Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Side 48
FRÉTTASKOTIÐ
62 25
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafir þú ábendingu eða
vitneskju um frétt -
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað i DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Futlrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
MÁNUDAGUR 9. JUNÍ 1986.
Miðstjóm Sjálfstæðisflokksins:
Skiptar skoð
anir um
kosningar
„Þama komu einnig fram gömu)
og ný sjónarmið. Sumir vilja kjósa
í haust, aðrir sitja út kjörtímabilið.
Hins vegar voru menn á einu móli
um að úrslit sveitarstjómarkosning-
anna gæfu ekki tilefni til kosninga
strax,“ sagði Friðrik Sophusson,
varaformaður Sjálfstajðisflokksins,
aðspurður um miðstjómarfund
tlokksins er haldinn var fyrir helgi.
Að sögn Ólafs G. Einarssonar, for-
manns þingflokks sjálfetæðismanna,
vom engar sérstakar tillögur um
haustkosningar bomar fram á mið-
stjórnarfundinum: „Mönnum hafa
auðvitað dottið í hug ýmsar tíma-
setningar á kosningum," sagði
Ólafur í samtali við DV. -EIR
Vestmannaeyjar:
Hjón drukknuðu
í Friðarhofn
Roskin hjón dmkknuðu í höfhinni
í Vestmannaeyjum er bifreið þeirra
ók þar út af bryggjusporði skömmu
fyrir hádegið í gær.
Atburður þessi átti sér stað í svo-
kallaðri Friðarhöfn. Hjónin vom þar
í sunnudagsbíltúr og keyrðu út á
bryggjuna sem er L-laga. Við endann
ó biyggjunni lá bátur og ekki mun-
aði nema metra að bíllinn lenti á
honum í fallinu.
Sjónarvottar vom að slysinu,
menn sem vom við vinnu í höíh-
inni. Þeir hlupu strax til og kölluðu
á aðstoð en allt kom fyrir ekki.
Strax var tekið til við að ná bílnum
upp úr höfhinni og tókst það von
bráðar. Ekki er vitað um ástæður
þess að bíllinn fór fram af bryggj-
unni en helst er talið að ökumaður-
inn hafi fengið aðsvif eða hjartaslag.
Atburður þessi setti mikinn svip á
hátíðahöldin í tilefni sjómannadags-
ins i Vestmannaeyjum og var flagg-
að í hálfa stöng í öllum bænum.
-FRI
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur i Reykjavík sem annars stað-
ar á landinu í gær. Margvísleg skemmtiatriði fóru fram í og við Reykja-
víkurhöfn og iðaði höfnin af lifi þegar mest var, smábátar sigldu um,
fallhlífar voru dregnar á eftir hraðbátum, gerðar voru björgunaræfingar
og var almenningi boðið i siglingu um sundin blá um borð i hvalbátun-
um. Eins og vera ber á sjómannadegi fór fram æsifjörugur kappróður
og tókst galvösku kvennaliðinu I Hraðfrystistöðinni i Reykjavík aö bera
sigur Úr býtum. -BTH/DV-mynd GVA
m m
Akranes:
Vinstri stjóm í burðariiðnum
„Viðræður standa enn yfir en þetta
er allt að smella saman og samkomu-
lag gæti legið fyrir á morgun," sagði
Ingibjörg Pólmadóttir, bæjarfulltrúi
Framsóknarflokks á Akranesi, í sam-
tali við DV.
Viðræðum Framsóknarflokks og
Alþýðubandalags lýkur að líkindum i
dag eða ó morgun og eru yfirgnæfandi
líkur á að samkomulag takist. Oddvit-
ar flokkanna reikna með að geta lagt
samkomulagið fyrir félagsfundi á mið-
vikudag. Ingimundi Sigurpálssyni,
núverandi bæjarstjóra, hefur verið
boðið að sitja áfram en hann hefur enn
ekki svarað því tilboði.
-ás
LOKI
Megi þjófarnir enn
vera sjóveikir!
Veðrið á morgun:
Skúrir
sunnan-
og austan-
lands
Á morgun verður fremur hæg aust-
læg átt um allt land, víðast gola eða
kaldi. Skúrir eða dálítil rigning á
sunnan- og austanverðu landinu en
að mestu þurrt norðanlands.
Hiti á landinu verður á bilinu 5-11
stig.
Dalvík:
DogGí
eina sæng
]ón G. Hauksson, DV, Akureyri:
Sjáifetæðismenn og alþýðu-
bnndalagsmonn á Dalvfk skrifuðu
í gærkvöld undir samkomulag um
myndun meirihluta bæjarstjómar.
Samþykkt hefur verið að augiýsa
eftir bæjarstjóra. Flokkamir ætla
svo að skipta með sér forsetastarfi
bæjarstjórnar eftir tímabilum.
A Húsavík em viðræður enn í
gangi milli alþýðuflokksmanna og
alþýðubandalagsmanna. Alþýðu-
bandalagið hefur jafiiframt skrifað
framsóknarmönnum bréf þar sem
þeim er boðið upp á viðrteður. Er
búist við að hinir síðamefndu komi
inn í myndina nú síðar í vikunni.
Neyðarsendi stolið:
Sendi út
niðurgraf-
inn við
Miklagarð
Brotist var inn í bát í slippnum
við Gelgjutanga og þaðan stolið
gúmmíbátshylki um helgina. Þeir-
sem stálu hylkinu bmtu það í
grjótinu þama fyrir neðan og tóku
úr því matar- og lyfjapakka auk
neyðarsendis.
Atburður þessi átti sér stað á
fostudag en eftir hádegið fór neyð-
arsendirinn í gang og tilkynntu
gervitungl og flugvélar i sífellu um
hann. Scnda þurfti á löft flugvél
Flugmálastjómar og miða sendinn
út en hann fannst svo grafinn und-
ir torf við Miklagarð.
Flugyfirvöld líta svona atburð
mjög alvarlegum augum enda fer
allt kerfið hjá þeim í gang er svona
kemur fyrir. Þeir sem bmtust inn
í bátinn vom aðallega á höttunum
eftir sjóveikitöflunum í gúmmí-
bátnum að talið er. -FRI