Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Síða 40
40 DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986. SeHoss: Bæjarstjóra- stóllinn heitur Stóll bæjarstjóra á Selfossi er heitur í að minnsta kosti tvennum skilningi um þessar mundir. Framsóknarflokk- urinn setur á oddinn í meirihlutavið- ræðum að Stefán Ómar Jónsson vermi stólinn áfram. Viðsemjendurnir, Al- þýðuflokkur, Kvennalisti og Alþýðu- bandalag, vilja auglýsa starfið laust. Þetta er verulegt hitamál, bréf hafa gengið um málið milli aðila og er all- sendis óvíst hvemig því lyktar. -HERB Egilsstaðir: Nýr meirihluti Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Alþýðu- bandalags og Óháðra á Egilsstöðum hafa komist að samkomulagi um myndun meirihluta í hreppsnefnd. Sig- urjón Bjamason, fulltrúi Alþýðu- bandalags, taldi líklegt að núverandi sveitarstjóri, Sigurður Símonarson, yrði endurráðinn. Samkomulag um myndun meirihluta á eftir að bera upp á fundum í þeim félögum sem að því standa. Framsóknarmenn vom ráðandi afl í hreppsnefhd síðasta kjörtímabil án þess þó að hafa meirihluta. ás. Hafnarfjörður: Guðmundur Ámi fékk stólinn A-flokkamir í Hafnai-firði hafa gengið frá meirihlutasamstarfi eins og við var búist. Alþýðuflokkurinn leggur til fimm fulltrúa og Alþýðubandalagið einn í ellefú manna bæjarstjóm. Þegar ný bæjarstjóm tekur við, um næstu helgi væntanlega, verður Guðmundur Árni Stefánsson, efeti maður Alþýðu- flokksins, bæjarstjóri. -HERB Borgames: A-flokkar og Óháðir í stjóm „Þetta smalll saman um helgina," sagði Eyjólfur Torfí Geirsson, fulltrúi Alþýðuflokks, en Alþýðuflokkur, Al- þýðubandalag og Óháðir komust að samkomulagi um myndun meirihluta í Borgamesi. Alþýðuflokkur og Óháðir unnu báðir mann af ríkisstjómarflokkunum í kosningunum og mynda nú meirihluta í stað þeirra, ásamt Alþýðubandalagi. Líklegt er talið að Gísli Karlsson verði áfram sveitarstjóri. ás Ásdís Þorsteinsdóttir lést 1. júni sl. Hún fæddist 6. júlí 1910. Foreldrar hennar voru Kristín Eyjólfsdóttir og Þorsteinn Ólafsson. Eftirlifandi eig- inmaður hennar er Hannes Pálsson. Þeim hjónum varð þriggja bama auðið. Utför Ásdísar verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag kl. 15. Halldór Árnason, Birkivöllum 1, Sel- fossi, lést að morgni 5. júní. Elí Ingvarsson frá Isafirði, vistmaður á Hrafnistu í Reykjavík, andaðist 4. júní í Landspítalanum. Jarðarförin fer fram miðvikudaginn 11. júní kl. 13.30 í Fossvogskapellu. Brynjar Guðmundsson, Selvogsgötu 7, Hafnarfirði, lést í St. Jósefespítala 4. júní. Sigurrós Eyjólfsdóttir Laramy frá Laxnesi lést 29. maí sl. í Niles, Mic- higan, USA. Ásrún Þórhallsdóttir frá Möðmvöll- um í Hörgárdal er látin. Útför Sigríðar Ólafsdóttur frá Gests- húsum fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 10. júní kl. 13.30. Guðbjörg Árnadóttir frá Kolsholti, Litlagerði 14, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 11. júní kl. 13.30. Útför Jóns Ólafssonar frá Mýrar- húsum, Akranesi, verður frá Foss- vogskapellu þriðjudaginn 10. júní kl. 15. Páll Þorláksson, lögg. rafverktaki, Fífuhvammsvegi 39, Kópavogi, verð- ur jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 10. júní kl. 13.30. Kristinn Einarsson kaupmaður, Laugavegi 25, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudag- inn 10. júní kl. 15. Tilkynningar Húsmæðrafélag Reykjavíkur Sumarferðin verður farin sunnudag- inn 15. júní. Farið verður um Borgarfjarðardali. Nánari upplýs- ingar í síma 23630. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir miðviku- dagskvöld. Flóamarkaður Mæðrastyrks- nefndar verður haldinn í dag, mánudag, í Garðastræti 3. Opið frá kl. 14-17. Flóamarkaður í Hjálpræðis- hernum Flóamarkaður í sal Hjálpræðishers- ins þriðjudaginn 10. og miðvikudag- inn 11. júní. Opið frá kl. 10-12 og 14-17. Mikið úrval afgóðum fatnaði. Jón G. Sólnes látinn Jón G. Sólnes, íyrrum alþingis- maður, varð bráðkvaddur á heinúli sínu á Akureyri á tíunda tímanum í gærmorgun, 75 ára að aldri. Jón fæddist 30. september 1910 á Isafirði. Hann var bankastjóri Landsbankans á Akureyri frá 1961-1976. Hann var alþingismaður frá 1974-1979. Enginn hefur setið lengur í bæjarstjóm Akureyrar en Jón G. Sólnes. Hann var bæjarfull- trúi í 36 ár, fyrst frá 1946-1978 og síðan frá 1982-1986. Jón kvæntist Ingu konu sinni 30. maí 1936 og héldu þau því upp á gullbrúðkaup sitt á dögunum. Böm þeirra em fimm. JGH/Akureyri Útvarp___________________Sjónvarp Margrét S. Bjömsdóttir þjóðfélagsfræðingur Lofsverðar útsendingar frá Listahátíð Ég fylgdist með öðm auganu með sjónvarpinu um helgina, sá þó bæði tónleika Herbie Hancocks í sjón- varpinu á laugardaginn og beina útsendingu frá tónleikum Dave Bmbecks í gær. Mér finnst þetta lofevert framtak að sýna svona mik- ið frá Listahátíð á meðan hún stendur yfir, bæði fyrir fólk úti á landi, sem kemst ekki til að sjá þetta, og líka fyrir þá sem ekki hafa efni á því. Mér finnst nefiiilega fyrir- komulag miðasölu á þessum tónleik- um í Broadway alveg fáránlegt og fólk ætti ekki að láta bjóða sér upp á þetta. Ég sá laugardagsmyndina, Kjam- orkuslys, og fannst hún mjög góð. Hún kemur líka á réttum tíma, í ljósi þess sem gerðist í Chemobyl í Sovét- ríkjunum fyrir nokkm. Þarna gætti greinilega sömu tilhneigingar og hjá Rússunum að halda atburðum leyndum fyrir almenningi með öllum ráðum og gera sem minnst úr at- burði sem nálgast það að vera stórslys. Mér finnst sjónvarpið annars vera alveg ágætt á heildina litið, t.d. hef ég dvalist mikið í Noregi og Svíþjóð á undanfömum árum og miðað við sjónvarpið þar í löndum er sjón- varpið hér hreinlega miklu betra, þótt við höfum aðeins eina rás. Hins vegar verð ég að segja að t.d. fréttaflutningur héma er töluvert betri í útvarpinu, það er farið dýpra ofan í málefhin og betri heildarmynd gefin. Mér finnst þeir alltaf keppast við að vera sem stuttaralegastir og láta hlutina ganga sem hraðast í sjónvarpsfréttum. Rás 2 finnst mér alveg kjörin til að hlusta á í bílnum og við heimilis- verkin, þama inni á milli em ágætisþættir og rásin stendur alveg undir sér sem tónlistarrás til afþrey- ingar. Rás 1 stendur líka vel undir nafiii, bara á annan hátt. Ég held að ég sé nokkuð ánægð með báðar rásir, þær em góðar hvor á sinn veg. -BTH Sjóniiiniiadagsbiad Neskaupsíaðár 1986 í Sjómannadagsblað Neskaup- staðar er komið út í 9 sinn. Meðal efnis í blaðinu er grein um mótorbáta og slagsmál, upphaf útróðra Færeyinga við ísland, íslenska sumargotssíldin, ágrip af sögu netagerðar á Norðfirði og margt fleira. Blaðið er 136 bls. að stærð og gefur Sjómannadagsráð Neskaupstaðar það út. Ritstjóri er Smári Geirsson og í ritnefnd eru Guðjón Marteinsson, Ragnar Sig- urðsson og Magni Kristjánsson. LAUF-BLAÐIB nif=rTA iHi K\NNIN<ÍAHRn i \\!V.M X \K \ ÁHl ti.vB.rf RS > » Huí AVHKt Lauf-blaöiö 3. árgangur af frétta- og kynningar- ritinu Lauf-blaðinu er komið út. Landssamtök áhugafólks um floga- veiki gefa ritið út. f formála segir: Tilgangurinn með útgáfu þessa Laufs-blaðs er að auka skilning flogaveikra og ekki síður almennings á flogaveiki þar sem vitað er að mik- ils misskilnings gætir um eðli hennar. f blaðinu eru greinar um ýmsa þætti þar að lútandi, skráðar bæði af leikum og lærðum. að villtar plöntur og dýr eru arfleifð náttúrunnar, fegurð- arverðmæti með vísindalegt, menningarlegt og efnahags- legt gildi, til nota fyrir tómstundaiðkun og með gildi í sjálfu sér, sem nauðsyn ber til að halda við og afhenda komandi kynslóðum, viðurkenna nauðsynlegt hlutverk villtra plantna og dýra til að viðhalda lífrænu jafnvægi í náttúrunni, taka tillit til þess að stofn margra villtra plöntu- og dýrategunda minnkar ' ískyggilega og sumar þeirra eru í útrýmingarhættu, gera sér grein fyrir því að verndun lífsvæða er snar þáttur í friðun og vemdun villtra plantna og dýra. Því skorar fundurinn á stjórnvöld að draga ekki lengur að staðfesta samning þennan fyrir hönd íslands. Fundurinn fagnar setningu reglu- gerðar um búrhænsni og bendir jafnframt á að engin reglugerð er um aðbúnað svína hér á landi. Setning reglugerðar, er tryggi rétta umhirðu og aðbúnað svína hér á landi, er orð- in knýjandi nauðsyn og því beinir fundurinn því til stjórnvalda að setn- ingu slíkrar reglugerðar verði hraðað eftir föngum. Fundurinn skorar á yfirvöld að loka Sædýrasafninu við Hafnarfjörð án tafar þvi það er álit fundarins að reynsla undanfarinna ára sýni að enginn rekstrargrundvöllur er fyrir starfsemi þess og ekki hefur tekist að fá aðbúnað dýranna færðan í við- unandi ástand þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir bæði dýraverndunarmanna og yfirvalda. Fundurinn beinir þeim tilmælum til yfirvalda að þegar í stað verði skipuð nefnd til þess að endurskoða öll þau lög er fjalla á afdráttarlausan hátt um eyðingu og útrýmingu dýra- og fuglategunda og að þau ákvæði verði felld niður eða rýmkuð eftir því sem tilefni gefst til. Fundurinn telur að það samrýmist ekki vísindalegri þekkingu á villtum dýrum að ráðast að þeim af svo mikilli óbilgrini. Á hverju hausti koma upp vanda- mál vegna hálfstálpaðra kettlinga sem teknir hafa verið þegar flutt er í sumarbústaðinn að vori en síðan skildir eftir þegar haustar og og fólk heldur heim á ný. Það er því miður enn útbreidd trú að kettir bjargi sér við flestar aðstæður. Þetta er mikill misskilningur. Köttur, sem fær að kynnast hlýju og nærgætni og reglu- legum matmálstímum, er alls ekki undir það búinn að bjarga sér einn í náttúru landsins og þá enn síður þegar haustar að. Því beinir fundur- inn þeim eindregnu tilmælum til sumarbústaðaeigenda að þeir fái sér ekki kettling til þess eins að hafa hann fyrir sumargaman. 58% frá árinu á undan. Samtals voru gefnir út 59 titlar á árinu. Tveir nýir klúbbar voru stofnaðir á árinu, Ljóðaklúbbur AB og Plötu- klúbbur AB. Fyrir voru Bókaklúbbur AB sem gaf út 11 bókatitla á árinu og Matreiðslubókaklúbbur AB sem sendi út 10 matreiðslubækur. Félagafjöldi þessara Ijögurra klúbba er samanlagt 27 þúsund. Af nýjum bókum voru samtals geíhir út árið 1985 42 bókatitlar, þar af voru 23 í þókaklúbbunum, fyrir fé- lagsmenn eingöngu, og 19 fyrir almennan markað. Endurútgefnar voru 17 bækur. Bækur á almennum markaði seldust betur en árið áður. 1 bókaklúbbnum var sl. ár hafin útgáfa á nýrri ritröð, Sögu mann- kyns, og komu út af henni 3 bindi á árinu. Hefur sala hennar gengið mjög vel og fer kaupendum fjölgandi. I stjórn Almenna bókafélagsins voru kjörnir: Baldvin Tryggvason sparisjóðsstjóri, formaður, og með- stjórnendur þeir Davíð Oddsson borgarstjóri, Davíð Ólafsson seðla- bankastjóri, Erlendur Einarsson forstjóri, Gylfi Þ. Gíslason prófessor, Halldór Halldórsson prófessor og Jón Skaftason yfirborgarfógeti. Dúddi týndur Heimiliskötturinn að Ásgarði 23 er búinn að vera týndur í 9 daga. Hann er geltur og eyrnamerktur R-5061 og hann gegnir nafninu Dúddi. Ef ein- hver getur gefið upplýsingar um hann þá er síminn 31947. Fundar- launum heitið. Óbreytt á j* ■ mm m ■ - Þorvaldur áfram bæjarstjóri Aðalfundir Aðalfundur Sambands dýraverndun- arfélaga Islands, sem nýlega var haldinn í Reykjavík, sendir frá sér eftirfarandi ályktanir: Island mun nú vera eina Norður- landaríkið sem ekki hefur undirritað samning um verndun villtra plantna og dýra og lífsvæða er aðildarríki Evrópuráðsins gerðu með sér í Bern árið 1979. í formála samþykktarinnar segir m.a. að aðilar að samþykktinni geri sér ljóst Almenna bókafélagið Aðalfundur. Almenna bókafélagið hélt aðalfund sinn að Hótel Sögu miðvikudaginn 14. mars sl. í skýrslum formanns útgáfufélags- ins, Baldvins Tryggvasonar, og forstjóra þess, Kristjáns Jóhanns- sonar, kom fram að síðastliðið starfs- ár, 1985, var allgott. Hagnaður varð af heildarrekstri félagsins, kr. 2,6 milljónir. Heildarveltuaukning var Drög að málefnasamningi Sjálfetæð- isflokks og Framsóknarflokks á Seyðisfirði liggja nú fyrir. Nær fúllvíst er að flokkamir endumýi meirihluta- samstarf sitt, sem staðið hefúr liðið kjörtímabil, og endurráði Þorvald Jó- hannesson bæjarstjóra. Framsóknarflokkurinn hefúr þrjá bæjarfiilltrúa eins og áður en Sjálf- stæðisflokkurinn tvo en hafði þrjá. Saman hafa flokkamir því fimm af níu sætum í bæjarstjóm. -HERB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.