Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Blaðsíða 5
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986. 5 Fréttir Nick Daniloff í einkaviðtali við Ólaf Amarson, blaðamann DV: Gorbatsjov er hinn sterki leiðtogi Sovétríkjanna Hann ræður samt ekki yfir sovéska skrifræðisveldinu Daniloff, sem hér ræðir við Ólaf Arnarson, blaðamann DV, segist vona að fleiri sovéskir andófsmenn eigi eftir að losna úr haldi í kjölfar atburða síðustu daga. DV-mynd Andrew Glass Það er fróðlegt að fá tækifæri til að ræða við mann eins og Nick Daniloff um málefhi Sovétríkjanna og sam- skipti austurs og vesturs. Daniloff er ættaður frá Rússlandi og hefur eytt miklum hluta starfsævi sinnar í Sovét- ríkjunum. Hann hefúr haft höndina á púlsi sovéskra stjómmála samfellt frá 1981. Án efa er hann einn reyndasti blaðamaður á Vesturlöndum varðandi málefrii Kremlar. Blaðamaður spurði Daniloff hvort hann hefði orðið var við breytt andrúmsloft í sovéskum stjómmálum síðan Mikhail Gor- batsjov komst til valda. „Þetta er ákaflega athyglisverð spuming. Já, það em áhugaverðir hlutir að gerast í Sovétríkjunum. Það má nefna það að miklar agaherferðir em reknar, til dæmis gegn alkóhól- isma og spillingu. Ég leyfi mér hins vegar að efast um að mikill árangur hafi náðst á þessum sviðum. Einnig má nefha það að nú hefur verið hrint af stað nýrri herferð fyrir meiri hreinskilni og opnara þjóðfélagi. Herra Gorbatsjov hefur alltaf lýst því yfir, jafhvel áður en hann varð aðalrit- ari Kommúnistaflokksins, að hann vildi opnara þjóðfélag sem gæfi réttari mynd af atburðum og sögu landsins. Þessa hreinskilni má meðal annars merkja í kjölfar slyssins í Chemobyl. Sovétmenn tilkynntu nær tafarlaust um slysið í kjamorkukafbátnum fyrir ströndum Bandaríkjanna á dögunum og þó að ég hvorki vilji né geti á nokk- um hátt borið þetta saman við hið opna þjóðfélag, sem við búum við í Bandaríkjunum, þá er þetta takmark- að skref í rétta átt og ég vona að þetta haldi áfram.“ Það hafa verið vangaveltur meðal manna í Bandaríkjunum um það hvort Gorbatsjov sé hinn raunverulegi leið- togi eða valdamaður í Kreml eða hvort hann sé enn að berjast fyrir völdum og fylgi því jafnvel á vissum sviðum „öfgaste£nu“ gagnvart Bandarikjun- um til að sanna að ekki sé um linkind að ræða af hans hálfu. „Ég tel að Gorbatsjov sé hinn raun- verulegi leiðtogi Sovétríkjanna. Hann er aðalritari Kommúnistaflokksins og ég sé ekki betur en að hann hafi góð- an meirihluta bak við sig í Pólítbúró. Hann er vissulega með ömggan meiri- hluta í miðnefhd Kommúnistaflokks- ins og út frá því litið hefur hann greinilega hin pólitísku völd í Moskvu. Hins vegar er þetta sennilega ekki nóg. Hann ræður ekki fullkomlega yfir Sovéska skrifræðinu og sennilega hefur enginn aðalritari Kommúnista- flokksins nokkurn tíma haft full- komna stjórn á skrifræðisveldinu. Skrifræðisveldið er ríki í ríkinu, þrífst á forréttindum og stendur vörð um hagsmuni sína. Gorbatsjov á í miklum vandræðum með skrifræðissinna sem telja hagsmunum sínum ógnað með þeim nýju vindum sem nú blása um sovéskt þjóðfélag. En hann er að reyna að hrista upp í stöðnuðu kerfi og virð- ist tala mjög afdráttarlaust um þá andstöðu sem hann verður var við.“ Er Gorbatsjov að taka mikla áhættu með því að bjóða til fúndarins í Reykja- vík eða er þetta ef til vill snilldarbragð af hans hálfu til að ná höggstað á Rea- gan ef hlutirnir fara ekki eins og hann kýs? „Sennilega spila báðir þessir þættir inn í tilboð Sovétmanna um fundinn í Reykjavík. Menn verða að hafa í huga að Gorbatsjov hefur tvisvar eða þrisvar áður á þessu ári stungið upp á leiðtogafundi en Reagan hefur í hvert skipti hafnað því afdráttarlaust. Ég reikna með því að í kjölfar þessa hafi harðlínumenn innan sovéska skrifræðisveldisins sagt eitthvað á þessa leið: „Þama sérðu. Þú kemst ekkert með Reagan. Það er ekki hægt að tjónka við hann.“ Þegar Gorbatsjov síðan tekur áhætfr una, er allt var á suðupunkti milli ríkjanna, og stingur upp á því í bréfi til Reagans að þeir hittist á stuttum fundi í Reykjavík eða London og Rea- gan samþykkir, styrkist staða Gor- batsjovs innan Sovétríkjanna því hann hefur sýnt harðlínumönnum í Kreml fram á það að þeir höfðu rangt fyrir sér og að hugsanlega sé hægt að tjónka við Reagan." Mig langar til að spyija þig um eitt sem hefur ekki verið mikið rætt um en hefur valdið mér nokkrum heila- brotum. Hvers vegna heldur þú að Gorbatsjov hafi viljað hitta Reagan í annaðhvort Reykjavík eða London sem báðar eru höfúðborgfr ríkja sem Seinni hluti eru í NATO? Var þetta ef til vill her- bragð af hálfu Gorbatsjovs? „Mér finnst þetta skemmtilega áhugaverð spuming og ég hef í raun- inni ekki svar við henni. Ég hallast helst að því að Sovétmenn hafi viljað fá tækifæri til að rannsaka ýmsa hem- aðarlega mikilvæga staði á íslandi. Það er mikils virði fyrir Sovétmenn að fá að senda stóra sendinefrid til Reykjavíkur og margar flugvélar. Þetta er stórgott tækifæri fyrir Sovét- menn til að taka myndir úr lofti af landinu en slíkar loftmyndir hafa oft ýmsa kosti fram yfir myndir teknar úr gervihnöttum.“ Em þetta þá að hluta til einhvers konar heræfingar af háffu Sovét- manna? „Það er erfitt að átta sig á því hvers vegna Reykjavík og London komu til greina. Kannski var London inni í myndinni vegna þess að kona Gor- batsjovs hafi viljað fara í verslunar- leiðangur í Oxfordstræti. í alvöm talað, ástæðan þarf ekki að hafa verið veigameiri." Bréf Gorbatsjovs, sem fól í sér fund- artilboðið, var afhent þann nítjánda september, en þá varst þú í umsjón bandaríska sendiherrans í Moskvu og nokkurs konar fangi í Sovétríkjunum. Reagan svaraði tilboðinu með því að leiðtogafundur kæmi ekki til greina meðan þér væri haldið í Sovétrikjun- um. Það þekkja allir gang mála síðan þá en telur þú að tilboðið um Ieið- togafund hafi orðið til að flýta fyrir þróun mála sem leiddu til frelsis þins? „Ég held að í kjölfar handtöku minnar hafi skapast nokkurs konar neyðarástand. Sem slíkt bauð það einnig upp á vissa möguleika. Banda- ríkin gátu sýnt hörku gagnvart njósnum sovéskra starfsmanna Sam- einuðu þjóðanna. Sovétríkin fengu tækifæri til að reyna að koma á stutt- um leiðtogafundi. Bandaríkjunum tókst að fá ákaflega þýðingarmikinn andófsmann lausan frá Sovétríkjunum og einnig að fá leystan úr haldi einn „vesælan" blaðamann sem hafði lent í sovésku fangelsi og Sovétmönnum tókst að fá njósnarann sinn lausan frá Bandaríkjunum. Þótt þetta væri neyðarástand þá sköpuðust tækifæri. Það sniðuga við þetta allt saman er að báðir aðilar fengu eitthvað sem þeir sóttust eftir, og það kemur aldrei til með að nást neinn árangur af viðræðum Sovét- manna og Bandaríkjamanna nema báðir fái eitthvað fyrir sinn snúð. Héma virðast báðir hafa fengið það sem þeir sóttust eftir. Sovétmenn fengu leiðtogafundinn sinn og sinn mann aftur og Bandaríkin fengu mannréttindafrömuð og mig lausa og ég held' að fundurinn í Reykjavík sé einnig í þágu bandarískra hagsmuna. Hér högnuðust báðir.“ Telur þú að Reagan fari til fundar í Reykjavik með allsheijarhagsmuni Bandaríkjanna að leiðarljósi eða er hann kannski að hugsa meira um kosningarnar eftir tæpan mánuð og meirihluta repúblikana i Öldunga- deildinni? „Ég held að það sé mjög rökrétt að velta þessari spumingu fyrir sér. Ég held að öllum sé ljóst að forsetinn hefur miklar áhyggjur af úrslitum kosninganna. Það má vel vera að með því að fara til Reykjavíkur og fá þá auglýsingu, sem fylgir leiðtogafundi, sérstaklega nú þegar hann á líka í vandræðum með þá sem standa til hægri við hann, hyggist hann reyna að styrkja stöðu sína.“ Nú hefur verið mikið talað um að um skipti hafi verið að ræða. Telur þú að leiðtogafundurinn hafi verið nauð- synjegur hluti þeirra skipta? „Ég held að það sé ljóst að Sovét- menn vildu leiðtogafund og Banda- ríkjamenn voru ekki andvígir fundi en settu samt skilyrði fyrir því að af fundinum gæti orðið, sem var að ég fengi að snúa aftur til Bandaríkjanna, svo að ég get vel ímyndað mér að fund- urinn hafi í það minnsta haft nokkur áhrif." Telur þú að skiptunum sé nú lokið eða eigum við eftir að sjá meira? „Ef þú átt við hvort við ejgum eftir að sjá fleiri sovéska útlaga leysta úr haldi og hleypt úr landi þá vona ég það svo sannarlega." IAUSTRI VESTRI Verslanir okkar eru austast og vestast í borginni Hjá okkur fáið þið flest til húsbygginga á bestu kjörum sem völ er á Við erum samningaliprir jafnt í austri sem vestri OPNUNARTÍMI: kl.8-18 virka daga kL 10-16 laugardaga .ii. iiu BYGGINGAVÖRUR 2 góöar byggingavöruverslanir. Austast og vestast í borginni Stórhöföa, simi 671100 • v/Hringbraut, sími 28600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.