Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Síða 4
4
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986.
Utlönd
Bretar vísa
meintum
hryðju-
verkamönnum
úr landi
Bresk stjómvöld hafa vísað sex
meintum félögum í hryðjuverka-
samtökum skæruliðaforingjans
Abu Nidal úr landi að því er kem-
ur fram í breska blaðinu Sunday
Telegraph í dag.
Segir i blaðinu að sexmenning-
amir, fimm arabar og einn Svíi,
hafi verið handteknir af sérsveit-
um bresku lögreglunnar, er berjast
gegn hermdarverkamönnum, fyrir
tíu dögum, vegna gmnsemda um
yfirvofandi árásir á bresk og
bandarísk skotmörk í London.
Haft er eftir arabískum stjómar-
erindrekum í London að njósn
hafi borist af því að sexmenning-
unum hafi verið ætlað að ráðast
sérstaklega að bandarískum stofn-
unum eða bandarískum stjómar-
erindrekum í borginni. Talið er að
auk aðildar að öðrum hryðjuverk-
um beri hryðjuverkasamtök Abu
Nidal ábyrgð á flugráninu í Karac-
hi fyrir skömmu, þar sem tuttugu
og einn lét lífið, og árásinni á
bænahús gyðinga í Istanbul þar
sem tuttugu og tveir gyðingw féllu
fyrir vélbyssuárás tilræðismanna.
Perú:
Beið
forsetans með
dínamíttúpur
í pilsunum
Kona nokkur, er var með 47
dínamíttúpur í pilsum sínum, var
handtekin í Juliaca í Perú í morg-
un. Stóð konan í mannþyrpingu
sem beið eftir komu forseta lands-
ins, Alan Garcia, til víglsuathafn-
ar. Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar var konan handtekin
klukkustund áður en forsetinn var
væntanlegur.
Borgin Juliaca er í héraðinu
Puno, sem er f suðurhluta landsins
nálægt Titicaea vatni, en þar hafa
skæruliðar látið til sín taka að
undanfomu. Forsetinn hóf tveggja
daga heimsókn í héraðinu í morg-
un. Konur þar um slóðir klæða sig
oft í mörg pils til þess áð halda á
sér hita og þannig er auðvelt að
fela dínamít á sér.
í gærkvöldi biðu þrír bana og tíu
særðust er skæruliðar réðust inn
á skrifstofu fyrir atvinnulausa í
Lima.
Jarðskjálfti
í Tyrklandi
Þrír slösuðust og fimmtíu heim-
ili eyðilögðust er jarðskjálfti varð
í vesturhluta Tyrklands í gær.
Fréttir herma að einnig hafi um
hundrað og fimmtíu hús orðið fyr-
ir miklum skemmdum.
Þeir sem slösuðust vom allir frá
sama héraði. Fjórtán ára drengur
varð fyrir meiðslum er hann k;ist-
aðist til jarðar er skjálftinn reið
yfir. Fjögurra ára bam varð undir
húsarústum en komst lífs af og
maður nokkur meiddist er hann
hoppaði óttasleginn út um glugga.
Umsjón:
Hannes Heimisson
og
Ingibjörg Bára Sveinsdóttir
□ Satvador:
Óttast að þúsundir hafí
fiarist í jarðskjálftanum
Að sögn starfsmanns Rauða kross-
ins í E1 Salvador er óttast að
þúsundir hafi beðið bana er jarð-
skjálfti reið yfir höfuðborg landsins
á föstudaginn. 6.000 manns hafa
særst og 20.000 em heimilislausir.
Rúmlega 300 manns lokuðust inni
í rústum verslunar- og skrifstofú-
byggingar sem kölluð var Ruben
Dario en hún hmndi í jarðskjálftan-
um sem mældist 7,5 stig á Richters-
skala. Snemma í gær hafði tekist að
ná 70 manns úr byggingunni en 25
þeirra vom látnir.
Forseti E1 Salvador, Jose Napo-
leon Duarte, lýsti yfir neyðarástandi
í landinu, Að sögn hans hafa orðið
einhveijar skemmdir alls staðar í
höfuðborginni, San Salvador.
Skæmliðar hafa lýst yfir tíma-
bundnu vopnahléi vegna hörmung-
anna. Áður en yfirlýsingin um
vopnahléið kom var tilkynnt um
nokkrar árásir í gærmorgun. Forset-
inn sagði þá einnig að neyð þúsunda
íbúa landsins væri mikilvægari en
yfirlýsingar um vopnahlé.
Hermenn og lögreglumenn vom á
götum úti og vísuðu frá mannfjölda
er safnast hafði saman til að sjá
Ruben Dario bygginguna sem nefhd
var eftir þjóðskáldi Nicaragua en er
nú miðpunktur hörmunganna.
En það var ekki aðeins þar sem
harmleikur átti sér stað. I Santa
Catalina skólanum létu 39 böm lífið
og rétt hjá Ruben Dario bygging-
unni hmndi hótel. Höfðu björgunai'-
menn grafið 25 lík úr rústum
hótelsins. Talið var að þeir íjórir sem
eftir vom inni væru látnir.
Rafinagnslaust var í sumum hverf-
um borgarinnar og einnig var
skortur á drykkjarvatni. Bráða-
birgðatjöldum var komið upp þar
sem fómarlömb jarðskjálftans höfð-
ust við.
Blaðafulltrúi Hvíta hússins, Larry
Speakes, tilkynnti fréttamönnum að
Reagan Bandaríkjaforseti hefði gert
hlé á undirbúningi sínum fyrir leið-
togafundinn í gær til þess að skipa
fyrir um hjálparsendingar til E1
Salvador. Einnig var tilkynnt um
að hjálparsendingar væru á leiðinni
frá Mexíkó, Nicaragua og Spáni.
Vestur-Þýskaland:
Óttast nýja
öldu hiyðjuveika
Samkvæmt upplýsingum dóms-
málaráðuneytisins í Vestur-Þýska-
landi var sama vopn notað við morðið
á iðnjöfrinum Hans Martin Schleyer
árið 1977 og við morðið í fyrrakvöld á
Gerold von Braunmuehl, deildarstjóra
í vestur-þýska utanríkisráðuneytinu.
Tveir grímuklæddir menn skutu
Braunmuehl fyrir utan heimili hans í
einu af úthverfum Bonn. Rauðu her-
deildimar, sem lýst hafa yfir ábyrgð á
verknaðinum, stóðu einnig á bak við
ránið á Schleyer í september 1977.
Morðið á honum mánuði seinna var
hápunktur hryðjuverka Rauðu her-
deildanna og olli það miklu kreppu-
ástandi í öryggismálum í Vestur-
Þýskalandi.
Lögreglan hefur að nýju heitið tveim
milljónum dollara fyrir upplýsingar er
leitt geta til handtöku meðlima Rauðu
herdeildanna en þeir em gmnaðir um
fimm önnur morð síðastliðna tuttugu
mánuði.
Yfirlýsingin um ábyrgðina á morð-
inu á Braunmuehl var sjö síðna bréf
sem skilið var eftir á morðstaðnum.
Var bréfið undirritað af „Árásarsveit
Ingrid Schuberts". Hún var einn af
foringjum Rauðu herdeildanna og
hengdi sig í fangelsi í Múnchen í nóv-
ember 1977. Það var mánuði eftir að
Andreas Baader, Jan Carl Raspe og
Gudmn Ensslin frömdu sjálfsmorð í
Stammheimfangelsinu nálægt Stutt-
gart.
Ránið á Schleyer í september 1977
var örvæntingarfull tilraun til að fá
látna lausa þá meðlimi herdeildanna
sem sátu í fangelsi. Flestir þeirra sem
stóðu að baki hryðjuverkunum 1977
sitja nú í fangelsi en nú er „þriðja
kynslóðin" tekin við.
Að því er embættismenn stjómar-
innar segja virðist nú sem árásunum
sé beint frá viðskiptamönnum og
starfsmönnum bandaríska hersins að
stjómmálamönnum en kosningar fara
fram í janúar næstkomandi.
IEIT20T7\&EM'
GEFANGENER
A
Iðnjöfurinn Hans Martin Schleyer er hann var fangi Rauðu herdeildanna 1977
í Vestur-Þýskalandi. Hann var myrtur mánuði eftir að honum var rænt og er
nú talið að sama vopn hafi verið notað við morðið á deildarstjóra utanrikisráðu-
neytisins á föstudagskvöldið.
Flugvél, er móðir Teresa var farþegi í, hrapaði í gær yfir Homboio á Tanza-
níu í gær. Slapp hún ómeidd en sex manns létu lífið.
Móðir Teresa
í flugslysi
Móðir Teresa slapp í gær ómeidd
er flugvél, er hún var í, hrapaði í
Hombolo á Tanzaníu í gær. Hrapaði
vélin við flugtak ofan á mannfjölda
er saíhast hafði saman til að fylgjast
með brottför hinnar 76 ára gömlu
nunnu. Sex manns létu lífið og þar á
meðal var nunna sem tilheyrði sömu
reglu og móðir Teresa. Einnig slösuð-
ust nokkrir þeirra sem voru á jörðu
niðri.
Móðir Teresa fæddist í Júgóslavíu
en foreldrar hennar komu ffá Álbaníu.
Það var árið 1949 sem hún fór að
hlynna að íbúum fátækrahverfanna í
Kalkútta. Regla hennar hefur breiðst
út i 75 löndum og hlaut hún ffiðar-
verðlaun Nóbels 1979.
Móðir Teresa var á leið frá Hombolo
til Tabora til að vera viðstödd er sjö
nunnur ætluðu að vinna heit sitt.
Ekki er vitað um orsök slyssins en
samkvæmt útvarpsfféttum frá Tanza-
níu kastaðist flugvélin til skömmu
eftir Ðugtak, náði ekki hæð og féll síð-
an til jarðar.
Árás á Kirkuk olíuhreinsunarstöðina
írakar vísuðu í morgun á bug
fréttum þess efhis að fámenn írönsk
árásarsveit bæri ábyrgð á því að ein
helsta olíuhreinsunarstöð íraks
stæði nú í björtu báli eftir utanað-
komandi árás. Talsmaður irösku
ríkisstjómarinnar sagði að líklegra
væri að olíuhreinsunarstöðin hefði
orðið fyrir sprengjum eða kúlnahríð
frá kúrdískum skæmliðum í nánd
við stöðina er njóta stuðnings írana
í langvinnri baráttu fyrir sjálfs-
ákvörðunarrétti Kúrda í Irak.
íranstjórn segir aftur á móti að
sérþjálfuð árásarsveit íranskra her-
manna hafi komist inn fyrir vamar-
girðingar Íraka við Kirkuk
olíuhreinsunarstöðina og gert öfluga
árás á hana.