Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986.
13
Sippað til að fa
orku í kroppinn
Komið er á markaðinn nýtt Power
Tone orkusippuband. Orkusippu-
bandið, sem er rétt um 1 kg ó þyngd,
líkist helst gúmmíslöngu en innan í
er kaðall (polyethylene). I hvoru
handfangi eru þrjú hólf fyrir jafn
mörg lóð (227 g hvert) sem hægt er
að setja í eitt af öðru og þyngja þann-
ig bandið smám saman. Það virkar
óþjált en galdurinn felst í því að
hreyfa hendumar í stóra hringi þeg-
ar sippað er í stað þess að snúa
Sippað heima i stofu með orku-
sippubandinu.
úlnliðunum. Árangurinn verður sá
að efri hluti líkamans þjálfast sér-
staklega vel (axlir, bijóstvöðvar
o.s.frv.). Með því að stjóma hraðan-
um, tímalengdinni og þyngd bands-
ins getur jafnt óvant fólk sem vant
íþróttafólk náð góðum árangri.
Hjartað og lungun þjálfast einnig
og samkvæmt prófunum, sem fram-
kvæmdar hafa verið í Kanada, er
fátt sem gefur jafn alhliða áreynslu
og orkusipp.
Æfingatíminn er frá S'A mín. fyrir
byijendur, þá er miðað við 30 sek.
sipp og 30 sek. hvíld til skiptis, allt
upp í 12-15 mín. hjá íþróttafólki -
annan hvem dag.
Orkusippubandið var fundið upp í
Kanada 1985 og hefur það náð mikl-
um vinsældum í heimalandinu. Það
ó einnig vaxandi vinsældum að
fagna víðs vegar í heiminum.
Einar Thoroddsen læknir var feng-
inn til að segja álit sitt á orkusippu-
bandinu eftir að hafa notað það í sex
vikur. „Ég er búinn að sippa með
orkusippubandinu í sex vikur og er
enn sem komið er mjög ánægður
með það. Að mínu mati verður þolið
betra og þetta styrkir likamann að
flestu leyti. Sérstaklega á það við
efri hluta líkamans sem stælist vel
fró úlnliðum upp i háls. Hjartsláttur-
inn örvast mikið við æfingamar án
þess að þær séu mjög erfiðar. Það
hefur aldrei verið leiðinlegt að sippa,
hins vegar er oft leiðinlegt að gera
margar aðrar æfingar eins og t.d. að
erfiða ó þrekhjóli og bíða eftir að
kílómetramælirinn hreyfist, auk
þess sem orkusippið veitir líkaman-
um betri alhliða þjálfun. Sem
upphitun fyrir keppni er þetta gott
og fljótlegt ef fólk þorir að láta sjá
sig á almannafæri með svo þykkt
sippuband. Að lokum mætti nefria
að ég hef ekki þurft að leggja mig
eins mikið eftir vinnu á kvöldin síð-
an ég byrjaði að sippa. Það sýnir
vissa aukningu andlegs og líkamlegs
þreks, eða hvað?“
Vegna þess að sippað er með orku-
sippubandinu á annan hótt en gert
er venjulega má nota sama bandið
fyrir alla sem em 137-208 cm á hæð.
Power Tone orkusippubandinu fylg-
ir handbók ásamt íslenskum leiðar-
vísi. Verð á bandinu ásamt sex
lóðum er á bilinu 2900-2990.
BB
Einar Thoroddsen hafði ýmislegt til
málana að ieggja um orkusippu-
bandið.
Jólabjöllur
Jólabjöllur, annaðhvort hvítar á rauðu eíhi eða rauðar á hvítu eða bláu
efni. Getur verið hvort sem er á dúk, renning, bamasmekk eða framan á
póstpoka.
Neytendur
Svava Ingóltsdóttir skammtar kartöflusalat á diskinn.
í eldhúsinu með DV:
Léttreyktur
lundi
Á dögunum var boðið upp á reyktan
lunda i eldhúsi DV. Þetta var mjög
góður matur, óvenjulegur á bragðið.
Leit út eins og rjúpa en var ekkert
líkur henni á bragðið. Lundinn var
léttreyktur, ættaður frá Vestmanna-
eyjum, en hann verður seldur í
Kaupstað í Mjóddinni og kostar um
50 kr. stykkið.
Þriggja tíma suða
Það er ekki hægt að matreiða lund-
ann í grænum hvelli því það þarf að
sjóða hann í um 3 klst. Það má ýmist
gera í ósöltu vatni eða blöndu af vatni
og maltöli, einn á móti einum.
Við höfðum kartöflusalat með soðn-
um lundanum, grænar baunir, flat-
brauð með smjöri og hrátt grænmeti
eftir smekk hvers og eins. Kartöf-
lusalatið átti vel við reykta lunda-
bragðið.
Einnig er hægt að matreiða lunda
eins og rjúpu, það er sjóða hann eins
og fyrr segir og búa til brúna sósu úr
soðinu, bæta í hana svolitlum rjóma
og bera fram rauðkól og sykurbrúnað-
ar kartöflur, sultu og rauðrófur.
Loks er enn hægt að bera lundann
fram með soðnum kartöflum og gul-
rótum eða með hvítri sósu, grænum
baunum og rófustöppu. -A.BJ.
Með lundanum var borið fram kartöf-
lusalat, grænar baunir, flatbrauð með
smjöri, hrátt hvitkál, gulrætur, agurk-
ur, tómatar og appelsínur.
DV-myndir Bjarnleifur Bjarnieifsson
MYNDUSTARTILBQÐ
Listunnendur
-r ssssasMt-’ «• *—
2200 krónur. númeruöum og óntuðiuu
T« s^fofsoiu í smáauglýslngadeild,
þverholti 11, sími 27022,
w. 9-17 alla virka daga.