinn tuttugu ára.
Maður gæti ætlast til þess
að á svo löngum tíma gætu
menn farið að minnsta
kosti að þola hver annan,
það virðist vera eitthvað
vont með að svo verði.“
Það hafa greinilega fleiri
en mýið suðað við Mývatn
sl. tuttugu ár.
Knattspyrnudómarar hafa nóg
að gera þessa dagana.
Bolti '86
Nú er líf í tuskunum í
heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu í Mexíkó.
Kynlíf Belga hefur komist í
fréttirnar. í Morgunblað-
inu er sagt frá því að
leikmennirnir megi ekki
njóta hlýju kvenna sinna
meðan á keppninni stendur
og verði þeir staðnir að
verki verði þeir sendir
heim. Fróðlegt þetta með
„staðnirað verki“. Örugg-
lega erfitt í framkvæmd en
vonandi stendur ekki á eft-
irlitsmönnunum.
Er ríki á Húsa-
vík?
f skoðanakönnun Víkur-
blaðsins voru tæp 54%
þeirra sem tóku afstöðu
með opnun áfengisútsölu á
Húsavík. Nú er rætt um að
ef af verði fái ríkið inni í
hinni nýju flugstöð Húsa-
víkur en þar flaut ráðherra-
vín Matta Bjarna
samgönguráðherra um allt
við opnun stöðvarinnar fyr-
ir skömmu. Trúlega er
vínið hans Þorsteins Páls-
sonar þó dýrara en hans
Matta.
Þarf ég
gleraugu?
„Þarf ég gleraugu?“
„Já, kona góð, þér þurfið
á gleraugum að halda,“
sagði læknir við konu á
Akureyri.
„Hvernig geturðu fullyrt
það án þess að skoða í mér
augun?" sagði konan.
„Nú, það er einfalt, þú
komst inn um gluggann.“
Svart gras
„Hér er farið að grænka,
en ekki hægt að segja að
gróður sé kominn neitt
áleiðis. Hefurhonum ekki
farið fram í heilan mánuð,“
sagði Stefán Skaftason,
ráðunautur um gróður í
Þingeyjarsýslum, í blaða-
viðtali fyrir helgina. Og
síðar: „Hins vegar höfum
við séð þetta svartara."
Ætli grasafræðingurinn
Stefán eigi við sinubruna?
Umsjón
Jón G. Hauksson.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 163. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 og 2. og 5. tölu-
blaði þess 1986 á eigninni Unnarbraut 32, e.h., Seltjarnamesi, þingl. eign
Antons Sigurðssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka islands á
eigninni sjálfri fimmtudaginn 12. júní 1986 kl. 16.30.
Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Hofslundi 17, Garðakaupstað, þingl. eign Krist-
ins N. Þórhallssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 12. júní 1986
kl. 15.30.
Bæjarfógetinn í Garðakaupstað.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Blómvangi 9, Hafnarfirði, þingl. eign Guðrúnar
Benediktsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 12. júní 1986 kl.
15.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 36., 39. og 43. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eign-
inni Tjarnarbraut 9, Hafnarfirði, þingl. eign Sigríðar Þorsteinsdóttur o.fl., fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Hafnarfirði og Veðdeildar Landsbanka ís-
lands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 12. júní 1986 kl. 14.15.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 36., 39. og 43. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eign-
inni Köldukinn 6, e.h., Hafnarfirði, þingl. eign Snorra P. Snorrasonar og
Helgu Þórarinsdóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Hafnarfirði, Guð-
jóns Steingrímssonar hrl. og Veðdeildar Landsbanka íslands á eigninni sjálfri
fimmtudaginn 12. júní 1986 kl. 13.45.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 36., 39. og 43. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eign-
inni Bröttukinn 8, Hafnarfirði, þingl. eign Eðvalds Marelssonar, fer fram eftir
kröfu Guðmundar Jónssonar hdl„ Eggerts B. Ólafssonar hdl. og Arnmundar
Backman hrl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 12. júní 1986 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Sparisjóður Reykjavíkurog nágrennis
Fyrir þig og þína
ASEA CYLIIMDA
Þvottavélar og þurrkarar
...eins og hlutirnir gerast bestir:
Árangur náinnar samvinnu sænsku neytendastofnunarinnar KONSUMENTVERKET,
textilrannsóknastofnunarinnar TEFO og tæknirisans ASEA. Nýsköpun sem fær hæstu
einkunnir á upplýstasta og kröfuharðasta markaði heims fyrir árangur, taumeðferð
og rekstrarhagkvæmni.
ASEA CYLINDA tauþurrkari
Skynjar sjálfur hvenær tauið er þurrt, en
þú getur líka stillt á tíma.
114 lítra tromla, sú stærsta á markaðin-
um. Það þarf nefhilega 2,5 sinnum stærri
tromlu til að þurrka í en til að þvo í.
Tekur því úr þvottavélinni í einu lagi.
Mikið tromlurými og kröftugt útsog í
stað innblásturs stytta þurrktíma, spara
rafmagn og leyfa allt að 8m barka.
Neytendarannsóknir sýna að tauið slitnar
ekki né hleypur í þurrkaranum, heldur
losnar aðeins um lóna af notkunarslitinu.
Það er kostur, ekki síst fyrir ofnæmisfólk.
Sparar tíma, snúrupláss og strauningu.
Tauið verður mjúkt, þjált og slétt, og æ
fleiri efni eru gerð fyrir þurrkara.
Getur staðið á gólfi eða ofan á þvottavél-
inni.
ASEA CYLINDA þvottavélar
Þvo best, skola best, vinda best, fara best
með tauið, nota minnst rafmagn.
Vottorð upp á það.
Gerðartil að endast, og í búðinni bjóðum
við þér að skyggnast undir glæsilegt
yfirborðið, því þar er ekki síður að finna
muninn sem máli skiptir: trausta og
stöðuga undirstöðu, vöggu á dempurum
í stað gormaupphengju, ekta sænskt
ryðfrítt krómnikkelstál, SKF-kúlulegur á
35 mm öxli, jafnvægisklossa úr járni í
stað sandpoka eða brothætts steins o.fl.
Athyglisverð er líka 5-laga ryð-og rispu-
vörn, hosulaus taulúga, hreinsilúga,
grófsía, sápusparnaðarkerfi með lyktar-
og hljóðgildru, stjórnkerfi með framtíð-
arsýn og fjölhraða lotuvinding upp í
1100 snúninga.
ASEA CYLINDA er nú eini framleiðandi heimilisþvottavéla á Norðurlöndum.
Með stóraukinni framleiðslu og tollalækkun er verðið hagstætt. Og vist er.
betri endingar.
iFOnix
%
HÁTÚNI 6A SÍMI (91)24420