Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986.
23
Erlendir fréttaritarar
Sovétríkin reyna að auka
áhrif sín í Austur-Asíu
Jón Omvur HaDdóissan, DV, Haag:
Eftir langa sögu af mistökum, sem
leitt hafa til einangrunar og áhrifa-
leysis, hafa Sovétríkin hafið alvar-
legar tilraunir til þess að auka áhrif
sín í Austur- og Suðaustur-Asíu. Þau
hafa á síðustu vikum og mánuðum
gefið til kynna mögulegar tilslakanir
og viðrað nýjar hugmyndir sem rofið
gætu einangrun þeirra í þessum
heimshluta.
Ástæðumar fyrir þessu eru öllu
skýrari en skeytingarleysi þeirra á
fyrri árum. Japan eitt sér framleiðir
nú eins mikil verðmæti og allt so-
véska hagkerfið. Onnur eylönd
undan ströndum Asíu, Indónesía,
Taiwan, Filippseyjar og Singapore
ásamt Suður-Kóreu, Malaysíu og
Thailandi vaxa ört að efnahagslegu
og pólitísku mikilvægi þessi misserin
og svo mjög að gerbreyting hefur
orðið á forsendum alþjóðastjóm-
mála á fáum árum.
Áhrifaleysi meðai meirihluta
mannkyns
Sovétríkin em sem næst áhrifalaus
um mestalla Asíu en í þessari heim-
sálfu búa nær 60 prósent alls
mannkyns. Þeir hafa þó lengi átt
vináttu Indverja, eins og meðal ann-
ars má sjá á yfirstandandi heimsókn
Gorbatsjovs til Indlands. Ljóst er
hins vegar að núverandi stjóm Ind-
lands lítur frekar til vesturs um
efnahagssamvinnu og hefur algert
sjálfstæði frá stórveldum að pólit-
ísku og hemaðarlegu márkmiði.
Þetta áhrifaleysi Sovétríkjanna f
Asíu verður augljósara því austar
sem dregur í álfunni þar sem obbann
af þessu mannhafi er að finna. Und-
antekning er Indókína sem efna-
hagslega og hemaðarlega er mjög
háð Sovétríkjunum. Þar er líka um
að ræða stærsta vandamál þeirra í
Asíu og jafnframt það atriði sem
hvað afdrifaríkastar breytingar
gætu orðið á í þeirra utanríkisstefnu.
Kambódíu fórnað?
Kínverjar hafa nýlega gefið til
kynna að af öllum þeim hindmnum
sem eru á vegi til bættrar sambúðar
við Sovétríkin líti þeir hemám Víet-
nam á Kambódíu alvarlegustum
augum. í ljósi þeirra tilrauna, sem
Sovétmenn hafa verið að gera á síð-
ustu vikum og mánuðum, má skoða
þetta sem tilboð Kínverja um vem-
lega bætta sambúð gegn breytingum
á stefnu Sovétríkjanna gagnvart
Kambódíu.
Ríki Suðaustur-Asíu hafa lýst yfir
svipuðum skoðunum en þessi ríki
álíta hemám Kambódíu eitt alvar-
legasta milliríkjamál í heiminum og
beina ógnun við öryggi þessa heims-
hluta.
Nokkur tímarit í Asíu hafa á síð-
ustu vikum orðið til þéss að spá
stórfelldum breytingum á stefnu
Sovétmanna að þessu leyti og halda
því fram að alvarlegur klofningur
sé kominn upp milli Víetnam og
Sovétmanna um þetta atriði. Eins
búast margir við alvarlegri tilraun
til lausnar á þeim vanda sem innrás
Sovétmanna í Afganistan hefur
skapað þar.
Vanmat á vexti Asíuþjóða
Rætur áhrifaleysis og vandræða
Sovétmanna í Asíu er að finna í ut-
anríkisstefnu Brésnjevstímans þegar
samskipti austurs og vesturs urðu
sem næst eina víddin í utanríkis-
stefnunni. Sovétmenn virðast hafa
Rætur áhrifaleysis og vandræða Sovétmanna í Asiu er að finna i utanríkisstefnu Brésnevstímans þegar samskipti austurs og vesturs urðu sem
næst eina víddin í utanríkisstefnunni. Sovétmenn virðast hafa vanmetið stórlega þann vöxt sem orðið hefur i vægi Asiuríkja undanfarin ár. Gor-
batsjov Sovétleiðtogi hefur síðustu misseri sýnt ríkjum Asíu aukinn áhuga og gera Sovétmenn nú alvarlegar tilraunir til að auka áhrif sín í Austur-
og Suðaustur-Asíu. Á myndinni sést Sovétleiðtoginn ásamt konu sinni kanna heiðursvörð um borð i einu herskipa sívaxandi Kyrrahafsflota Sovét-
manna.
vanmetið stórlega þann vöxt sem
hefur orðið í vægi Austur-Asíulanda
og tiltölulegt sjálfstæði þeirra frá
Bandaríkjunum og vestrænum hags-
munum hvað varðar milliríkjamál í
eigin heimshluta.
Sem dæmi um tregðulögmálið frá
stöðnun Brésnjevstímans í sovéska
utanríkisráðuneytinu nefndi tímarit
eitt í Asíu nýlega að Ástralía og
Nýja-Sjáland væru enn sortéruð
undir Bretland í ráðuneytinu.
Gorbatsjov hefur þegar látið skipta
um menn í lykilhlutverkum hvað
varðar utanríkisstefhu, og sérstak-
lega stefnuna gagnvart Asíulöndum.
í ræðu sinni í Vladivostok í sumar
gerði hann grein fyrir nýrri stefhu í
nokkrum liðum en þetta var aðeins
opnunin á tilraun til verulegra
breytinga.
Eitt af því sem Sovétmenn hafa
sótt hvað harðast að undanfömu er
að haldin verði öryggismálaráð-
stefna Asíu, svipað þvi sem þeir
beittu sér fyrir í Evrópu og endaði
með Helsinkiráðstefhuninni. Þeir
hafa stungið upp á Hiroshima sem
fundarstað en þessu hefur verið fá-
lega tekið víðast í Asíu og tilnefn-
ingu Hiroshima var sérstaklega
dauflega tekið af Japönum. Japanir
em líka fullir gmnsemda um þá virð-
ingu sem þeim hefur verið sýnd með
ýmsu móti af Sovétríkjunum nýlega.
Lítið atriði af þessu tagi en þó
mikilvægt var skipun háttsetts
manns i stöðu sendiherra Sovétríkj-
anna í Tokýo nýlega en auk þess að
vera háttsettur í heimalandi sínu
hefur maðurinn lært japönsku og
talar hana reiprennandi við frétta-
menn. Þetta er enn eitt dæmið um
þann nýja stíl sem Sovétmenn hafa
tamið sér og fáar þjóðir hafa raunar
séð í eins miklu návígi og íslending-
ar á Reykjavíkurfundinum nýlega.
En bæði er stíllinn mikilvægur og
eins gæti hann bent til breytinga á
hugsunarhætti um það sem stærra
er.