Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986.
19
„Afnám samningsréttar í byrjun núverandi ríkisstjórnar og nýleg frestun á uppsögnum starfsfólks í heiibrigðis-
geiranum eru önnur dæmi um gerræði stjórnvalda og andúð þeirra á lýðræðislegum réttindum fólks. Einnig
eru viðbrögð þeirra við ýmsum ofbeldisverkum einkennandi fyrir þær fastistatilhneigingar sem eru að gerjast."
Er fasismi í upp-
siglingu á íslandi?
Hitler er frægastur fasista en þeir
telja að velferð einstaklingsins og
þjóðfélagsins sé best tryggð með
sterkri samvinnu atvinnurekenda,
verkalýðssamtaka og ríkisins. Áróð-
ursmeistarinn mikli, Göbbels, bjó til
mörg slagorð sem lýstu þessu vel.
Eitt þeirra, „stétt með stétt”, heíur
vist átt hljómgrunn hjá ákveðnum
stjómmálaflokki hérlendis.
Mörg lönd aðhyllast fasisma leynt
eða ljóst og af ýmsum gráðum, þó
sem betur fer sé hvergi farið eins illa
með fólk og gert var í Þýskalandi
nasismans. Herstjómir Suður-Amer-
íku, svo sem stjóm Pinochet í Chile,
em augljós dæmi um nútíma fasisma
en einnig er þau að finna á meðal
svokallaðra lýðræðisríkja, samanber
Japan, önnur lönd Suðaustur-Asíu
og Mexíkó.
Það er sammerkt með öllum nú-
tíma fasistastjómum að þær em
hrifhar af ákveðinni hagfræðikenn-
ingu, hinum svokallaða „Chicago-
skóla” Milton Friedmans sem
hingað kom um árið. Það er grát-
broslegt að þeir sem hæst hafa um
fijálshyggju skuli einmitt sækja íyr-
irmyndir sínar til helstu ráðgjafa
einræðisherra og gerræðismanna
um víða veröld, eins og Milton Fri-
edman er.
Lærisveinar Mússólinis
Er fasismi á íslandi? Það kæmi
aldrei fyrir hér, myndu flestir segja.
En þvi miður em mörg teikn á lofti
um að jafhvel okkar fríðsæla land
gæti orðið fyrir barðinu á þessari
hörmungastefnu. Kjarasamningam-
ir í vor sem leið vom spor í átt að
fasisma en þá tóku höndum saman
ríkisstjóm, atvinnurekendur og
verkalýðsforysta og skrifuðu undir
vinnuþrælkun í landinu. Nú er mik-
ið talað um „nýsköpunarstjóm”
Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og
Sjálfstæðisflokks, sem er ekkert
annað en hreinn fasismi. Ekki vil
ég líkja nokkrum Islendingi við Hitl-
er og Mússólini en ekki er hægt að
biðja um skýrari útfærslu á hug-
myndum þeirra um stjómskipulag
og efnahagsstjóm en samkmll Þor-
steins Pálssonar, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Vinnuveitendasam-
bandsins, Ásmundar Pálssonar,
forseta ASÍ, og Jóns Sigurðssonar,
fulltrúa embættismannakerfisins og
ríkisfyrirhyggjumanna.
Viðreisnarstjóm atvinnurekend-
anna í Sjálfetæðisflokknum og full-
trúa ríkis og verkalýðsforkólfa í
Alþýðuflokknum yrði nk. „mini”-
fasistastjóm. Hægri sveifla vinstri
aflanna er einnig visbending um að
þríeykið margumtalaða, ríki, át-
vinnurekendur og verkalýðsfoiysta,
eigi greiða leið að samstarfi í ein-
hvers konar fasistamynd.
KjaUaiinn
Pétur Guðjónsson
formaður Flokks mannsins
Svörtu pardusdýrin
og kvennalistinn
Það ber einnig vott um mögulegan
fasisma að mörgum finnst ekkert
athugavert við Kvennalistann, en
aðskilnaðarstefha hans, sem byggist
á mismimandi líkamsbyggingu,
minnir óneitanlega á kenningar
Hitlers og kumpána um hina „undir-
okuðu” aría og alla þá sem vom
ekki svo gæfusamir að tilheyra þeim
stofhi.
Það er skiljanlegt að konur vilja
berjast á móti því misrétti sem þær
eru beittar, en það er ekki réttlæting
fyrir þvi að þær sjálfar stundi sömu
aðskilnaðarstefhu og þær berjast á
móti. Sumir af hinum undirokuðu
negrum í Bandaríkjunum, hin svo-
kölluðu Svörtu-pardusdýr, héldu
fram hliðstæðri aðskilnaðarstefnu.
Þeir töldu hvíta menn óalandi og
óferjandi og komu sér upp ofbeldis-
kenndu fasi. Ég er ekki að segja að
íslenskar kvennalistakonur séu eins
og þeir, en þær verða að gera sér
grein fyrir því að ekki er hægt að
berjast fyrir sjálfsögðum mannrétt-
indum og brjóta þau samtímis.
Aukin öryggisgæsla,
frelsisskerðing almennings
Afnám samningsréttar í byrjun
núverandi ríkisstjómar og nýleg
frestun á uppsögnum starfsfólks í
heilbrigðisgeiranum eru önnur dæmi
um gerræði stjómvalda og andúð
þeirra á lýðræðislegum réttindum
fólks.
Einnig em viðbrögð þeirra við
ýmsum ofbeldisverkum einkennandi
fyrir þær fasistatilhneigingar sem
em að gerjast. Afleiðingin er sú að
öiyggisgæsla hefur stóraukist. Og
ummæli stjómvalda vegna skemmd-
arverkanna á hvalveiðibátunum og
í Hvalstöðinni urðu til þess að blása
málið upp. Þeir töluðu um hryðju-
verk og nauðsyn þess að efla enn
meir innlenda öryggisvörslu, en
aukin gæsla hefur alltaf þýtt alls
staðar að ráðskast er enn meir með
hinn óbreytta borgara.
Ég er alls ekki að gera lítið úr
skemmdarverkunum hjá Hval hf.,
eða mæla með þeim. Síður en svo.
En að leggja til jafns manndráp
hiyðjuverkamanns og skemmdar-
verk á dauðum hlutum er fáránlegt
og algert ábyrgðarleysi, þvi það
magnar að ástæðulausu upp ótta hjá
fólki.
Mannfyrirlitning
þingflokkanna
Ofangreind dæmi og mörg önnur
sýna að ekki þarf mikið til svo okk-
ar litla land verði einhvers konar
fasisma að bráð. Allir þingflokkamir
eiga það sammerkt að þeir setja eitt-
hvað ofar manninum og velferð
hans. Þeir eiga því auðvelt með að
ganga einu skrefi lengra þar sem
maðurinn er orðinn að aukaatriði
og jafnvel til trafala. Þessir flokkar
segja auðvitað að allt sem þeir geri
sé einstakiingnum fyrir bestu. Ef
fyrirtækin em sterk og markaðurinn
frjáls gengur allt í haginn, segja
sumir. Aðrir segja að allt sé komið
undir sterku ríkisvaldi. Gallinn er
bara sá á gjöf Njarðar að um leið
og eitthvað er sett ofar velferð
mannsins, hvort sem það em pening-
ar, verkalýðsfélög, ríki, „hinn frjálsi
markaður” eða kynferði, er mjög
auðvelt fyrir „fulltrúa” þess, sem er
talið æðra manninum, að líta á hann
sem aukaatriði. Þetta gerðu Hitler
og Mússólini, en að sjálfsögðu allt í
nafni þjóða sinna, frelsis og ham-
ingju einstaklinganna.
Fasismi er mögulegur á Islandi og
er mjög sennilegt að honum verði
komið á í einhverri „mildri” útgáfu
ef við styrkjum ekki eina stjóm-
málaaflið í landinu sem setur ekkert
ofar manninum, Flokk mannsins.
Á sínum tíma vom uppi sterkar
raddir í Þýskalandi og á Ítalíu sem
vömðu við fasismanum. Það var
ekki hlustað á þær. Vonandi berum
við gæfu til þess að hér verði hlustað.
Pétur Guðjónsson
„Nú er mikið talað um „nýsköpunar-
stjórn“ Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og
Sjálfstæðisflokks, sem er ekkert annað en
hreinn fasismi.“
Gamla íslenska kúluspilið.
Spiliö sem minnkar kyn-
slóðabilið og þjálfar
hugarreikning. Sláið á
þráðinn. Póstkröfusend-
ingar. Verð kr. 2.300,-
Leikfangasmiðjan
Alria hf„
Þingeyri, Dýrafirði
Sími 94-8181.
FISKELDISMENN
Opinber fyrirlestur um slátrun, meðferð og gæðaeftir-
lit á eldisfiski verður hatdinn föstudaginn 29. nóv. nk.
kl. 16.00 á Hótel Sögu.
Fyrirlesari verður Sverre Ola Roald dýralæknir sem er
distriktssjef í Fiskeridirektoratets kontrollverk í Noregi.
Áhugamenn um fiskeldi eru hvattir til þess að mæta.
Landbúnaðarráðuneytið.
Dýralæknafélag íslands.
Frá Ferðafélagi Islands
Fyrsta kvöldvaka vetrarins verður haldin miðvikudaginn
26. nóv. nk. í Risinu, Hverfisgötu 105.
Helgi Björnsson jöklafræðingur sér um efni kvöldvökunnar
og ætlar hann að „svipast um fjallaklasa undir jöklum“.
Sagt mun frá ferðum um jöklana (Hofsjökul, Vatnajökul
og Mýrdalsjökul) og svipast um á yfirborði og jökulbotni
og forvitni svalað um áður óþekkt landslag, legu eldstöðva
og vatnslóna undir jökli.
Þetta er einstakt tækifæri til þess að kynnast því nýjasta
í jöklarannsóknum á íslandi og ekki blasir landslag undir
jöklum við augum ferðamannsins.
Tryggvi Halldórsson sér um myndagetraun.
Aðgangur kr. 100. Veitingar í hléi. Allir velkomnir, félagar
og aðrir.
Ferðafélag íslands.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Búlandi 34, tal. eigendur Sturla Pétursson og Rósa Þorvalds-
dóttir, ferfram á eigninni sjálfri föstud. 28. nóv. '86 kl. 16.45. Uppboðsbeiðandi
er Gjaldheimtan í Reykjavík.
______________________Borgarfógetaembættið i Reykjavík,
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Hrísateigi 11, risi, þingl. eigandi Eiður Örn
Eiðsson, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 28. nóv. '86 kl. 10.45. Uppboðs-
beiðendur eru Skarphéðinn Þórisson hrl. og Landsbanki Islands.
__________________Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Markarvegi 15, íb. 0202, þingl. eigendur Hjálmar Ingvarsson
og Hulda Jónsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 28. nóv. '86 kl. 15.15.
Uppboðsbeiðandi eru Gjaldheimtan í Reykjavík.
______________________Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Marklandi 8, 3.t.h., þingl. eigandi Pétur Ólafsson, fer fram á
eigninni sjálfri föstud. 28. nóv. '86 ki. 15.45. Uppboðsbeiðandi er Iðnaðar-
banki íslands hf.
______________________Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Laugateigi 17, neðri hæð, þingl.eigandi
Þórunn Þorgeirsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 28. nóv. '86 kl.
10.30. Uppboðsbeiðendur eru Búnaðarbanki Islands, Baldur Guðlaugsson
hrl. og Sigríður Thorlacius hdl.
______________________Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Langholtsvegi 36, þingl. eigandi Erling Jón
Sigurðsson, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 28. nóv. '86 kl. 11.15.
Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík.
______________________Borgarfógetaembasttið í Reykjavik.