Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Page 36
36
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986.
ÚRVAL - NÓVEMBER - ER KOMIÐ Á BLAÐSÖLUSTAÐI
ÚRVAL LESTRAREFNIS VIÐ ALLRA HÆFI
MEÐALS EFNIS í NÓVEMBERHEFTI MÁ NEFNA:
FASIÐ SEGIR TIL UM ÁSTARHITANN
ÚRVAL
TÍMARIT
FYRIR
ALLA
Fréttir
Kaupgjaldsvísitalan:
Ákvörðunarvald-
ið er hjá Al-
þýðusambandinu
- verðbólgan nær helmingi hærri en gert var ráð fyrir
Enn hefur ekki verið tekin ákvörð-
un um hvort kaup hækkar um 2,03%
þann 1. desember nk. en samkvæmt
vísitöluhækkun ætti það að gerast.
Það er í ákvörðunarvaldi Alþýðusam-
bandsins hvort af þessari kauphækk-
un verður, en sem kunnugt er varð
samkomulag um það milli verkalýðs-
forystunnar og vinnuveitenda að
skiptast á um það út árið að vera
ákvörðunarvald í þessu efni ef sam-
komulag næst ekki milli aðila.
Vilhjálmur Egilsson, hagfræðingur
VSÍ, sagði að ákvörðunar í þessu efni
væri að vænta alveg á næstunni, en
aðilar hafa haldið með sér einn fund
um málið en engin ákvörðun var tekin
þar.
Nú er ljóst að verðbólgan er um 14%
sem er nærri helmingi meira en gert
var ráð fyrir í febrúarsamningunum.
Þá var talað um að verðbólgan í árs-
lok yrði á bilinu 7% til 8%. Vilhjálmur
var spurður um ástæðuna fyrir þessu.
„Það er margt sem veldur þessu. Ef
til vill á gengisþróunin mestan hlut
að máli en hún hefur verið afar óhag-
stæð hvað þetta varðar. Þá spila laun
þama inn í líka og síðast en ekki síst
sú mikla þensla sem verið hefur í þjóð-
félaginu. Það hefur verið velgengni í
útflutningsgreinum sem skilar sér út
í þjóðfélagið. En það sem brugðist
hefur er að ekki hafa verið gerðar
ráðstafanir til að hamla á móti þensl-
unni til að halda verðbólgunni niðri.
Þetta tel ég höfuðástæður þess að
verðbólguspáin, sem gerð var í febrú-
ar, virðist ekki ætla að standast," sagði
Vilhjálmur Egilsson.
-S.dór
Guðmundur með samskonar gildru og þaer sem stolið var. DV-mynd KAE
Heimasmíðuðum
minkagildrum stolið
Fyrir nokkru var tveimur heima- eða þá aðila sem hafa gildrumar nú
smíðuðum minkagildrum stolið við undir höndum að koma þeim til Guð-
Hestvatn í Grímsnesi. Er eiganda mundar Biynjólfssonar í Barmahlíð
þeirra, sem smíðaði þær, umhugað um 55, sími 17532.
að fá þær aftur. Vill hann biðja þann
Formannaráð-
stefna ASÍ
haldin a
Formannaráðstefiia Alþýðusam-
bands íslands verður haldin á morgun,
sunnudag, en gert er ráð fyrir að þar
verði ákveðið hverjar verði helstu
kröfur verkalýðshreyfingarinnar í
komandi kjarasamningum.
Guðmundur Þ. Jónsson, formaður
Iðju, sagði að enn hefðu í raun engar
ákveðnar línur verið lagðar í þessum
málum. Ýmsar hugmyndir væru uppi
og sagðist Guðmundur telja að útkom-
an yrði sú að félögin sjálf semdu um
morgun
launaflokkabreytingar og önnur sér-
mál sín, en þau mál, sem snúa að
ríkisvaldinu, yrðu í höndum ASÍ, sem
þýddi að samflot yrði haft í þeim mál-
um.
Því er svo við að bæta að sambands-
stjóm ASÍ hefur verið kölluð saman
til fundar á mánudaginn kemur og
má gera ráð fyrir að eftir þann fund
fari skriður að komast á samninga-
málin.
-S.dór