Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986. Fréttir Skrifa mínar fréttir sjálfur „Við höfðum fjallað um bókmenntir íslendinga. Eitt kvöldið var ég með heillangan pistil um Islendingasög- umar. Við höfum líka tekið fyrir íslensk efnahagsmál, til dæmis skýrð- um við frá því að atvinnuleysi á íslandi væri innan við eitt prósent en það er mjög ólíkt ástandinu í Bandaríkjun- um. Einnig höfum við fjallað um hemaðarlegt mikilvægi íslands fyrir Atlantshafsbandalagið. Sögur um að erlendar sjónvarps- stöðvar og fréttamenn fjalli ekki um annað en einhver skringilegheit og tali bara við sætar stelpur em ein- faldlega ósannar." Þetta sagði Peter Jennings, aðal- fréttamaður ABC-fréttastofunnar bandarísku, í samtali við DV. „Eina fegurðardísin, sem við hjá ABC höfum rætt við, er Hófí, ungfrú heimur. Við höfum verið með fréttir um forsetann ykkar og einnig um for- sætisráðherrann og auk þess heilmikla umíjöllun um Alþingi. Einnig höfúm við sent út fréttir um fiskveiðar og fiskvinnslu á Islandi. Reyndar hef ég heyrt það eftir ís-' lendingum, búsettum erlendis, að umfjöilun okkar hjá ABC hafi verið bæði vönduð og upplýsandi og konan mín sagði, þegar ég talaði við hana í síma í fyrrakvöld, að hún hefði ekki fyrr séð mig fjalla jafngaumgæfilega um nokkurt land eins og ísland nú.“ Akkerismaður Peter Jennings er eitt af stóm nöfn- unum í fjölmiðlaheiminum þar vestra. Hann er, eins og áður sagði, einn aðal- fréttamaður ABC-stöðvarinnar sem er ein stærsta sjónvarpsstöðin í Banda- ríkjunum. I Bandaríkjunum em lykil- menn eins og Peter Jennings kallaðir akkerismenn. Við spurðum hann hvað það fæli í sér: „í fyrsta lagi þýðir það að ég skrifa í öðm lagi þýðir það að vera akkeris- maður að ég er fréttastjóri þessara útsendinga, með öðrum orðum yfir- maður fréttaþáttarins." Þrjátíu ár í fréttamennsku Samkeppnin meðal fréttamanna er hörð og það em aðeins afburðafrétta- menn sem ná á toppinn, eins og Peter Jennings hefur óumdeilanlega gert. Hann var spurður hversu lengi hann væri búinn að vera í fréttamennsku. „Þrjátíu ár. Ég hef fengist við alls konar fréttir á mínum ferli. Ég hef skrifað um mannréttindamál og um stjómmál. I sex ár var ég fréttaritari í Mið-Austurlöndum. Ég hef verið fréttaritari í Afríku og í sjö ár var ég aðalfréttaritari ABC í Bretlandi. Fyrir þremur árum tók ég síðan við starfi akkerismanns. Akkerismaður vinnur bæði inni í stúdíói og utan þess. Það er í mínum verkahring að skýra frá og fjalla um alla meiri háttar atburði, hvort heldur þeir em pólitísks eðlis eða ekki. Ef til dæmis, en guð forði því, eitt- hvað kæmi fyrir annaðhvort Reagan eða Gorbatsjov þá væri það mitt að skipuleggja beina útsendingu til Bandaríkjanna og skýra áhorfendum þar jafnóðum frá því sem væri að ger- ast.“ Sirkusandrúmsloft ABC-sjónvarpsstöðin reisti pall fyrir framan Alþingishúsið og þar stendur Peter Jennings þegar stöðin sendir út fréttir héðan. Hópur af íslendingum hefur jafhan safnast saman á Austur- velli og fylgst með útsendingum. Jennings var spurður hvemig honum hefði líkað þessi athygli sem þeir hefðu vakið: „Við höfum verið dálítið vandræða- legir yfir þessu sirkusandrúmslofti sem hefúr skapast þama. Ástæða þess að Peter Jennings hjá ABC-sjónvarpsstöðinni: Við hötum fjallað mjög mikið um ísland i okkar fréttum. DV-myndir Brynjar Gauti mínar fréttir sjálfur," sagði Jennings. „Það er ekki rétt sem sagt var i DV í gær að ég læsi bara fréttimar sem aðrir hefðu unnið fyrir mig. Fyrir þann sem ekki þekkir til og fylgist með út- sendingum gæti þetta litið þannig út því þá sjá menn bara útsendingarstjór- ann rétta mér handritið að hverri frétt. Ástæðan er sú að um leið og ég mæti í útsendingu læt ég útsendingar- stjórann hafa handritin og síðan er það hans að rétta mér þau í réttri röð. Og skýringin á því hve sjaldan ég þarf að líta á þessi handritablöð er ekki afburðaminni heldur einfaldlega það að ég skrifa fréttimar sjálfur og hef þær þess vegna nokkum veginn í kollinum. svona margt fólk kemur þama á kvöldin er væntanlega sú að íslend- ingar hafa ekki fyrr séð bandarískar fréttastofur af þessarí stærð að störf- um. Annars fáum við líka mikið af Bandaríkjamönnum hingað í heim- sókn. Þeir sjá fréttaþættina okkar daglega á Vellinum og koma hingað til að heilsa upp á okkur. Ameríkanar em mjög vingjamlegt fólk,“ segir Jennings brosandi og bætir síðan við: „Það em íslendingar reyndar líka. Við höfúm líka lagt okkur fram við að endurgjalda þá gestrisni sem okkur hefúr verið sýnd og það er ekki rétt sem sagði í blaðinu í gær að við hefð- um troðið niður blóm á Austurvelli. Starfsaöstaða Jennings er i litlum vegavinnuskúr inni i flugskýli eitt á Reykjavíkurflugvelli. „Það áttu fáir von á að ís- lendingum tækist að búa til þessa aðstöðu jafnhratt og árangursrikt og raun bar vitni,“ sagði hann. Við settum þennan pall upp í góðrí samvinnu við garðyrkjumann borgar- innar.“ Kom í þorskastríðinu Peter Jennings hefur áður komið til íslands. Það var þegar við áttum í þorskastríði við Breta. Þá dvaldi Jennings á íslandi í tvær og hálfa viku. „Já, það var mín heppni að hafa starfað hér áður þannig að landið er mér ekki alveg ókunnugt. Eitt það erfiðasta, sem fréttamaður lendir í, er að þurfa að fjalla um stóratburði, eins og þennan leiðtogafund, á stað þar sem hann er algjörlega ókunnur. Ég hef það fram yfir flesta fréttamennina að hafa verið hér áður, auk þess sem ég dvel hjá íslenskum vinum mínum með- an á þessu stendur." - Hvemig finnst Peter Jennings Is- lendingar hafa staðið sig við að skipuleggja þá hlið þessa fundar sem að fréttamönnum snýr? „Hvað okkur varðar hefur þetta gengið dásamlega vel. Á aðeins einum sólarhring var okkur sköpuð þessi aðstaða hér í flugskýli eitt. Og það kom, held ég, öllum á óvart hversu hratt og hversu vel það var gert. En, ef ég man rétt, eru íslendingar vanir að þurfa að vinna hratt og í skorpum. Við höfum unnið á stöðum þar sem fólk hefúr ekki unnið eins hratt eða eins vel og þið hafið gert.“ Táknrænt gildi Á vegum ABC-sjónvarpsstöðvarinn- ar hér á landi em fimmtíu og fimm manns. Hinar stóru stöðvamar hafa ekki minna lið á sínum snærum. Sum- um hefur fundist þetta óþarfa umstang þar sem vitað var í upphafi að leið- togamir myndu ekki tala við frétta- menn fyrr en að fundum loknum. Við spurðum Jennings álits á þessu: „Við vissum það fyrir að hér kynni að verða fréttaþurrð. Það gaf okkur Uekifæri annars vegar til að fjalla um ísland og íslendinga og er það gott fyrir áhorfendur okkar þar sem þá gefst þeim tækifæri til að fræðast um land sem við annai's fjöllum lítið um. Hins vegar höfum við fjallað mikið um samskipti Bandaríkjanna og Sov- étríkjanna. Það að Reagan og Gor- batsjov skuli hittast hefur mikið táknrænt gildi og er mjög mikilvægur atburður í augum Bandaríkjamanna og íslendinga líka. Þetta er þvi gullið tækifæri til að fræða fólk um sem flest- ar hliðar á þessum málum. Fréttimar eru að gerast hér og allar stöðvamar leggja mikið upp úr því að vera á staðnum. Ég held að umstangið sé ekkert of mikið. íslendingar eru bara óvanir þessu.“ Jennings var að lokum spurður að Fyrir leiðtogafundinn var búist við mikilli örtröð á veitingahúsum í Reykjavík með tilliti til þess að hér yrðu hátt f tvö þúsund fréttamenn um þessa helgi. Við höfðum samband við nokkur veitingahús í gær og spurð- umst fyrir um aðsóknina. mfs:Útlendingamir mæta seint Á Lækjarbrekku fengum við þau svör að það sem einkenndi helgina væri að erlendu íréttamennirnir pönt- uðu seint og kæmu seinna en íslend- ingar væm vanir að gera. „Þeir sitja líka lengur og allt fram undir klukkan tvö,“ sagði Valur Geirsson, þjónn á Lækjarbrekku. Á Gauki á Stöng feng- um við þær fréttir að búist hefði verið við meiri aðsókn í matinn en raunin hefði orðið. Það var t.d. nóg af lausum borðum þar á föstudagskvöldið en hins vegar var töluvert að gera hjá þeim á bamum. Brynjar Björgvinsson á Pott- inum og pönnunni sagði að það hefði verið ríflegt að gera hjá þeim undan- fama daga en hann sagðist hafa búist við meiri aðsókn um þessa helgi. Á Torfunni hefúr verið töluvert að gera því hvort akkerismenn í bandarískum sjónvarpsstöðvum væm miklar stjöm- ur þar vestra: „Mjög margir Bandaríkjamenn þekkja andlit mitt og rödd en það ger- ir mig ekki að sjónvarpsstjömu. Ég er fyrst og fremst fréttamaður. Þetta er erfitt og krefjandi starf en jafnframt mjög skemmtilegt. Ég get ekki hugsað mér að vinna við neitt annað." -VAJ undanfarna daga og sagði Kristján Kristjánsson þjónn þar að íslendingar hefðu fítið sést á staðnum og aðsóknin hefði verið svipuð og búist hefði verið við. Laust í veitingasölum hótel- anna Á hótelum borgarinnar, sem við höfðum samband við í gær, jafnt leigu- námshótelunum sem hinum, fengum við þau svör að mögulegt hefði verið á flestum þeirra að fá borð í veitinga- sölum þeirra. Grillið á Hótel Sögu er reyndar frátekið fyrir Sovétmennina sem gista á hótelinu þannig að líklega er erfitt að fá borð þar. Á Loftleiðum, Esju, Hótel Óðinsvéum og Hótel Hofi ætti ekki að vera vandamál að fá borð í veitingasölunum. ísleifur Jónsson, veitingastjóri Hótel Loftleiða, sagðist ekki hafa visað neinum frá nú um helgina. Á Hótel Borg fengum við hins vegar þær fréttir að mikil aukning hefði orðið á aðsókn í veitingasalinn um helgina. -SJ Veitingahúsin: Nóg að gera en samt hægt aðfa borð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.