Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Side 29
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986.
29
Grímuklæddir lögreglu-
menn í Rómabotg
LTC college
OF ENGLISH
Rccogniscd as cfficicnt by Thc British C.ouncil
Umferðarlögreglan í Rómaborg hef-
ur nú fengið grímur til að verjast
menguninni í borginni. Lögreglustjór-
inn hefur meira að segja hótað að láta
banna umferð um miðborgina vegna
óskaplegrar mengunar sem þar er á
mesta annatímanum.
Gangandi vegfarendur eiga í erfið-
leikum með að komast leiðar sinnar
vegna þess að bifreiðum er lagt á gang-
stéttum. Fyrir vikið er greiðasta leiðin
fyrir þá á götunum. Þar er þó jafiian
mikil þröng og hávaði þvi ítalskir bíl-
stjórar eru ósparir á flautumar.
Verslunareigendur segja að útilokað
sé að hafa dyr verslana sinna opnar
vegna hávaðans og mengunarinnar.
Þeir sem búa á fyrstu hæðum húsa
við helstu umferðaræðamar geta með
engu móta haft opna glugga.
Deilt um úrræði
Umferðarvandamálin í Rómaborg
hafa vakið upp miklar deilur í borgar-
stjóminni og umhverfisvemdarsinnar
krefjast skjótra aðgerða. Borgarstjór-
inn hefur lýst því yfir að vel komi til
greina að banna umferð um miðborg-
ina og telur að slíkt bann megi reisa
á heilbrigðisreglugerð borgarinnar.
Hann vill þó ekki beita reglugerðinni
fyrr en útséð er að engin önnur leið
finnst til að greiða úr vandanum.
I borgarstjóminni er meirihluti fyrir
því að láta takmarka umferð um mið-
borgina þegar mengunin af útblæstri
bifreiðanna hefur náð vissu marki.
Ríkisstjóm landsins hefúr einnig fall-
ist á þessa aðferð en telur að það sé á
valdi borgaryfirvalda á hveijum stað
að annast eftirlit og fyrirskipa tak-
mörkun á umferð sé þess talin þörf.
„Ástandið er hræðilegt en svo virð-
ist sem borgarstjómina skorti dug til
að gera eitthvað meira en að ræða
málið,“ segir Paolo Guerra, einn for-
svarsmanna umhverfisvemdarsinna í
Rómaborg.
Borgarstjórinn í Róm, Nicola Signo-
rello, segir að beðið sé með aðgerðir
þar til að nákvæm rannsókn hefúr
farið fram á hve mengunin er mikil.
Fyrst þegar því er lokið er réttlætan-
legt að ákveða lokun á hluta borgar-
innar. Vitað er að gatnamálastjórinn
í Rómaborg er á móti takmörkunum
á umferð einkabíla.
Óbærilegur hávaði
Frumkönnun á hávaða í borginni
sýnir að þar er hávaði með því mesta
sem gerist í borgum heims. Þar mælist
hávaði að jafnaði 70 desíbel á anna-
tímum og nær 90 desíbelum þegar
verst lætur. Almennt er talið var-
hugavert ef hávaðinn mælist yfir 65
desíbelum.
Nýlegar tölur um loftmengun eru
ekki til en þegar síðast var mælt árið
1982 þá var mengunin með því mesta
sem gerist í stórborgum og síðan hefur
ekkert verið gert til að draga úr meng-
un. Lungnasérfræðingur í Róm hefúr
einnig bent á að öndunarsjúkdómar
séu óeðlilega algengir meðal íbúa mið-
borgarinnar.
„Dauðsföll vegna sjúkdóma í lung-
um eru þrisvar sinnum algengari í
miðborg Rómar en í úthverfunum,"
segir sérfræðingurinn Renato Zico.
Talið er að þetta megi í aðalatriðum
rekja til mengunar í miðborginni.
Lögreglumenn eru þó taldir í einna
mestri hættu. Stór hluti þeirra hefur
átt við erfiðleika að stríða vegna
krankleika í lungum. Lögreglumenn
hafa krafist aðgerða vegna mengumar
á vinnustaðnum. Ekkert hefur þó orð-
ið úr aðgerðum af hálfú yfirvalda
þaimig að lögreglumenn hafa sjálfir
orðið sér úti um grímur til að verjast
menguninni.
Lögreglumenn með grímur
Lögreglumenn segja að ástandið
verði aldrei verra en síðustu vikumar
fyrir jólin þegar umferðin í miðborg-
inni nær hámarki. Gatnakerfi mið-
borgarinnar var í upphafi aðeins ætlað
umferð hestvagna og er því óhæft til
að taka við umferð þúsunda biffeiða.
Mengunin hefur líka sett mark sitt
á hin fjölmörgu minnismerki í Róma-
borg. Nú þykir sem velflest minnis-
merkin séu alltaf hulin vinnupöllum
því nær stöðugt er unnið að viðgerðum
á þeim. Styttur sem hafa staðið í 2000
ár og þolað stríðsátök og jarðskjálfta
em nú að molna niður vegna mengun-
arinnar.
Helsta ráðið sem hingað til hefúr
verið notað til að takmarka umferð
um miðborgina er að fækka bílastæð-
um en það dugar skammt því ítalir
em þekktir fyrir flest annað en að
leggja endilega í lögleg stæði. ítalir
em líka frægir fyrir að fara helst allra
ferða sinna í biffeiðum. Sagt er að
þeir kjósi frekar að aka en að ganga
nokkur hundmð metra.
Umhverfisvemdarsinnar segja að
þetta sé spuming um hugarfar og því
þurfi ítalir að breyta til ef bifreiðimar
eiga ekki að taka af þeim öll völd.
Borgin eilífa verði orðin að emu alls-
herjar bílastæði innan fárra ára ef svo
heldur ffam sem horfir. Reuter/GK
Á fallegum orlofsstað við sjómn, í East-
boume á suðurströnd Englands. Nám-
skeið frá þrem vikum upp í eitt ár.
Heimavist eða gisting á heimilum.
Vinsamlega útfyllið eyðublaðið og sendið
þsð til: ™ '
Principal (DV),
LTC College of English ^ rurrto**
Compton Park, Compton Place Road,
Eastbourne, Sussex, England BN21 ÍEH j Ht!limMan9
Tel: 27755Tlx. 877440 PBURNS LTC G|
| Vinsamlega sendiö bækling ykkar. Ég hef áhuga á:
| □ ítarlegu almennu enskunámi
□ Ensku fyrir einkaritara
□ Ensku fyrir verslun, viðskipti og
hótelstjóm
□ Sumamámskeiðum
Nafa...................................................................Hr/Fr
... (DV)
I
IV) |