Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986.
5
Sljómmál
Deilur um prófkjörskjörskrá Framsóknar í Reykjavík:
Hundrað utanbæjar
menn mega kjósa
Einn frambjóðenda í próíkjöri Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík vegna
þingkosninga, Haraldur Ólafsson al-
þingismaður, telur það óveijandi og
siðlaust að fólk úr öðrum kjördæmum
fái að taka þátt í prófkjörinu. Um 100
manns í Félagi ungra framsóknar-
manna eiga lögheimili annars staðar.
Kjömefnd vísar til laga FUF og ák-
vörðunar fulltrúaráðs. Haraldur hefur
ekki lagt málið fyrir ráðið.
Nú em 1226 félagsmenn í FUF -í
Reykjavík en vom 886 fyrir skemmstu.
Hallur Magnússon, formaður félags-
ins, telur að um 10% félaganna séu
með lögheimili annars staðar á
landinu. Hann vísar til spenvolgra
laga Framsóknarflokksins um að fé-
lagsaðild fari eftir búsetu. „Ég mun
ekki ótilneyddur svipta þetta fólk rétt-
indum, margt af því sem starfar best
í félaginu. Eg minni Harald Ólaf'sson
og aðra sem em á sömu skoðun á það
að þingmenn flokksins em kjömir til
þess að þjóna allri þjóðinni en ekki
einungis afmörkuðum kjördæmum,"
segir Hallur.
Formaður stjómar fulltrúaráðsins,
Steinþór Þorsteinsson, segir að Har-
aldur hafi ekki lagt þetta mál fyrir
ráðið. „Ef einhver brögð em að því
að fólk sem á kosningarétt í öðrum
kjördæmum geti tekið þátt í prófkjör-
inu hér, ef það til dæmis gæti ráðið
úrslitum, þá er það auðvitað brotalöm
og óæskilegt. Okkur hefur ekki borist
neitt erindi um þetta en við munum
athuga málið ef slíkt erindi berst.“
Upphaflega vakti Haraldur Ólafsson
athygli kjömefhdar á þessari skipan
mála. Kjömefnd vísar, eins og fyrr
segir, til laga og samþykkta stofiiana
flokksins. Eiríkur Tómasson, formað-
ur kjömefndar, sagði það ekki á
hennar valdi að ákveða neitt annað.
Hún væri einungis til þess að fram-
kvæma ákvarðanir sem fyrir lægju.
Á kjörskrá í prófkjöri framsóknar-
manna í Reykjavík em nú um 4.200
manns. Ýmist em það flokksmenn eða
stuðningsmenn sem undirrita yfirlýs-
ingu um að þeir séu ekki í öðrum
stjómmálaflokki.
-HERB
Hallur Magnússon með undirritaðar stuðningsyfirlýsingar og inntökubeiðnir vegna þátttöku í prófkjörinu i Reykjavik.
Em margir stuðningsmenn annarra fiokkar þar á meðal?
mmm ^ ■■ *
„Folk ur
öðmm
flokkum
kýs í
próf-
kjörinu“
„Mér finnst það alvarlegt mál
að fólk sem ömgglega er flokks-
bundið í öðrum stjómmálaflokk-
um er nú skráð til þátttöku í
prófkjöri okkar framsóknar-
manna,“ segir Hallur Magnússon,
formaður FUF. „Ég veit um þón-
okkra einstaklinga sem koma úr
öðrum fiokkum í prófkjörið hjá
okkur,“ segir Haraldur Ólafsson
alþingismaður, einn frambjóðenda.
Hann segist hafa vakið athygli
kjörstjómar á þessu. „Ég veit að
það er erfitt að eiga við þetta. Ef
fólk hefur undirritað stuðnings-
yfirlýsingu við flokkinn og að það
sé ekki í öðrum flokkum, getur
auðvitað verið að það hafi snúið
fra villu síns vegar. Það er þá auð-
vitað ágætt,“ segir Haraldui4.
Hallur sagði að dæmi væm um
fólk sem hefði afturkallað yfirlýs-
ingar sínar þegar gengið hefði
verið á það um hvort það væri í
öðrum flokki.
„Þetta em fyrst og fremst sjúlf-
stæðismenn,“ segir Hallur, „í
sumum tilfellum em það einungis
makar þekktra sjálfstæðismanna,
sem allir vita þó að hafa fylgt Sjálf-
stæðisflokknum." -HERB
Kjördæmin í
slag um vara-
flugvöllinn
Þingmenn Norðurlandskjördæmis
eystra hafa lagt fram á Alþingi þingsá-
lyktunartillögu um varaflugvöll fyrir
millilandaflug á Akureyri. Vilja þeir
að ríkisstjómin láti fara fram svo fljótt
sem kostur er rækilega úttekt á mögu-
leikum þess að Akureyrarflugvöllur
þjóni sem varaflugvöllur.
Með þessari tillögu hafa þingmenn
Norðurlandskjördæmis eystra opin-
berlega hafið slag um staðsetningu
varaflugvallarins. Búast mú við að
þingmenn Norðurlandskjördæmis
vestra komi til með að berjast fyrir
því að Sauðárkrókur verði fyrir val-
inu.
Þingmenn Austurlands munu trú-
lega einnig hella sér út í slaginn og
beijast fyrir því að næsta flugvallar-
gerð verði nýr flugvöllur við Egils-
staði.
Nefrid, sem samgönguráðherra skip-
aði fyrir nokkrum árum til að gera
áætlun um framkvæmdir í flugmálum,
hefúr lagt til að Sauðárkróksflugvöll-
ur verði varaflugvöllur millilanda-
flugs.
Með tillögunni um Akureyrarflug-
völl fylgir meðal annars grein frá
Sigurði Aðalsteinssyni, framkvæmda-
stjóra Flugfélags Norðurlands, en í
henni segir:
„Ég tel breyttar forsendur í blind-
aðflugstækni og þá góðu reynslu, sem
þegar er orðin af núverandi blind-
aðflugi úr suðri að Akureyrarflugvelli,
gera að litlu helstu rökin sem hafa
orðið til þess að Sauðárkróksflugvöll-
ur er nú af mörgum talinn verðandi
varaflugvöllur fyrir millilandaflugið.“
-KMU
Kjósendur geti
krafist atkvæða-
greiðslu
„Sveitarstjóm er skylt að láta fara
fram atkvæðagreiðslu um einstök mál
ef tíundi hluti kjósenda óskar þess eða
þriðjungur sveitarstjómar. I sveitarfé-
lögum með færri en 1.000 íbúa skal
þó miða við fjórðung kosningabærra
manna," segir í lagafrumvarpi sem
María Jóhanna Lárusdóttir, varaþing-
maður Kvennalista, hefur flutt um
um mál
breytingu á sveitarstjómarlögum.
„Slík atkvæðagreiðsla telst bindandi
fyrir stjóm sveitarfélagsins ef tveir
þriðju hlutar kjósenda taka þátt í
henni og skal þá meirihluti ráða. At-
kvæðagreiðslan skal fara fram sam-
hliða næstu almennu kosningum í
sveitarfélaginu,“ segir ennfremur í
frumvarpinu. -KMU
URVALIÐ ER
ÓVENJU MIKIÐ
Og verðið? Þú getur sleppt Glasgowferðinni.
GLASGOW-
FARAR -
GERIÐ
VERÐSAM
ANBURÐ
Þú borgar ekki farmiða
FATALAND.
Opið föstud. 10-21,
laugard. 10-18.
Smiðjuvegi 2, Kópavogi
Símar 79866, 79494