Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Blaðsíða 40
- iví--"'-- R Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Aucjlýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjalst, óháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 26. NÖVEMBER 1986. Forval ABR: Skjóta föst- um skotum Forval Alþýðubandalagsins í - Rcykjavík fer fram um næstu helgi. Frambjóðendur í forvalinu og stuðn- ingsmenn þeirra senda frá sér bréf og bæklinga með útlistun á ágæti sinna manna og nota um leið tækifærið til að skjóta á aðra. Stuðningsmenn Guðna Jóhannessonar, formanns AB í Reykjavík, hafa sent frá sér fjórblöð- ung til kynningar á Guðna. Þar segir að eitt af því sem Guðni vilji beita sér fyrir sé „Endurreisn verkalýðshreyf- ingarinnar, afiiám vinnuþrælkunar í landinu, harðari launabaráttu, burt með láglaunastefnuna, sem bitnar fyrst og fremst á konum. . . “ Það fer ekki milli mála á hvem er verið að skjóta með þessum setningum enda eru stuðningsmenn Guðna hörð- Jfctu andstæðingar Ásmundar Stefáns- sonar og verkalýðsarmsins sem styður hann. Þá hefur bréf Reykjavíkurdeildar Æskulýðsfylkingarinnar vakið mikla athygli þar sem foiysta flokksins er sökuð um ófrægingarherferð á hendur Guðrúnu Helgadóttur, sem sé þeim til háborinnar skammar, eins og komist er að orði í bréfinu. Talað er um að hnekkja aðfórinni og tryggja Guðrúnu 1. eða 2. sætið. Stuðningsmenn Guðna Jóhannessonar biðja menn að kjósa hann í 3ja sætið. -S.dór Búseti byrjar á níu hæða blokk Fyrsta skóflustunga að níu hæða fjölbýlishúsi Búseta við Frostafold í Grafarvogi verður tekin klukkan 14.30 1 dag. Þar byggir Hagvirki hf. 46 íbúð- ir sem Valdimar Harðarson arkitekt hefur teiknað. Félagar í Búseta ætla að flytja inn eftir tæpt ár. „Við fengum lán fyrir 15 íbúðum í fyrra. Síðan eigum við von á láni fyrir að minnsta kosti 15 íbúðum í viðbót. f ^J^já er ekki svo mikið eftir,“ sagði Jón —"'hunar Sveinsson, stjómarmaður í Búseta, í morgun. Lánin eru fyrir 85% af byggingar- kostnaði en til 30 ára. 1 almenna kerfinu em lán veitt til 40 ára. -KMU jyx Ert þú á leið í /MIKLAG4RD LOKI Það verður sem sagt líka sláturtíð eftir kosningar! Samningamálm: Ekki komnir út úr byrjuninni - beðið eftir svari rikisstjómarinnar og niðurstóðum bónusnefndar „Ég get svo sem lítið sagt eins og málin standa nú, annað en að við sendum þetta bréf til ríkisstjómar- innar í gær, þar sem spurst er fyrir um eitt og annað er snertir samning- ana. Við væntum svars mjög fljót- lega enda erum við í tímaþröng eins og öllum má vera ljóst,“ sagði Þórar- inn V. Þórarinsson, framkvæmda- stjóri VSl, í samtali við DV í morgun. Guðmundur Þ. Jónsson, formaður Iðju, sagði að svo virtist sem at- vinnurekendur væru jákvæðir gagnvart þeim kröfúm ASÍ að af- leggja lægstu kauptaxta, en það ætti eftir að koma í ljós hvort hugur fylg- ir máli. „Ég er ekki viss um að það takist að semja á þessari einu viku, en það ætti að koma í ljós á þeim tíma hvort hægt er að ná samningum og auðvit- að skiptir það öllu máli. Orvinnslan sjálf tekur eflaust lengri tíma,“ sagði Guðmundur. Hann sagði að menn biðu eftir svari ríkisstjómarinnar við bréfinu frá í gær en það væri ekki síður beðið eftir niðurstöðum bónusnefndarinnar, en niðurstöður viðræðna manna þar væm mjög mikilvægar fyrir samninga um að bæta kjör hinna lægst launuðu sem að væri stefht. Samningaviðræðurnar halda svo áfram í dag á öllum vigstöðvum. -S.dór Svavar Gestsson: Rekfýrst Jóhannes, Tómas og Geir Svavar Gestsson skoðar sig í spegii i förðunarherberginu á Stöð tvö áður en útsending návígis hans og Jóns Bald- vins Hannibalssonar hófst í gærkvöldi. DV-mynd KAE Veðrið á morgun: Elá annesjum fýrir norðan Austan- og víða norðaustanátt. Skýjað og víða rigning eða slydda á Suðaustur- og Suðurlandi. É1 verða á armesjum fyrir norðan. Hiti á bil- inu 0 til 5 stig. „Það yrði fyrsta verkefhið að skipta um yfirmenn í Seðlabanka og Þjóð- hagsstofnun. Þar em þeir Jóhannés Nordal, Tómas Ámason og Geir Hall- grímsson pólitískt valdir embættis- menn í bankanum. Hins vegar er sjálfskipt í Þjóðhagsstofnun," segir Svavar Gestsson, formaður Alþýðu- bandalagsins, um það hvemig hann vill endumýja embættismannakerfið komist hann til valda í ríkisstjóm. „Þetta em lykilstöður í peninga- og efnahagsmálum og þar verða að vera menn sem em samstíga sitjandi ríkis- stjóm við framkvæmd stefhumála. Að öðm leyti vil ég að settar verði reglur um endumýjun í mörgum öðrum æðstu embættum hins opinbera. Ég get nefht yfirmenn ráðuneytanna og ýmissa stofhana eins og Orkustofnun- ar, Landsvirkjunar, Húsnæðisstofh- unar, Tryggingastofhunar og Ríkisspítalanna. I allt er um að ræða fjölmargar mik- ilvægar stöður þar sem ég tel að regluleg endumýjun verði að eiga sér stað til þess að viðkomandi stofnanir verði starfhæfar. Hefur ekki Stein- grímur verið að kvarta undan því að embættismenn framfylgdu ekki á- kvörðunum ríkisstjómarinnar?" segir Svavar. Þeir Jón Baldvin Hannibalsson hnakkrifust á Stöð 2 í gærkvöldi. Jón Baldvin hefur þó áður lýst því yfir að hann vilji Jóhannes Nordal burt úr Seðlabankanum. Það er því greinilega heitt undir stól formanns bankastjóm- ar þess banka hvort sem Svavar og Jón Baldvin fara saman í ríkisstjóm eða einungis annar þeirra kemst í ráð- herrastól. HERB Þungt haldinn Israelsmaður liggur nú þungt hald- inn á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum eftir umferðarslys er hann og tveir félagar hans lentu í sl. mánudag. ísra- elsmaðurinn var ásamt Kenýabúa og íslendingi í bíl á leið um Hamarsveg- inn. Islendingurinn keyrði og missti hann vald á bifreiðinni þannig að hún fór út af veginum og lenti á stórum steini. Útlendingamir unnu í fiskvinnslu í Eyjum. -FRI 5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.