Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Blaðsíða 11
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986. 11 Fréttir Ekki sérstakur viðbúnaður hjá lögreglunni vegna rafmagnsleysis „Ég get ekki sagt hvað við hefðum gert ef rafinagnið hefði farið af í kringum þau svæði sem leiðtogamir halda sig. Hins vegar eru vararaf- stöðvar í báðum sendiráðunum og við Höfða. Við höfum hins vegar ekki sérstakan viðbúnað á okkar vegum ef rafinagnið fer af, það er í höndum Rafinagnsveitunnar að sjá um þau mál,“ sagði Böðvar Braga- son, lögreglustjóri í Reykjavík, aðspurður hvort lögreglan hefði sér- stakan viðbúnað ef rafmagnið færi af. Svæðið umhverfis Höfða er sér- staklega lýst upp á meðan leiðtog- amir fúnda þar og sömuleiðis er nánasta umhverfi bandaríska sendi- ráðsins sérstaklega upplýst. Ekki hefúr verið bætt við lýsingu í lokaða hverfinu í Þingholtunum, að sögn Böðvars. -SJ Rafmagnslaust í 5 klukkustundir í Reykjavík: , Hefðum verið mun fljótari að koma rafmagni á í msðbænum4 - sagði Þoigeir Einarsson, hjá Rafmagnsveitunni Meiri háttar trimmgallar ÚTIUF Póstsendum. Glæsibæ. Sími 82922. Seinni hluta fóstudags varð raf- magnslaust í þrem hverfum í Reykjavik vegna bilunar í aðveitu- stöð 2. Það liðu 5 klukkustundir þar til tókst að koma rafinagninu á aftur í Háaleitis'nverfi, Fossvogshverfi og nýja miðbænum. En hvað hefði gerst ef rafinagnið hefði farið af í Þingholtunum og hverfinu kringum Höfða? Við lögð- um þessa spumingu fyrir Þorgeir Einarsson, verkfræðing Rafmagns- veitu Reykjavíkur. „Það varstraum- spennir sem brann yfir í stöð 2, stöðin fylltist af sóti og þess vegna sló út. Við þurftum að þrífa alla stöð- ina og þess vegna tók þetta svona langan tíma. Við hefðum verið mun fljótari að koma rafmagni á í mið- bænum ef bilun hefði orðið í stöðinni þar en sú stöð er nýrri og mun full- komnari en stöð 2,“ sagði Þorgeir. Sendiráð Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna em með vararafstöðvar og einnig er vararafstöð við Höfða ef eitthvað skyldi koma fyrir rafmagnið í því hverfi, einnig em ljósavélar um borð í sovésku skemmtiferðaskipun- um við Ægisgarð. En eru einhverjar sérstakar ráðstafanir hjá Rafmagns- veitunni varðandi hverfin umhverfis sendiráðin og Höfða? „Við erum með fullskipaða vakt hér allan sólar- hringinn og höfúm færanlega rafstöð sem samsvarar einni stöð ef til bilun- ar kemur. Það var hins vegar ekki hægt að nota hana á föstudaginn út af sótinu. Það var farið sérstak- lega yfir allt kerfið í vesturbænum og miðbænum nú fyrir fundinn og við mundum tengja stöð 1 við aðra stöð ef rafmagnið færi af henni,“ sagði Þorgeir. -SJ Meðmælaborðar Flokks mannsins i Borgartúni i gær. Fremst stendur Ás- hildur Jónsdóttir, borgarstjórnarframbjóöandi frá þvi í vor. DV-mynd GVA Meðmæli Engin mótmæli voru við Höfða í gær á meðan leiðtogarnir ræddust við. Þó sáust borðar á lofti og voru þeir ættað- ir úr herbúðum Flokks mannsins; áskorun til leiðtoganna að gefa plán- etunni okkar möguleika á áframhald- andi viðveru í alheimi: „Give our planet a chance" var letrað á ensku og rússnesku. „Þetta eru ekki mótmæli heldur meðmæli," sögðu flokksmenn og sungu We shall overcome þegar leið- togamir bmnuðu fram hjá. Reagan veifaði. -EIR mm sme issji NIÐURHENGD LOFT CMC kerfi fyrir niðurhengd loft, er úr galvaniseruðum málmi og eldþolið CMC kerfi er auðvelt í uppsetningu og mjög sterkt. CMC kerfi er fest með stillanlegum upphengjum sem þola allt að 50 kg þunga. CMC kerfi fæst í mörgum gerðum bæði sýnilegt og falið og verðið er ótrúlega lágt frá kr. 185 á m2. CMC kerfi er serstaklegá hannad fyrir loftplötur frá Armstrong Einkaumboð á Islandi. Hringið eftir frekari upplýsingum; Þ. ÞORGRIMSSON & CO Armúla 16 ■ Reykjavík ■ sími 38640

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.