Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Side 44
44
DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986.
Sviðsljós____________Sviðsljós_____________Sviðsljós_____________Sviðsljós
Megrunarkúr!
Jafnvel þó fólk beri blátt blóð í
æðum neyðist það til að hlýða lög-
málum náttúrunnar og ganga í
gegnum súrt og sætt, rétt eins og við
hin. Þær fréttir berast nú frá breska
heimsveldinu að hjónaleysin Andrew
og Sarah séu of þung að mati klæð-
skera, siðameistara og annarra
mektarmanna innan hirðarinnar.
Því hefur Elísabet Englandsdrottn-
ing látið útbúa konunglegan megr-
unarkúr sem á að losa þau við 7 kg
hvort um sig fyrir stóra daginn, 6.
ágúst. Nú á að taka fyrir allt át á
kökum og gómsæti sem skolað hefur
verið niður með kampavíni, eðalvín-
um eða gosdrykkjum. Á boðstólum í
konungsgarði er nú aðeins útvalið
hollustufæði til að ástarfuglarnir
verði grannir og nettir þegar þeir
ganga upp að altarinu í Westminster
Ábbey. Sarah er 170 cm há og vegur
ein 59 kíló. Andrew er 183 cm og
vegur hvorki meira né minna en 85
kílógrömm.
Hann má aðeins láta ofan í sig 1500
kaioríur á dag en hún 1200. Hjóna-
efnanna bíður á næstunni fjöldinn
allur af samkvæmum og móttökum
þar sem borðin munu svigna undan
kræsingum en þau verða nú að
standast freistinguna. Sarah má í
mesta lagi drekka eitt glas af kampa-
vini (drekkur 4-5 nú) en Andrew
þarf að draga öldrykkju sína saman
úr fimm glösum í tvö. Og aðgát í mat
er ekki nóg að mati drottningarinn-
ar, móður Andrews. Þau skulu
skokka eins langt og hægt er á hverj-
um morgni. Hennar hátign trúir
nefnilega ekki gamia ráðinu, að hægt
sé að grennast af eintómri ást. Elísa-
bet veit sínu viti enda hafa bæði
hjónaefnin bætt við sig eftir að kynni
þeirra urðu nánari.
Ástin grennir þau vist ekki!
enduðum á fjölunum"
„Við fengum tvo karlmenn lánaóa í þessar sýningar en þeir eru bara til bráðabirgða og verður skilað aftur að
sýningum loknum,“ sögðu húsmæðurnar hressu frá Luxemburg. Leikritið Kammermúsík, sem hópurinn setti upp,
er svokallað absúrd leikrit og i hópnum má þekkja persónur eins og Jóhönnu af Örk, Gertrude Stein, Isabellu
Spánardrottningu o.fl.
„Byrjuðum með kúst í hönd,
Að tjaldabaki hjá leikklúbbnum Spuna
sem samanstendur af íslenskum húsmæðrum i Lux
„Við stofnuðum þennan myndar-
lega leiklistarklúbb fyrir 11 árum úti
í Luxemburg, allar íslenskar hús-
mæður búsettar þarna ytra. Síðan
höfum við haldið uppi Islendinga-
stuðinu í Lux,“ sagði hinn fríði
flokkur kvenna sem kallar sig leik-
klúbbinn Spuna en þær komu til
íslands í síðustu viku til þess að
halda sýningar á leikritinu Kammer-
músík eftir Arthur Lee Kopit í
Stúdentaleikhúsinu. Stykkið hafa
þær æft úti undir stjórn Andrésar
Sigurvinssonar.
„Á hvjerju einasta ári síðan við
byrjuðumj höfum við sett eitthvað
upp, bæði frumsamið og annað, m.a.
leikrit Péturs Gunnarssonar,
„Krókmakarabæinn," sagði Þórhild-
ur Hinriksdóttir, formaður klúbb-
sins. „Við höfum meira að segja tekið
leikþátt á Pompidou-torgi í París en
þatta er í fyrsta skipti sem við kom-
um til íslands sérstaklega til að
halda sýningar eftir strangar æfing-
ar úti.“
Eru eiginmennimir ekkert
áhyggjufuliir yfir öllum tímanum
sem fer í þetta hjá ykkur?
„Nei nei, þeir eru svo skilningsrík-
ir, þessi grey, og hafa stutt okkur
dyggilega, alveg frá því við fengum
hugmyndina, létum frá okkur kúst
og tuskur og enduðum á fjölunum.
Núna langar okkur helst til að koma
árlega til íslands með leiksýningar,
þessi fyrsta ferð okkar hingað í þeim
tilgangi hefur gengið eins og í sögu.“
„Ég heyri hreinlega ekkert nema málmhljóð," segir Pétur Valbergsson í
hlutverki iæknis þegar hann hlustar Þórhildi Hinriksdóttur, formann Spuna-
klúbbsins, í hiutverki Jóhönnu af Örk.
Sterkasti fingur
iheimi!
Það efa sjálfsagt fæstir að Tom Stensnes hafi sterkasta fingur í heimi.
Með löngutöng gerði hann sér lítið fyrir og lyfti 255,5 kg. Tom, sem
átti einnig gamla metið, segist hafa hafið fingraæfingar eftir að hann
tapaði fyrir föður sínum í krók fyrir níu árum. Hann fór í krók við
vinnufélaga sína hvenær sem færi gafst og lyfti lóðum með fingrinum.
Tom Stensnes hefur óbeit á uppbyggingu líkamans með lyfjum og seg-
ist hafa öðlast styrk sinn með erfiðisvinnu. Karlinn með kraftafingurinn
er nú á leið til Bandaríkjanna þar sem hann á að vera tákn fyrir norsk-
an kraft á vörusýningu.
Tom undirbýr heimsmetstilraunina.