Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Side 14
14
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986.
Fréttir
Einn af okkar al-
áhugasömustu gestum
- sagði Ólafur Halldórsson í Ámastofnun
„Raisa var mjög áhugasöm, einn af
okkar aláhugasömustu gestum sem
hingað hafa komið,“ sagði Ólafur
Halldórsson, settur forstöðumaður
Stoíhunar Áma Magnússonar, í sam-
tali við DV.
Raisa heimsótti Ámastofnun í gær-
morgun. Hún dvaldi þar talsvert
lengur en upphaflega var áætlað. Hún
vildi skoða allt og spurði margs. Hún
spurði mikið um sögumar og aldur
þeirra. Einna hrifhust var hún af Kon-
ungsbók Eddukvæða og skoðaði hana
í krók og kring. Hún spurði hver hefði
skrifað hana en eins og kunnugt er
veit það enginn með vissu.
„Ég las upp úr Flateyjarbók fyrir
hana og hún var mjög uppnumin,"
sagði Olafur. „Ég las kaflann um
Garðaríki og var það túlkað fyrir hana
jafnóðum. Hún hafði greinilega gaman
af því að íslendingar skyldu vitað eitt-
hvað um landið á þeim tíma svo og
að eitthvert samband hefði verið milli
landanna á þeim tíma. Hún sagðist
vona að þetta samband landanna
myndi haldast," sagði Ólafur Halld-
órsson.
-KÞ
Blaða- og fréttamenn voru alitaf að fá Raisu til að nema staðar og stilla sér upp og hún gerði allt slikt með bros á vör.
DV-myndir KAE
Vildi ekki missa af tæki-
færi til að sjjá ísland
- sagði Raisa
„Ástæðan fyrir því að ég kom til
íslands er einfaldlega sú að mig
langaði til að sjá landið. Ég vildi
ekki missa af þessu tækifæri,"
sagði Raisa Gorbatsjova í samtali
við fréttamenn þegar hún kom í
sundlaugamar i Laugardal.
„Maðurinn minn getur lítið séð
af landinu svo ég ákvað að reyna
að sjá það fyrir hann,“ bætti hún
við.
Raisa skoðaði sundlaugamar í
Laugardal í gærmorgun. Henni
þótti mikið til þeirra koma og var
„Ég kom til íslands vegna þess að
mig langaði svo að sjá landið,"
sagði Raisa. DV-myndir KAE
greinilega hin ánægðasta.
Forstöðumenn sundlauganna
færðu henni að gjöf glervasa sem
búinn var til í nokkrum eintökum
í tilefni af 200 ára afmæli Reykja-
víkurborgar í sumar. Hún var mjög
hrifin af vásanum og spurði margs.
Einkum um íþróttaiðkanir Islend-
inga. Henni var sagt að fótbolti
væri vinsælasta íþróttagreinin.
„Já, alveg rétt,“ sagði hún þá, „ég
man eftir að þjóðir okkar kepptu
ekki alls fyrir löngu.“
-KÞ
Raisa á sundlaugarbarminum i Sundlaugunum i Laugardal.
Raisa og Edda Guðmundsdóttir fyrir utan Árnastofnun.Öryggisvörður á milli
þeirra.
Raisa í pels
fyrir hádegi
Raisa er glæsileg kona. I gærmorg-
un, þegar hún heimsótti ýmsa staði
í Reykjavík ásamt gestgjafa sínum,
Eddu Guðmundsdóttur, var hún
mjög vel klædd. Hún var í svörtu,
þröngu pilsi með fellingum að neð-
an, í hálfsíðum ljósum pels, í svörtum
stígvélum, með svart veski.
Edda Guðmundsdóttir, gestgjafi
hennar, var í svörtu pilsi og skyrtu,
svörtum skóm og stórum svarthvít-
um jakka. -KÞ
Raisa og Edda Guðmundsdóttir voru hvor annarri glæsiiegri í heimsókn
þeirra um Reykjavik fyrir hádegi í gær. DV-mynd KAE
Nancy hefði haftgaman
af að koma til íslands
sagði Raisa
„Nancy Reagan hefði áreiðanlega
haft gaman af að koma hingað en eft-
ir þvf sem mér skilst átti hún ekki
heimangengt," sagði Raisa Gor-
batsjova í samtali við fréttamenn í
gær.
I ferð sinni um Reykjavík lék Raisa
við hvem sinn fingur. Hún var glað-
leg, síbrosandi og passaði upp á að
ljósmyndarar hefðu nægan tíma til að
mynda hana. Einnig gáfú öryggisverð-
ir hennar færi á því að ljósmyndarar
kæmust að henni.
Raisa var spurð að því hvort og
hvenær hún ætlaði til Washington.
Raisa var snögg upp á lagið og svar-
aði að bragði: „Ef aðalritarinn' fer
þangað fer ég með honum.“
Hún var líka spurð á hvað henni
litist best á íslandi. Hún svaraði: „Það
er fólkið sjálft, íslendingamir. Mín
fyrstu kynni af landinu em hve fólkið
er vingjamlegt og geðfellt og það er
venjulega það sem skiptir rnáli," sagði
Raisa.
-KÞ