Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Page 10
10
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986.
Utlönd
Bengt Westerberg, leiðtogi Þjóðarflokksins sænska, ber forsætisráðherranum á brýn að taka undir málflutn-
ing kommúnista og hefur skorað á Carlsson til kappræðueinvígis. Carisson segist draga í efa að Westerberg
hafi hæfileika til þess að gegna formennsku sænsks stjórnmálaflokks.
Ingvar Carlsson, forsætisráherra og formaður sænska jafnaðarmanna-
flokksins, hefur ekki enn tekið áskorun hins „vanhæfa fiokksformanns".
Westerberg vill hleypa
lífi í sænsk stjómmál
Gunntaugur A. Jcnsaan, DV, Lundi
Eftir ládeyðuna í sænskum stjóm-
málum undanfama mánuði virðist
nú sem Bengt Westerberg, formaður
Þjóðarflokksins, sé búinn að fa nóg
af kyrrstöðunni og vilji hleypa nýju
lífi í tuskumar.
Skoraði hann á dögunum á Ingvar
Carlsson til kappræðueinvígis. Ekk-
ert svar hefur ennþá borist frá
Carlsson forsætisráðherra, enda hef-
ur hann góðan tíma til þess að hugsa
sig um. Westerberg lagði til að ein-
vígi þeirra færi fram í marsmánuði
næstkcfmandi.
Viss viðiirkenningarvottur að
ganga á hólm við formann
jafnaóarmanna
Vafalítið er Westerberg minnugur
þess að forveri Carlssons, Olof heit-
inn Palme, bar tvívegis fyrir sig
tímaskorti og kom sér hjá kappræð-
um við Westerberg, sem hafði manað
Palme til slíkra einvíga.
Það þykir mjög mikilvægt fyrir
Carl Bildt, nýlega valinn formaður
íhaldsflokksins, hefur verið meira
í sviðsljósinu en hinir og þess ann
Westerberg honum ekki.
leiðtoga borgaralegu flokkanna að
komast í kappræður við formann
jafnaðarmanna, sem jafriframt er
forsætisráðherra, vegna þess að það
þykir gefa visbendingu um, hvem
jafhaðarmenn telja skæðastan meðal
keppinauta sinna, ef formaður þeirra
hefiir svo mikið við að ganga á hólm-
inn með einum þeirra. Þannig var
það Ulf Adelsohn, formaður íhalds-
flokksins, sem hafði heiðurinn af
einvígi við Olof Palme fyrir síðustu
kosningar. Áður hafði Torbjöm
Falldin, formaður Miðflokksins, ver-
ið álitinn hættulegasti keppinautur
jafnaðarmanna.
Borgaralegu leiðtogarnir
keppa um sviðsljósið
Samkvæmt skoðanakönnunum
síðustu mánaða hefur Þjóðarflokk-
urinn yfirleitt haft mest fylgi borg-
aralegu flokkanna, en fhaldsflokk-
urinn yfirleitt fylgt fast á eftir með
litlu minna fylgi. Nú þegar íhalds-
menn hafa fengið nýjan formann,
nefnilega Carl Bildt, þá ríður West-
erberg á því að halda sér í sviðsljós-
inu. Vafalaust er það ástæða þess
að hvað harðastar árásir á ríkis-
stjóm jafiiaðarmanna upp á síðkast-
ið hafa komið frá Bengt Westerberg.
Nýjum skattaáformum líkt við
eignaupptöku
A dögunum hélt Westerberg því
til dæmis fram að innihald ræðu, sem
forsætisráðherrann flutti á lands-
þingi launþegasamtakanna fyrir
skömmu, hefði verið kommúniskt. -
Sagði Westerberg að ræðu Carlssons
væri ekki unnt að skilja á annan veg
en þann að kosningarétturinn vreri
hafinn yfir eignaréttinn. Það er að
segja að ríkisstjóm, sem hefði yfir
50% fylgi kjósenda að baki sér, væri
ekki skuldbundin til að virða eigna-
réttinn. Ný skattaáform jafhaðar-
mannastjómarinnar sænsku (sem
Carl Bildt, formaður íhaldsflokksins,
hefur líkt við einberan þjófnað)
sýndu þetta sama hugarfar að sögn
Westerbergs.
Kalla hvor annan ýmsum
nöfnum
„Þetta er eimmitt það sama, sem
við könnumst við úr málflutningi
vinstriflokksins, kommúnistanna,,
og enginn dregur í efa, að sá mál-
flutningur er kommúniskur," sagði
Westerberg. „En ég hef aldrei áður
heyrt forystumann jafhaðarmanna-
flokksins halda honum á lofti. Þar
með er ég ekki að segja að Ingvar
Carlsson sé kommúnisti en ég verð
að fá að kalla hlutina sínu rétta
nafhi þegar forsætisráðherrann tek-
ur undir málflutning kommúnista.“
Ingvar Carlsson, sem fram að þessu
hefur virst friðsamari í opinberri
umræðu en fyrirrennari hans Olof
Palme þótti, tók þessa gagnrýni mjög
óstinnt upp. Sagði hann árásina
mjög grófa og dró hann í efa hæfi-
leika Bengt Westerbergs til þess að
gegna formennsku í sænskum
stjómmálaflokki. - „Ef hann kallar
mig kommúnista, get ég kallað hann
vanhæfan," sagði forsætisráðherr-
ann.
Eftir er síðan að sjá hvort Ingvar
Carlsson forsætisráðherra treystir
sér til þess að ganga til kappræðu-
einvígis við vanhæfan flokksfor-
mann.
Hreðu-húsið
í Ryesgade endur-
skipulagt
Gerð hefur verið áætlun um að
breyta húseigninni að Ryesgade 58
á Austurbrú í Kaupmannahöfii þar
sem styrinn stóð í haust milli hús-
tökufólks og borgaryfirvalda.
Ætlunin að rífa hluta hússins niður
en innrétta annan hluta að nýju og
gera fjörutíu íbúðir fyrir ungmenni,
auk nokkurra eins herbergja ein-
staklingsíbúða á jarðhæð.
Flestar íbúðimar þurfa að hafa
sambýli um eldhús með fleiri en
einni annarri íbúð og sömuleiðis
sameiginlegt bað og snyrtiherbergi.
- Ætlunin er að þetta verði tilbúið
til íbúðar með vorinu og þá strax
byrjað að flytja inn.
Það em landssamtökin Ungbo
(sem kannski mætti þýða sem Bygg-
ung á íslensku) sem hafa látið gera
skipulag og teikningar að nýsmíð-
inni þannig að löglegt verði að búa
í húsinu að nýju. Þáttur í þessu
skipulagi er niðurrif á hluta af álm-
unum til þess að skapa meira
garðrými og meiri birtu fyrir næstu
hús.
Það verða innréttaðar um 40 íbúð-
ir auk sameigna um vaskahús,
sameiginlega setustofu, skrifstofu og
líkamsræktarsal. 34 íbúðir verða
innréttaðar sem fimm sambýli á
hverri hæð en einstaklingsíbúðir
verða á jarðhæð. í annarri álmurmi
verða fimm tveggja herbergja íbúðir
(tveggja manna íbúðir). Húsaleigan
hefur verið ákveðin 1400-1500 d.
krónur á mánuði fyrir eins herbergja
íbúðimar en tvöfalt það fyrir tveggja
herbergja íbúðimar.
Hefur verið áætlað að þessar
breytingar á húseigninni muni kosta
rúmlega tíu milljónir danskra króna.
Byggung-samtök þeirra í Danmörku vilja rifa niður hluta af húseigninni
Ryesgade 58 til þess að rýmka fyrir garði og skapa meiri birtu fyrir nábúana.