Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Blaðsíða 24
FRÉTTASKOTIÐ
62 25 25
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafir þú ábendingu eða
vitneskju um frétt -
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.500 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið i
hverri viku greiðast 4.500
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986.
Byssumenn teknir:
íslenskt
..Við álítum að málið sé upplýst þótt
við verðum að fara í saumana á þvi
vegna þess hvemig á stendur." sagði
Einar Bjamason, vaiðstjóri hjó lög-
reglunni í Reykjavík. Laust eftir kl.
13.00 í dag voru þrír menn handteknir
nærri húsi Seðlabankans á leið niður
að höfn. Þeir höfðu óhlaðna hagla-
byssu meðferðis.
Lögreglan handtók mennina um leið
og til þeirra spurðist. Var samkvæmt
fyrstu sögu álitið að þeir væru með
riffil. í Ijós kom að svo var ekki. Menn-
imir gáfu þá skýringu ó ferðum sínum
að þeir væm á leið á sjó til fuglaveiða.
^ ..Ég sé ekki betur en að hér sé um
venjulegt islenskt kærulevsi að ræða."
sagði Einar Bjamason. ..Þeir virðast
ekki hafa áttað sig á að þessa dagan
ganga menn ekki með byssur um göt-
ur."
Erlendar fréttastofur komust strax á
snoðir um handtöku mannanna og
höfðu þá þær upplýsingar að vopnið
hefði verið riffill og málið hið alvarleg-
asta. Einar sagði að mönnunum yrði
ekki sleppt strax eða á meðan ekki
væri endanlega gengið úr skugga um
, hverjar ft’rirætlanir þeima vom.
-GK
Læst eða
ekki læst
Ekki er enn ljóst hvort dagskrá
Stöðvar 2 verður send út trufluð eða
ekki í kvöld. Þegar stöðin hóf útsend-
ingar var gert ráð fyrir ólæstri dagskrá
ft rstu þrjá dagana og samkvæmt því
ætti lásinn að smelia klukkan níu í
kvöld. En að sögn Jónasar R. -Jónsson-
ar. dagskrárstjóra; Stöðvar 2. er verið
að ræða við rétthafa þeirra mynda sem
í hlut eiga um að fá að senda út ótmfi-
®mða dagskrá eitthvað lengur.
..Okkur heí'ur ekki tekist að afgreiða
nógu marga afruglara og viljum því
gjarnan halda dagskránni opinni leng-
ur." sagði -Jónas.
-VAJ
TRÉSMIÐJA
ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR HF„
IÐAVÖLLUM 6, KEFLAVÍK.
SÍMAR: 92-4700-92-3320.
LOKI
Góður árangur mið-
að við Höfða-töiu!
Friðarsöngur að morgni
Meðan fulltrúar stórveldanna tveggja funduðu i Höfða var sungið um frið á jörðu að Gljúfrasteini í Mosfellssveit. Hjónin Halldór Kiljan Laxness og Auður
kona hans buðu friðarsinnanum og söngkonunni Joan Baez í morgunverð því Baez er mikill aðdáandi nóbelsskáldsins. í lokin sungu þær Auður og
Joan saman á íslensku - Kvölda tekur, sest er sól - og hlutu fyrir flutninginn einróma lof viðstaddra. -baj
DV-mynd KAE
Stórtíðindi á Reykjavíkurfundi Reagans og Gorbatsjovs:
Vonir um
IðBKXIin
Vonir standa til að fækkun kjarn-
orkuvopna verði vemleg í fi-amhaldi
af fjómm fundur Reagans Banda-
ríkjaforseta og Gorbatsjovs Sovét-
leiðtoga. Er það haft eftir sovéskum
geimvopnasérfræðingi, Yevgeny Ve-
likhov. Á blaðamannafundi er
Georgy Arbatov, ráðgjafi Gor-
batsjovs, hélt síðan sagði hann að
gert væri ráð fyrir bæði langdrægum
og meðaldrægum eldflaugum í til-
lögu Sovétmanna um fækkun
kjamorkuvopna ssm hann sagði að
væri sogulegur atburður. Gorbatsjov
liefur Jagt fram ýmsar tillögur, þar
á meðal að kjamorkuvopnum verði
eytt f>TÍr árið 2000. Embættismenn
hafa sagt að báðir aðilar nálgist nú
samkomulag er gæti falið í sór fækk-
un fjölda kjarnaodda úr 1.000 í 200
hjá hvomm aðila um sig.
Fundurinn í morgun, sem var
þriðji fundur þeirra Reagans og Gor-
batsjovs, stóð einni klukkustund og
35 mínútum lengur én áætlað hafði
verið. Ákveðið var að halda viðræö-
um áfram klukkan þrjú og vai- því
öllum blaðamannafundum, er boðað
hafði verið til, frestað.
Lany Speakes, hlaðafulltrúi Hvíta
iiússins, hélt stuttan fund um tvö-
leytið. Sakaði hann Sovétmenn um
brot á reglum um fréttabann vegna
toppfundarins og átti hann þá við
ummæli Velikhovs.
Speakes staðfesti að árangur heföi
náðst á vissum sviðum afvopnunar-
mála en vildi ekki fara út í smáatriði.
Sagði hann að ágreiningur hefði
minnkað á sumum sviðum en ekki
öðrum. Foreetinn héidi fast við viss
atriði, svo sem meðaldrægar eld-
flaugar og geimvamaáætlunina sem
Sovétmenn vildu stoppa.
Að sögn S()eakes vildi Reagan
framlengja fundinn til þess að
minnka þann ágreining sem væri en
hann myndi þó ekki gefa eitir í
grundvallaratriðum.
Á blaðamannafundimun tilkynnti
Speakes að viðræðum sérfraeðing-
anna, er ijölluðu í alla nótt um
afvopnunarmál, mannréttindamál
og staðbundin ágreiningsefiú, væri
iokið og hefði samkomulag náðst á
sumum sviðum. Utanríkisráðherrar
stórveldanna, þeir George Shultz og
Eduard Sévardnadze, héldu séríund
til undirbúnings framhaltfsfundinum
sem þeir ætluðu síðan að taka þátt í.
-IBS
Raisa fékk
nautalundir
hjá Steingrími
Forsætisráðherrahjónin buðu Raisu
Gorbatsjovu upp á nautalundir í pij>-
arvínssósu með fylltum tómötum og
sveppum í aðalrétt að heimili sínu i
gærkvöldi. í forrétt var humar í ostas-
ósu og Grand Marnier frauð í eftirrétt.
I hádeginu í gær snæddi Raisa há-
degisverð í Ráðherrabústóðnum í boði
Eddu Guðmundsdóttur. Á maLseðlin-
um þar var salat með reyktum laxi í
foirétt, lambalundir í púrtvínssósu í
aðalrétt og ferskt ávaxtasalat með
vanillusósu í eftirrétt.
-KÞ
Raisa kemur til kvöldverðarins hjá Steingrimi Hermannssyni og Eddu Guð-
mundsdóttur í gærkvöldi að heimili forsætisráðherrahjónanna. Fremst til hægri
er öryggisvörður. DV-mynd KAE
4
í
i
4
4
4
4
4
4