Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Blaðsíða 18
18
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986.
Fréttir
Sirius sendur til
Hafnarfjarðar
Skip Greenpeace, Sirius, kom til
Reykjavíkur íyrir hádegi í gær en
fékk ekki að fara inn í höfhina þar
sem hún var lokuð allri óviðkom-
andi umferð. Greenpeacemenn höfðu
fengið skeyti frá dómsmálaráðuneyt-
inu þar sem þeim var heimilað að
leggjast að í Hafnarfirði sem þeir
gerðu síðan rúmlega Ijögur í gær.
Að sögn Greenpeacemanna voru
þeir búnir að fá heimild hjá íslensk-
um yfirvöldum til að fara inn í
Sundahöfn en síðan hafi því verið
breytt vegna mótmæla frá banda-
rískum og sovéskum öryggisvörðum.
„Ég tel það afar furðulegt að okk-
ur skuli ekki hafa verið leyft að
koma inn í Sundahöfh í Reykjavík
þar sem við komum með friðsamleg-
an boðskap til leiðtoganna. Við
höfum ekki hugsað okkur að trufla
fundinn á nokkum hátt og höfum
farið fram á fundi með fulltrúum rík-
isstjómanna tveggja. Ég tel að
Bandaríkjamenn og Sovétmenn hafi
tekið fram fyrir hendur íslensku rík-
isstjómarinnar í þessu máli,“ sagði
Eric M. Fersht, einn skipverja um
borð í Siriusi, í samtali við DV í gær.
Að sögn Erics vilja Greenpeace-
menn leggja áherslu á mikilvægi
þessa fundar með komu sinni hingað
og að á honum gerist eitthvað annað
en að leiðtogamir takist í hendur
og brosi hvor til annars. „Aðalá-
hersla okkar er á stöðvun tilrauna
með kjamorkuvopn og við teljum
að við séum að flytja skilaboð frá
íbúum heimsins til leiðtoganna sem
við eigum rétt á að koma til þeirra,"
sagði Eric.
Þegar D V talaði við Eric í gær var
búið að ákveða fund þeirra og full-
trúa Sovétmanna í dag en ekki var
ljóst hvort þeir myndu hitta ein-
hverja fulltrúa Bandaríkjamanna.
-SJ
Sirius fékk aldrei heimild
„Sirius fékk aldrei heimild til að
fara inn í Sundahöfn. Sendinefndin,
sem fór út í skipið, kom til baka með
þá hugmynd sem málamiðlun að
skipið færi inn í Holtabakkahöfn ef
íslenska öryggisnefhdin samþykkti
það. Það var ekki fallist á þá hug-
mynd og haldið fast við fyrri ákvörð-
un að bjóða Siriusi að leggjast að í
Hafnarfirði," sagði Gunnar B. Guð-
mundsson, hafnarstjóri í Reykjavík,
aðspurður um hvað væri hæft í því
að Siriusi hefði verið heimilað að
leggjast að í Sundahöfn og síðan
verið bannað það.
Hann sagði að hvorki bandarískir
né sovéskir öryggisverðir hefðu
komið nálægt því í gær að ákveða
hvar Sirius fengi að leggjast að,
„enda ekki ástæða til, það var búið
að ákveða þetta áður en skipið kom
til Reykjavíkur," sagði Gunnar.
-SJ
Sirius, skip Greenpeace, lagðist að bryggju i Hafnarfirði um klukkan fjögur
í gær, eftir að hafa dólað fyrir utan Reykjavíkurhöfn og farið fram á leyfi til
að sigla þar inn. DV-mynd S
Hér ræðast þeir við, Michei Shirman og nafniaus Sovétmaður. Sá sovéski ansaði engu er hann var spurður að nafni.
Ljósmynd KJ
Rússinn gaf engar vonir
ísraelski gyðingurinn Michel Shir-
man, sem er sjúkur af beinkrabba og
þarfnast þess að fá merg úr systur sinni
sem ekki fær að fara frá Sovétríkjun-
um, hitti óvænt háttsettan Sovétmann
í fréttamiðstöðinni í gær. Þeir ræddust
við góða stund og á eftir var Shirman
spurður hvort sá sovéski hefði gefið
honum einhverjar vonir um úrlausn.
Svaraði hann því til að svo hefði ekki
vérið. Svör Sovétmannsins hefðu síst
verið til þess að auka vonir hans um
að systir hans fengi að fara frá Sovét-
ríkjunum.
Shirman virtist mjög niðurdreginn
eftir samtalið og einnig þeir sem með
honum voru í fréttamiðstöðinni.
-S.dór.
Dregið
í happ-
drættinu
í fréttamiðstöðinni í Hagaskóla er í
gangi skemmtilegt happdrætti fyrir
erlendu fréttamennina. Þeir láta nafn-
spjöld sín í sérstakan kassa og svo er
dregið úr hrúgunni tvisvar á dag.
Síðdegis í gær voru vinningshafarnir
tveir Svisslendingar, Pólverji og Þjóð-
verji. Enginn vinningshafanna var
viðstaddur þegar dregið var en þeir fá
vinninginn síðar. Vinningamir eru
reyktur lax og lopavörur frá Hildu.
í gær var það Ragna Sæmundsdótt-
ir, íúlltrúi ungu kynslóðarinnar, sem
dró vinningsnöfnin út.
-S.dór.
Ragna Sæmundsdóttir, fulltrúi ungu kynslóðarinnar, dregur út vinningsnafn i
happdrættinu i gærkvöidi. Ljósm. KJ
Daniloff fékk
tvo gjafapakka
íslenski fiskurinn gerir mikla
lukku hjá erlendu fréttamönnunum
og er mikið keypt af gjafapökkunum
frá Icelandic Waters en þeir inni-
halda hvers konar niðurlagt góðmeti
úr sjónum. Sá frægi blaðamaður,
Daniloff, nýsloppinn úr prísundinni
hjá Sovétmönnum, óskaði eftir að fá
slíkan pakka í gær og voru honum
gefnir tveir pakkar. -S.dór.
Daniloff tekur við gjafapökkunum með islensku góðmeti úr sjónum.
Ljósm. KJ
Hételstavfsmenn
bera gestum
vel söguna
Það eru ekki bara leigunámshótelin
í Reykjavík sem eru fullnýtt, flest önn-
ur hótel eru einnig fullbókuð. DV
hafði samband við nokkur þeirra í gær
og forvitnaðist um hvemig helgin
hefði gengið fyrir sig hjá þeim.
Sumir blaðamennirnir
ógurlega stressaðir
Jónína Ingvarsdóttir í gestamóttök-
unni á Hótel Hofi sagði að það hefði
verið mjög mikið að gera í kringum
gesti hótelsins, sérstaklega hefði verið
mikið álag á skiptiborðinu. Það hefði
hins vegar gengið ágætlega að ná út
úr landinu. Á Hótel Hofi er fjölmiðla-
fólk frá hinum ýmsu löndum, eins og
t.d. Norðurlöndunum, Englandi og
Hollandi. Jónína sagði að flestir gest-
anna væru mjög almennilegir en sumir
þeirra væru ógurlega stressaðir. „Ég
hef tekið eftir því að fréttamennimir
em mjög hræddir um að það sé verið
að okra á þeim hér og em þeir sífellt
að spyrja hva’ð hlutimir kosta,“ sagði
Jónína.
Þægileg helgi
Á Hótel Óðinsvéum em mestmegnis
gestir á vegum bandaríska sendiráðs-
ins og sagði starfsstúlka þar að helgin
hefði verið róleg og góð. Hún sagði
gestina mjög þægilega í umgengni.
Sömu sögu hafði starfsstúlka á City
Hóteli að segja. „Þeir fara snemma á
morgnana og koma seint á kvöldin og
ég get ekki sagt að þetta sé kröfuhart
fólk,“ sagði viðmælandi okkar. Á Hót-
el Borg em bæði gestir í tengslum við
leiðtogafundinn og tölvusýninguna.
Þar hefur verið „bijálað að gera“, eins
og viðmælandi blaðsins orðaði það.
En þar var sama sagan, gestimir al-
mennilegir og helgin hafði gengið
nokkuð snurðulaust fyrir sig.
-SJ