Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 26. NÖVEMBER 1986. Spumingin Hvað telurðu mannsæmandi lágmarkslaun? • j c: Kristín Guðjónsdóttir: 35.000 krónur eru alveg lágmark og er ástandið í dag í launamálum engan veginn fullnægjandi. Ég hef nú samt trú á eða vona allavega að þetta eigi eftir að batna þegar fram líða stund- Magnús D. Hjartarson, umsjón- armaður á Hlemmi: Ekki minna en 35-38.000 krónur. Það á að hækka lágmarkslaunin eingöngu en láta háu launin standa í stað. En ég tel okkur sem fáum borgað tímakaup, éins og starfsmenn hjá borginni eða ríkinu, koma einna verst út. Það væri nú ekki vitlaus byrjun að lækka tekjuskatt hjá þeim lægst launuðu. Ásthildur Halldórsdóttir, starfar í Hampiðjunni: Mér finnst 30.000 kr. algjört skilyrði en samt varla nógu mikið. Það verður allavega að leiðrétta laun hjá þeim lægst laun- uðu, svo sem fóstrum og hjúkrunar- konum. Ég hef nú samt því miður ekki þá trú að þetta muni lagast á næstunni fyrst ekkert er búið að gera nú þegar en það gerir samt ekkert til að vona að þetta komist í eðlilegt horf. Jóhann Gröndal verkamaður: 36.000 er alveg lágmarkið. Verka- mannslaunin eru alveg virkilega lág og maður gerir ekki meira en að skrimta á þeim. Það væri náttúrlega langraunhæfast að jafna launin meira ef einhver möguleiki væri til þess. Elín Eyfjörð: Mér finnst 40.000 krónur alveg lágmark. Tel ég að það ætti ao jafna launin meira svo það verði ekki svona mikið bil milli hæst og lægst launuðu og það væri jafn- vel til bóta að reyna að lækka skattana meira. Lesendur_________________________dv Hleypið nýjum hljómsveitum að Sævar Pálsson skrifar: Ég vil gera athugasemd við skemmtiefiii hjá Ríkissjónvarpinu en tel ég að þar mætti margt vera betra. Mér skilst að Hrafii Gunnlaugsson sé dagskrárstjóri hjá sjónvarpinu fyrir innlent skemmtiefiii og finnst mér hann engan veginn standa sig sem skyldi. Finnst mér þessar íslensku hljómsveitir, sem hann er að láta koma fram í sjónvarpinu, alltaf þær sömu og ekkert keppt að því að fá einhverj- ar nýjar og ferskar hljómsveitir, nei, gömlu jálkamir virðast algjörlega ráða þar ríkjum. Það mætti halda að valið á hljómsveitunum í dagskrána byggðist á því að maður þekkir mann, þ.e.a.s. gamli góði klíkuskapurinn virðist vera þar allsráðandi eins og annars staðar. Sér maður þetta glöggt ef maður fylgist eitthvað með sjón- varpinu á annað borð, þetta virðast allt vera vinir og vandamenn hans, svo sem hljómsveitimar Stuðmenn og Sykurmolar. Ég verð nú að segja að mér ofbauð þegar hljómsveitin Sykur- molar (hét þá víst Kuklið) kom fram í sjónvarpinu í fyrra en þar var söng- konan Björk alveg kasólett og hálfber, þannig að bumban stóð út í allar átt- ir, og lét eins og hún ætti lífið að leysa. Mér finnst vera takmörk fyrir því hvað hægt er að sýna fólki en þetta gekk alveg fram af mér, svo við- bjóðslegt var það. Seinasti þátturinn um Rokkamir geta ekki þagnað fannst mér afskap- lega lélegur og á erfitt með að trúa að það sé ekki hægt að bjóða fólki upp á eitthvað skárra. Það eru sömu hljómsveitimar ár eftir ár, hvemig væri að fá einhverjar nýjar hljómsveit- ir svona til tilbreytingar? Ég hef frétt, og sel ég það ekki dýrar en ég keypti það, að það sé nóg af góðum og efnilegum listamönnum en þeim sé bara ekki hleypt að vegna þess að gömlu jálkamir hafi alltaf for- gang sökum klíkuskapar. Svo ekki sé nú minnst á helgardag- skrána, hvílík hneisa. Það em alltaf einhverjar eldgamlar, hundleiðinlegar austantjaldsmyndir, maður hefði nú haldið að eftir samkeppnina við Stöð 2 fæm þeir nú að bæta aðeins myndavalið og þá sérstaklega um helgar. Það vill nú svo til að um helg- ar vill maður einna helst fá góðar myndir til þess að geta setið í róleg- heitunum heima og notið kvöldsins með því að horfa á góða spennumynd. Jæja, ég vonast til þess að athuga- semdir mínar komist til skila og hafi einhverjar haldgóðar breytingar í för með sér. A VIEW TO A KILL James Bond 007 Það vantar alveg góðar spennumyndir um helgar og þessar austantjaldsmyndir geta verið ósköp þreytandi til lengdar. Engin þörf á vímuefhamynd Skattgreiðandi skrifar: „Erum að semja um vímuefiia- mynd,“ er haft eftir forðstöðumanni fjármála- og hagsýsludeildar Reykja- víkurborgar i blaði nýlega. Borgarstjórinn í Reykjavík haíði stöðvað töku á vímuefnamynd sem á að vera eins konar vamaðarmynd gegn fíkniefhum og notkun þeirra. Énn ein vandamálamyndin sem troða á í skólakerfíð til sýninga. - Góð fjár- festing það, eða kannski hitt þó heldur. Kostnaður við myndina hafði hækkað um 226% frá því sem ætlað hafði ve- rið í upphafi. Ekki að furða að borgarstjóra hafi brugðið í brún er kostnaðurinn var kominn upp í um það bil fjórar milljónir króna! Ekki er heldur að undra þótt grátur guðfræðingsins hafi ekki hrifið sem skyldi þegar líka er tekið tillit til þess að hinn aðilinn að myndinni er núver- andi bæjarstjóri í Hafharfirði. Það er þvi varla líklegt að borgar- stjórinn okkar verði svo rausnarlegur að veita frekari styrk til þessarar ónauðsynlegu myndatöku til að styrkja starfsbróður sinn í Hafnar- firði. Það er heldur ólíklegt einnig að skattgreiðendur hér í Reykjavik verði yfir sig hrifhir af því að semja um greiðslur til aðila sem hafa ekki meiri tök á fjármálum en svo að þeir virðast renna blint í sjóinn með kostnaðará- ætlun frá byrjun. Þar sem menntamálaráðherra hefur lýst því yfir á einhverri ráðstefnunni nýlega að hann myndi eindregið vilja stuðla að því að þessi vandamálamynd þeirra „tákn“bræðra yrði að veruleika skulum við skora á borgarstjóra að leyfa menntamálaráðherra að efna heit sín, þótt auðvitað sé það alfarið í blóra við skattgreiðendur. Við Reyk víkingar getum þó alla vega fríað okkur af þessum afglöpum og leyft menntamálaráðherra að þóknast „tákn“ bræðrum með því að rétta þeim ávísanir sem fara fram úr þeim 1,7 Stuð hjá H.I. skrifar: Félag eldri borgara ákvað að halda skemmtun á Hótel Sögu, í Súlnasal, fimmtudaginn 20. nóvember. Fólkið átti að mæta þama um áttaleytið en eftirvæntingin var svo mikil að salur- inn var orðinn fullur klukkan hálfátta. Þama var mikið um tjútt og fjör og allir skemmtu sér konunglega. Ég er svo ánægður með þetta stór- kostlega og velheppnaða kvöld að ég vil þakka öllum er sinn skerf lögðu í „Hér vantar engar vímuefna- eða vandamálamyndir. Við höfum nóg af þeim í íslenska sjónvarpinu þar sem allt er greitt meö opinberu fé.“ milljónum króna sem fyrst var um samið. Hér vantar engar vímuefha- eða vandamálamyndir. Við höfum nóg af þeim í íslenska sjónvarpinu þar sem allt er greitt með opinberu fé. Borgarstjórinn á heiður skilið fyrir að taka hart á tilraunum til að blekkja með vanáætlunum um kostnað sem fellur á borgarsjóð. Samningar um kostnaðarskiptingu, þegar í óefhi er komið, eru engan veginn réttlætanleg- ir. þessa ágætu skemmtun. Við bytjuðum á matnum og vil ég þakka matsvein- unum fyrir afbragsgóðan mat. Einnig vil ég hrósa hljómsveitinni fyrir gott lagaval, svo ekki sé nú minnst á hina frábæru skemmtikrafta er ætluðu að kæfa alla úr hlátri en það voru engir aðrir en leikaramir Öm Ámason, Sig- urður Siguijónsson og Karl Ágúst Úlfsson. - Strákar, þið fóruð á kostum. Þjónustan var til fyrirmyndar í alla staði og kvöldið eftir því. öldraðum Einokun kaupmannanna Ingibjörg Hafsteinsdóttir hringdi: Almenningi hlýtur að vera í sjálfs- vald sett hvort hann fer í verslunar- ferðir ef honum sýnist svo. Maður skyldi ætla að það teldist til mannrétt- inda „að velja eða hafna sjálfur" ef verðlagið er ekki hagstætt héma heima. Þá liggur náttúrlega beinast við að versla annars staðar þar sem bjóðast betri kjör. Mér finnst engan veginn sanngjamt eða réttlætanlegt að hindra mig í að fara í verslunarferðir erlendis af því að einhver gömul og úrelt lög segja að ég megi ekki taka með mér meira af tollfrjálsum vamingi en fyrir 7.000 krónur. Það ætti hver heilvita maður að sjá að þetta er alltof lágt hámark. Ég á eifitt með að trúa því að hægt sé að skylda mig til að versla hérlend- is, hjá þeim sem ég hef alls ekki efni á að versla hjá. Það er nú alveg stað- reynd að kaupmenn héma gefa nú ekki neitt og þessar verslunarferðir sýna einmitt best að þeir em engan veginn samkeppnisfærir. Þá á ekki að vera hægt að skylda fólk til að versla hérlendis á þeirri forsendu að einhver lög mæli svo. Þessi lög eða reglugerð- in, sem styðst við þessu tilteknu lög, ber það greinilega með sér að hún em algjör tímaskekkja, og er þvi orðið tímabært að leiðrétta reglugerðina að breyttum aðstæðum. Eða til vemdar hverjum em þessi lög eiginlega? Ekki hinum almenna borg- ara, svo mikið er víst, og ef á að kryfja það til mergjar þá blasir svarið við - auðvitað er verið að hugsa um kaup- mennina og einokun þeirra á mark- aðnum hér. Hver ræður þessu eiginlega? Það tapar alla vega enginn á þessum verslunarferðum nema einna helst kaupmennimir sjálfir. Það er fjárhagslega miklu ódýrara að versla erlendis og meðan svo er þá eiga ein- hver minnihlutaöfl ekki að ráða því hvert fólk vill snúa sér. Ég held að kaupmönnunum hefði verið nær að lækka sínar vömr svo hægt yrði að kalla það „jafnvirði" í staðinn fyrir að fara klaga tollyfirvöld og biðja þau að framfylgja þessum lög- um til hins ýtrasta. Það verður líka að hafa það hugfast að meginþorri fólks er að versla til einkanota en er ekki að flytja verslunarvaminginn inn til að selja. Mér er spum: ætla ráðamenn þjóð- arinnar virkilega að láta kaupmenn- ina ráða ferðinni í þessum málum sem öðrum? Ég vonast til að þessi lög verði endurskoðuð sem fyrst því „valið“ hlýtur að vera mitt, ekki kaupmann- ana - eða hvað? HRINGIÐ í SÍMA 27022 MILLI KL. 13 og 15 EÐA SKRIFIÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.