Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986.
21-
Breiðablik
mætir KR
Pjórir leikir verða leiknir í 1. deild íslands-
mótsins í handknattleik í kvöld. í íþrótta-
húsinu á Digranesi leikur efeta lið
deildarinnar, Breiðablik, gegn KA kl. 20.00
og verður fróðlegt að sjá hvort KA tekst
að standa í Breiðabliksstrákunum.
Búið er að fresta leik Stjömunnar og
Fram, sem átti að fara fram í Garðabæ.
Stjömuleikmaðurinn Gylfi Birgisson, sem
sést hér á myndinni fyrir ofan svífa
skenuntilega inn í teiginn og skora gegn
Dinos Slovan, feer því frí.
•f Hafharfirði fara einnig fram tveir leik-
ir. Kl. 20.15 taka FH-ingar á móti Vals-
mönnum og má búast við jalhri viðureign.
Að þeim leik loknum leika Haukar og Vík-
ingar og verða Haukar að spila betur en
þeir hafa gert í undanfömum leikjum ef
þeir ætla ekki að fá skell gegn sterku liði
Víkings.
• Kl. 20.15 leika svo Ármann og KR í
Laugardalshöll en Ármenningar hafa enn
ekki unnið leik til þessa á mótinu.
DV-mynd Gunnar S./-JKS
íþróttir
„Glórulaust ofstæki -
glórulaus öfiindsýki"
segir Carl J. Eiríksson sem var rekinn úr SR
„Ég fékk bréf frá Skotfélaginu og í
því stóð að ég væri rekinn úr Skot-
félagi Reykjavíkur. Ég fékk engar
skýringar á þessu og engar ástæður
vom gefnar upp. Ég lít á þetta sem
glórulaust ofetæki vissra manna og
ennfremur glómlausa öfundsýki,“
sagði skotmaðurinn Carl J. Eiríksson
í samtali við DV í gær en í byrjun
þessa mánaðar var samþykkt á stjóm-
arfundi hjá Skotfélagi Reykjavíkur að
reka Carl J. Eiríksson úr félaginu og
mun það vera einsdæmi hér á landi
að íþróttamaður sé rekinn úr íþrótta-
félagi.
„Eg átti þátt í að gefa út blað í sum-
ar, Skeytið, og er stjómarmenn í SR
komust í fyrirhugað efrii í blaðinu
umtumuðust þeir gersamlega. Ég get
ekki ímyndað mér hvað það var í skrif-
um mínum sem fór svona illa í þá.
Þannig var að formaður SR, Hannes
Haraldsson, hafði sagt af sér en hann
var síðan tekinn inn í stjómina aftur
til að þeir gætu rekið mig.“
Þrjú sáttabréf
„Ég er búinn að skrifa stjóm SR
þrjú sáttabréf en þeim hefur öllum
verið hafhað. Fyrsta bréfið var undir-
ritað af mér, Agli Stardal og Hannesi
Haraldssyni, sem telur sig vera for-
mann SR þrátt fyrir afeögn í sumar.
Því var hafhað á þeirri forsendu að
ég ætti að skrifa einn undir það. Þá
skrifaði ég annað bréf þar sem ég sagði
að öllum deilum við SR væri lokið af
minni hálfu fram til þessa. Þessu bréfi
var líka hafhað og vildu þeir hjá SR
fella burt orðin „fram að þessu“. Ég
skrifaði þriðja bréfið og felldi þessi orð
burtu en því bréfi var líka hafnað ein-
hverra hluta vegna.'
Reynt að ná sáttum
Samkvæmt heimildum DV hafa
ráðamenn Skotfélags Reykjavikur
áhuga á að ná sáttum í máli þessu og
á morgun mun fyrirhugaður stjómar-
fundur þar sem væntanlega verður
tekin ákvörðun um að halda aðalfund
SR18. eða 19. desember. Að sögn Carls
J. Eiríkssonar hefur aðalfundur SR
yfirleitt verið haldinn á vorin og til
stóð að halda aðalfund félagsins í apríl
sl. en hann hefur ekki enn verið hald-
inn. „Endurskoðaðir reikningar liggja
ekki fyrir og það eitt er undarlegt mál
og hlutur sem stjómin hefur trassað
alltof lengi. Á þessum fyrirhugaða
aðalfundi í desember era þrjú mál sem
aðallega þarf að ræða. í fyrsta lagi
mál mitt, reikningar félagsins og svo
afeögn formannsins sem síðan var sett-
ur aftur í stjómina til að þeir gætu
rekið mig. Ég vil taka það fram að ég
var á sínum tíma mjög ósáttur við að
vera ekki útnefndur skotmaður ársins
í fyrra og lét óánægju mína í ljós. Ég
hef hins vegar litið svo á að það mál
væri úr sögunni og það er alveg úr
sögunni af minni hálfu," sagði Carl
J. Eiríksson.
•Carl J. Eiríksson sést hér í
kunnuglegri stellingu. Hann
hefur um árabil verið í nokkr-
um sérflokki meðal skot-
manna hérlendis en nú hefur
hann verið rekinn úr Skotfé-
lagi Reykjavíkur.
Guðmundur verður
hjá Beveren til 1989
•Andri Marteinsson.
Andri til
KR-inga?
/
Andri Marteinsson, hinn sókn-
djarfi knattspymumaður úr
Víkingi, hefur mikinn hug á að
vera með í 1. deildar slagnum
næsta keppnistímabil. Andri, sem
heftir oft verið orðaður við Þór á
Akureyri, hefur mætt á æfingar
hjá KR-ingum en KR-liðið hefur
illilega vantað marksækna fram-
heija undanfarin ár.
Það yrði áfall fyrir Víking að
missa Andra því að félagið hefur
misst Elías Guðmundsson til Sel-
foss. Andri og Elías vora lykil-
menn Víkinga sl. keppnistímabil.
•Þá kom Aðalsteinn Aðal-
steinsson ekki aftur til Víkings
eins og Víkingar vonuðu. Hann
gerðist leikmaður með ÍR og sá
orðrómur er nú uppi að Jóhann
Þorvarðarson hafi hug á að ganga
til liðs við ÍR.
-sos
- hefur skrífað undir tveggja og hálfs árs samning við félagið
Guðmundur Torfason, marka-
kóngur Framliðsins, hefur skrifað
undir tveggja og hálfe árs samning
við Beveren og mun hann þvi
verða samningsbundinn félaginu
til 1. júní 1989. Guðmundur, sem
hélt til Belgíu í morgun, skrifaði
undir tvenns konar samninga þeg-
ar Willie Reinke umboðsmaður
kom til Reykjavíkur um sl. helgi.
Leigusamning til 1. júní 1987 og
atvinnusamning til 1. júní 1989.
Forráðamenn Beveren höfðu
samband við Fram eftir stjómar-
fund í gær og tilkynntu að þar
hefði verið ákveðið að bjóða Guð-
• Guðmundur Torfason.
mundi samning til 1989. Guðmund-
ur mun strax byrja að æfa með
Beveren sem keppir gegn Torino í
UEFA bikarkeppninni í kvöld.
Guðmundur er ekki löglegur með
félaginu í Evrópukeppninni þar
sem hann lék með Fram í Evrópu-
keppni bikarhafa.
• Það er mikil blóðtaka fyrir
Framara að missa Guðmund sem
hefur verið þeirra mesti marka-
skorari undanfarin ár. Þá getur
svo farið að Guðmundur Steinsson
fari einnig í atvinnumennskuna.
-sos
3cl. dósum. Fyrstu tegundirnar sem koma á markaðinn eru Pepsi og
appelsín með 10% hreinum appelsínusafa og sykurlaust appelsín.
Sanitas ÍH