Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986. Utlönd Sérfræðinganefnd skipuð til lausnar ágreiningsefnum Samningamenn stórveldanna að stórfum í Höfða í alla nótt Reagan Bandaríkjaforseti og Gor- batsjov Sovétleiðtogi komu sér saman um skipan tveggja viðræðuneíhda er nánar skyldu útfæra ágreiningseíhi stórveldanna, eftir tvo viðræðufundi í gær, er samanlagt stóðu í tæpa íjóra klukkutímá. Sökum samkomulags um gagn- kvæmt fréttabann af því er fram fór á fundum leiðtoganna, eru upplýsingar um gang viðræðnanna af skomum skammti. Fréttaskýrendur líta almennt á þá ákvörðun að skipa viðræðunefndir til umræðu um ágreiningsmál sem já- kvæða og telja hana bera góðan vott um að leiðtogamir séu fúsir til samn- inga. Tvær nefndir skipaðar A fundi með fréttamönnum síðdegis í gær tilkynnti Larry Speakes talsmað- ur Hvíta hússins að samkomulag hefði orðið um skipan tveggja manna við- ræðunefnda Bandaríkjamanna og Sovétmanna er líta skyldu nánar á ágreiningsefoi ríkjanna. I fyrsta lagi nefndar er fjalla skal um afvopnunar- og öryggismál, en á þá málaflokka ér talið að Gorbatsjov leggi mikla áherslu, og hins vegar nefndar er fjalli um ágreiningsatriði ríkjanna á sviði mannréttindamála og staðbundinna mála. Formaður bandarísku afvopn- unamefndarinnar var i gær tilnefndur Paul Nitze, gamalkunnur sérfræðing- ur Bandaríkjamanna í afvopnunar- málum, með Ridgeway aðstoðamtan- ríkisráðherra sér til fulltingis. Formaður sovésku viðræðunefhdar- innar var tilnefhdur Viktor Karpov, formaður sovésku viðræðunefhdar- innar í afvopnunarviðræðum stórveld- anna í Genf og einn helsti sérfræðing- ur Kremlveija á sviði öryggis- og afvopnunarmála. Nitze og Karpov gjörþekkja hvor annan frá fyrri afvopnunarviðræðum og vom fréttaskýrendur almennt bjartsýnir á árangursríka niðurstöðu nefridarinnar, en fundir hennar hófust þegar í gærkvöldi að Höfða. Arthur Hartman, sendiherra Banda- ríkjanna í Moskvu, er formaður viðræðunefndarinnar um mannrétt- indamál og staðbundin ágreiningsefhi, en Alexander Bessmertnykh, aðstoð- amtanríkisráðherra var tilnefndur formaður þeirrar sovésku. Viðræður á breiðum grund- velli Fréttaskýrendur telja ennfremur að samkomulag leiðtoganna um nefnda- skipanina sýni svo ekki verði um villst að Reagan og Gorbatsjov hafi rætt flesta þætti ágreiningsefna stórveld- anna á fyrri degi viðræðna sinna í gær og komist að málamiðlun um að skipp. ágreiningsefriunum í þessa tvo megin- flokka. Aðspurður um innihald viðræðna leiðtoganna í gær sagði Speakes, tals- maður Hvíta hússins, á fréttamanna- fundi síðdegis að rökrétt væri að áætla fundi nefndanna tveggja, er skipaðar vom, sem beint framhald af því sem fram fór á milli Reagans og Gor- batsjovs í gær. Fyrir fundinn í Höfða var vitað að Gorbatsjov ætlaði fyrst og fremst að leggja áherslu á afvopnunar- og örygg- ismál á sama tíma og Reagan fullyrti að mannréttindamál og staðbundin ágreiningsefni ríkjanna, svo sem Afg- anistan og Mið-Ameríka, væm engu veigaminni málaflokkar, er hann myndi leggja þunga áherslu á í við- ræðum sínum við Gorbatsjov. Fundað í alla nótt Haft er eftir bandarískum embættis- mönnum í morgunsárið að sérfræð- inganefndir stórveldanna hafi þegar hafið störf að Höfða um áttaleytið í gær og unnið alla nóttina. Að sögn embættismannanna, lauk fundi af- vopnunamefhdarinnar ekki fyrr en klukkan hálfsjö í morgun en nefndar um mannréttindamál og staðbundin ágreiningsefhi þó skömmu áður og töldu embættismennimir, er ekki vildu láta nafha sinna getið, lengd nætur- fúndarins gefa vonir um að viðræð- umar hefðu verið árangursríkar. Larry Speakes, sérlegur talsmaður Hvíta hússins, skýrði fréttamönnum frá þvi er nánar skyldu ræða ýmis ágreiningsefni Bandarikjanna og Sovétríkjanna. síðegis í gær að stórveldin hefðu náð samkomulagi um skipan tveggja nefnda ísland á útopnu Danir telja íslendinga vaknaða af þymirósusvefni Haukur L. Haukæan, DV, Kaupmhcfti; Fundur Reagans og Gorbatsjovs á íslandi um þessa helgi hefur fengið mikla umfjöllun danskra fjölmiðla að undanfömu. En það er ekki síður fundarstaðurinn sem verið hefur í sviðsljósinu og em stöðugt fréttir af því hvemig ástandið er í Reykjavík á meðan fundafárið gengur yfir. Er talað um mikla spennu á meðal íslendinga eftir að hafa verið brugð- ið allrækilega er fréttist að leið- togafundurinn yrði haldinn á íslandi. Þannig segir í fyrirsögn í Politiken að ísland sé nú á glóandi nálum. Þykir það ekkert skrítið þar sem fyrirvari íslendinga var nánast eng- inn fyrir slíkan stórfund, aðeins tíu dagar, á meðan venjulega tekur fjöl- marga mánuði að undirbúa svona leiðtogaviðræður, og ekki sé hjá því komist að hálfgert ógnarástand skapist. Berlinske stolt af „norrænni bræðrahjálp" í Berlinske Tidende í vikunni segir frá vandamálum íslendinga við að hýsa þann mikla skara erlendra fjöl- miðlamanna og hvaða kröfur það hefur gert til stjómvalda. Samskiptakerfi hafa verið bætt og hafa hin Norðurlöndin hjálpað með tækniútbúnað til fjarskipta og sjón- varpssendinga, í því sambandi talar Berlinske Tidende stolt um norræna bræðrahjálp. Bætt hótelaðstaða er talin ríkur þáttur í að Reykjavík var valin sem fundarstaður. I því sambandi minna danskir fjöl- miðlar á ráðherrafund Atlantshafs- bandalagsins er haldinn verður á íslandi á næsta ári. Sagt er frá aðdraganda fundarins með Steingrím Hermannsson forsæt- isráðherra í aðalhlutverki og um leið ánægju hans og íslenskra stjóm- valda yfir þeirra athygli er ísland og íslenskar útflutningsvömr óhjá- kvæmilega fá við hina gífurlegu umfjöllun er ísland fær þessa dag- ana. Maður las ekki um undirbúning fundarins án þess að rekast á frá- sagnir af skjótum gróða hús- og bíleigenda og þykir dönskum fjöl- miðlamönnum almennt sem íbúar Reykjavíkur hagi sér sem þeir hafi fundið gull. Segir meðal annars í fyrirsögn Politiken fyrir skömmu að gullæði, samanber gullæðið í Klondyke, sé nú að finna á íslandi. Er ekki laust við smávorkunnsemi gagnvart þeim íbúum við Höfða er fara á mis við dollarana þar sem íbúðir þeirra em fráteknar fyrir ör- yggisverði. í vikunni birtist svo stór grein í Berlinske Tidende er bar fyrirsögn- ina „Eldfjallaeyja óskar eftir að veröa virkur meðlimur í Atlants- hafsbandalaginu" Þar segir meðal annars að hin ára- langa firring íslendinga gagnvart hemaðarbrölti ýmiskonar sé á enda og við taki ósk um virka þátttöku í Atlantshafsbandalaginu, með auk- inni samvinnu við evrópska meðlimi bandalagsins. Breytt viðhorf í varnarmálum Er fjallað í greininni um aðdraganda vamarsamnings íslands og Banda- ríkjanna og þátt herstöðvarinnar í stómmálaumræðu í landinu á síð- ustu áratugum og þá viðhorfsbreyt- ingu er orðið hefúr hérlendis í átt að því að öryggis- og hermál skipi veglegri sess á meðal íslenskra stjómvalda en fyrr. Er þar vitnað í Gunnar Gunnars- son öryggismálasérfræðing er segir hemaðarumsvif Sovétmanna í kringum landið hafa stóraukist og séu þau reyndar hin mestu í heimin- um í dag. Segir Gunnar að ósk Islendinga um virkara hlutverk á meðal ríkja Atlantshafebandalagsins megi líta á sem afleiðingu þess hve íslendingar em meira háðir aðgerð- um stórveldanna en áður. Þó leitist Islendingar í auknum mæli eftir að starfa með Evrópuríkj- um Nató, eins og heimsóknir danskra og þýskra hemaðarsérfræð- inga hafa sýnt, auk aukinnar samvinnu við heri Norðmanna og Hollendinga í herstöðinni í Keflavík. Lýkur greininni á þá leið að þymi- rósusvefni Islendinga sé hér með lokið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.