Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Blaðsíða 21
SUNNUDAGUR 12. OKTOBER 1986. 21 Fréttir Óttuð- ust byssu- mann íSjó- manna- skól- anum -800 m skotlína að Höfða Bandarískir öryggisverðir báðu ís- lensku lögregluna um að kanna tum Sjómannaskólans um það leyti sem þjóðarleiðtogamir hittust í Höfða í gærmorgun. Frá Höfða höfðu öryggis- verðimir séð grunsamlega menn með einhver tæki á svölum á tumi skólans. Aðeins 800 metra loftlína er á milli Höfða og Sjómannaskólans. Byssu- maður með öflugan kíkisriffil gæti drepið mann af lengra færi. Er lögreglan kom á staðinn fann hún bandaríska sjónvarpsmenn í tumin- um. Þeir voru frá CNN-sjónvarpsstöð- inni. Höfðu þeir bæði endurvarpsstöð og kvikmyndatökuvél í tuminum. Lögreglumaður sagði DV að Hvíta húsið hefði gefið sjónvarpsmönnunum leyfi en gleymst hefði að láta öryggis- verði vita. Sjónvarpsmönnunum var vísað úr tuminum og hann innsiglaður. -KMU Lögreglan við Sjómannaskólann i gærmorgun. Bandarískir öryggisveröir sáu menn og grunsamleg tæki i turninum. DV-mynd S 11 "1 Löghlýðin bílalest - ýkjur um hámarkshraða „Mér þykja undarlegar þær íréttir sagði Böðvar Bragason lögreglustjóri metra hraða. Mér er til efs að lög- sem ég hef heyrt í útvarpi og sjón- í samtali við DV. „Ég var sjálfur í hlýðnari bílalest hafi nokkm sinni varpi um að bílalest Reagans hafi íremsta bílnum og veit að við ókum ekið eftir Keflavíkurveginum." bmnað á yfir 100 kílómetra hraða af yfirleitt á 60 kflómetra hraða, fórum -EIR Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur," tvisvar upp í 70 og aldrei upp í 80 kfló- Læknar ékalla leiðtogana Samtök lækna gegn kjarnorkuvá hafa aíhent sendiráðum stórveldanna í Reykjavík áskomn til leiðtoga aust- urs og vestur um að þeir beiti sér fyrir fækkun kjamorkuvopna og allsherj- arbanni við hvers konar tilraunum með slík vopn. Samtök lækna gegn kamorkuvá fengu sem kunnugt er friðarverðlaun Nóbels árið 1985. 1 samtökunum em 150 þúsund læknar í 49 þjóðlöndum. I íslandsdeildinni em 200 manns. -EIR Norskir gegn ein- stefnu inn á Sætún Tveir norskir blaðamenn á bláum bílaleigubíl skutu öryggisvörðum skelk í bringu meðan fyrsti leiðtoga- fundurinn stóð yfir í Höfða. Þeir norsku komu einfaldlega ak- andi eftir Sætúni, götunni fyrir aftan Höfða. Gatan átti að vera lokuð allri umferð. Norsku blaðamennimir bmtu um- ferðarreglur með því aka gegn ein- stefiiu inn á Sætún við bensínstöðina á Klöpp. Ekki komust þeir langt. Lögreglan stuggaði þeim frá áður en þeir komust næni fundarstaðnum. Eftir atvikið lokaði lögreglan þessari innkomuleið inn í Sætún. -KMU FÓSTRUR Fóstru vantar að leikskólanum Barnabæ á Blönduósi frá 15. nóvember næstkomandi. Leikskólinn er vel búinn og starfsaðstaða góð. Fóstran þarf að geta leyst forstöðukonu af í að minnsta kosti 3 mánuði, frá 1. desember næstkomandi. Nánari upplýsingar veitir for- stöðukona í síma 95-4530 og undirritaður í síma 95-4181. Sveitarstjóri Biönduóshrepps. t Tarkett parket fæst nú gegnheilt, með nýja sterka lakkinu, á sama verði og gólfdúkur. HARÐVIÐARVAL KF Krókhálsi 4, Reykjavík. S. 671010.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.