Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986. 31 Sandkom Ragnar örn Pétursson. Pönnsur í framsóknar- menn Það er ekki á hverjum degi sem hæstvirtir kjósendur geta gætt sér á glóðvolgum pönnu- kökum um leið og þeir krossa við sína menn á listanum. Þetta gerðist þó um daginn á aukakjördæmisþingi fram- sóknarmanna á Reykjanesi. Þingið var haldið á veit- ingastaðnum Glaumbergi í Keflavík. Þar var kosið í fjög- ur efstu sæti listans með pompi og prakt. Á meðan að framsóknar- menn þinguðu um sín málefni stóð veitingamaðurinnm í Glaumbergi, Ragnar Öm Pét-' ursson, og bakaði pönnukök- ur í gríð og erg. Segja þeir skreytnustu að hann hafi bak- að í fullar tíu klukkustundir. Afurðimar seldi hann svo soltnum framsóknarmönnum. Þegar pönnukökubakstrin- um og þinginu svo loks lauk sentist veitingamaðurinn beint í símann og las fréttir af hinu síðamefnda til frétta- stofu útvarps en Ragnar Öm er fréttaritari Ríkisútvarps- ins. Það er því óhætt að fullyrða að hann hafi bara haft gott upp úr deginum. Sjaldan fell- ur eplið... Þrælar pólitíkurinnar leggja oft mikið á sig til að efla flokksstarfíð. Eftirfarandi pistill birtist nýlega í blaðinu Bæjarins besta á ísafirði. Er sérstök athygli vakin á síð- ustu málsgreininni sem er að sjálfsögðu í beinu framhaldi af hinum fyrri: I síðustu viku tók Kolbrún Halldórsdóttir í Eplinu við formennsku í Sjálfstæðis- kvennafélagi ísafjarðar af Sigrúnu C. Halldórsdóttur. I framhaldi af þessu hefur verið bent á hagkvæmni þess að Pétur Jónasson taki við for- mennsku í Sjálfstæðiskarlafé- lagi Isafjarðar af Magnúsi Guðmundssyni, svo að áfram verði hægt að vinna að sam- eiginlegum hagsmunamálum félaganna í hjónarúminu. Á meðal brýnustu verkefna sjálfstæðismanna á fsafirði má nefna eflingu Félags ungra sjálfstæðismanna. Margirvildu Sjallann Akureyringar voru hreint í öngum sínum áður en Ólafur Laufdal tók sig til og keypti Sjallann. Þeir vom orðnir langþreyttir á að fá ekki að dansa um helgar og litu alvar- legum augum til næstu áramóta. En nú hefur sumsé ræstúrþví. Hitt var ekki á allra vitorði að fleiri en Laufdal gátu hugs- að sér að eignast húsið. Dagur segir ffá því að hestahljóm- sveitin Skriðjöklarhafi getað hugsað sér að kaupa Sjallann. Hafi þeir setið á maraþon- fundum með lögffæðingum sínum enda um mikla fjárfest- ingu að ræða. Málið gekk meira að segja svo langt að tilboð leit dagsins ljós. Það hljóðaði svona: Einn Fíat 127 út og eftirstoövarnar. 59 milljónir875 þúsund, greið- ast á 60 áram. Líklega hefur Ólafur boðið eitthvað aðeins betur. Söguþjóðin, íslendingar Tryggingafélögin efndu til mikillar ráðstefnu um um- ferðarmál á dögunum. Þar var spjallað um öryggi í umferð- inni sem veitir hreint ekki af á þessum síðustu og verstu tímum. Fulltrúar frá helstu fjöl- miðlunum sátu ráðstefnuna og létu Ijós sitt skína. Meðal þeirra var Ómar Ragnarsson fréttamaður. Hann sagðist telja að það kæmi niður á umferðarmenningu hér hversu mikil söguþjóð íslend- ingar væra. Það tæki til dæmis óratíma að gera skýrslu um hverja klessu sem kæmi á bílana. „Islendingar era svo mikil söguþjóð að þeir gefa aldrei stefnuljós fyrr en búið er að beygja," sagði Ómar við góðar undirtektir viðstaddra. Takmarkaður skilningur Eggert Haukdal leynir á sér, eins og drepið hefur verið á með dæmisögu hér í Sand- komi áður. Hér er önnur sem gengur milli manna þessa dag- ana. Það gerðist eftir prófkjör Eggert Haukdal. Haraldur Blöndal. sjálfstæðismanna á Suður- landi að Haraldur Blöndal hrl. ritaði grein í DV þar sem hann tók upp hanskann fyrir Eggert vegna úrslita próf- kjörsins. Skömmu síðar hringdi Egg- ert í Harald og þakkaði honum fyrir greinina. Tóku þeirsaman spjall um úrslit prófkjörsins og skýringar á þeim. Þá læddi Eggert út úr sér: „Þú áttar þig nú kannski ekki nógu vel á því, Haraldur, að þetta forystulið sem tók þátt í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins á Suðurlandi, það hefur svo takmarkaðan skiln- ing á gítarspili.“ Umsjón: Kvikmyndir Regnboginn/Draugaleg brúðkaupsferð ★ „Léttur“ hrollur hjá Wilder Haunted Honeymoon/Draugaleg brúð- kaupsferð. Bandarisk, 1985. Leikstjóri: Gene Wilder. Handrit Gene Wilder og Terence March Aðalhlutverk: Gene Wilder, Gilda Radner, Dom DeLuise, Jonathan Price, Bryan Pringle og Peter Vaughan. Gene Wilder hefur unnið mikið með Mel Brooks og yfirleitt komist vel fi-á því enda látið hin mjög svo hugmyndaríka Brooks um stjóm- völin. Það hefitr þó greinilega blundað í Wilder að það væri gaman að standa í sporum Brooks og gera „eigin“ mynd. En það er sitthvað að gera og geta. Wilder ákveður að snúa út úr hinni klassísku hrollvekju og sýna áhorfendum fram á skoplegar hliðcir þeirra. Er það í sjálfu sér ágætis hugmynd þó varla geti hún talist frumleg af manni sem hefur starfað lengi með Brooks. Dettur einhverj- um í hug „Young Frankenstein"? Larry Abbot (Wilder) er vinsæll leikari í útvarpi og er helsti meðleik- ari hans Vickie (Radner). Þau hafa ákveðið að giftast og kjósa að fara i brúðkaupsferðalag á æskustöðvar Larrys sem eru reyndar æði drauga- legur kastali. Þar bíður Kata frænka (Dom DeLuise) og hefur hug á því að gera erfðaskrá. Því er öllum ætt- ingjunum safhað saman og em þeir ekki allir með hreint mjöl í poka- hominu. Wilder kýs að reyna að blekkja áhorfendur með því að gera þeim ekki fyllilega ljóst hvort þeir em að „horfa á útvarpsleikrit" eða fylgjast með raunverulegum atburðum í lífi persónanna. Blekkingin hittir alls ekki í mark því þegar upp er staðið veit áhorfandinn alls ekki hvað fram hefur farið og situr uppi með spum- ingar en engin svör. Nú gæti maður haldið að það væri allt í lagi því þetta er jú aðeins gam- anmynd, ekki sé nauðsynlegt að söguþráðurinn gangi upp svo lengi sem hægt er að hlæja að honum. Það er einnmitt vandamálið við þessa gamanmynd. Það er einfald- lega lítið hægt að hlæja að henni. Sigurður Már Jónsson Gene Wilder hreykir sér á háan elg í nýjustu mynd sinni, Haunted Honey- moon. ★★★★ Frábær ★★★ Góð ★★ Miðlungs ★ Léleg 0 Afleit FRAMFARAFÉLAG SELÁSS OG ÁRBÆJAR Aöalfundur félagsins verður haldinn í Árseli miðviku- daginn 3. desember nk. kl. 20.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Að loknum aðalfundi um kl. 21 kynnir borgarskipu- lag Reykjavíkur skipulag hverfisins og sérstaklega tillögur að miðsvæði sem verið hafa til kynninga. Stjórn FSÁ. getrluna- VINNINGAR! 14. LEIKVIKA - 22. NÓVEMBER 1986 VINNINGSRÖÐ: x 2 2 -1 x1-1 21-1 x 1 1. VINIMIIMGUR: 12 RÉTTIR kr. 513.540,- 66853(4/11) 200601(15/11)+ 212487(16/11) 2. VINNINGUR: 11 RÉTTIR kr. 4.431,- 245 44126 + 52385 62253* 100487 127263 209261+ 490 44928 52620 65573 101538 + 127311 210494 2139 45052 + 53424- 65865* + 101631 127436 210895* + 5161 45392 53519 66195* 101668 127950 210881 6605 + 45406 56734 67248 101874 128049 211699* 8628 46945 56949 + 68430 + 102519 128546 211791 13451" 47617 57188* 95816 103988 129021 211827 13526 47699 57797* 95917 104276 130202* + 212515 18032 47918 57809* 95993 + 104712 131356* 545141 21053 49615 + 58871 96346 125258 200594 + 566140 40377 50534 60269 96599 125406* 200600 + 40383 50818 60875 96733 125525* + 202967 Úr 13.viku: 41607 51007' 61207* 98407 126077 208349* 131746 + 43744 • = 2/11 51626 " = 4/11 61647 + 100367 + 126811 209188 + íslenskar Getraunir, íþróttamiðstöðinni v/Sigtún, Reykjavík Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni í Reykjavik. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Kærufrestur er til mánudagsins 15. desember 1986, kl. 12.00 á hádegi. Handhafar nafnlausra seðla ( + ) verða að framvísa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilifang til islenskra Getrauna fyrir lok kærufrests.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.