Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Side 37
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986.
37«..
Sviðsljós
Sveittur og loðinn eins og konungur rokksins - Liberty Mounten í Broadway
á föstudagskvöldið.
Tilburðirnir minntu á hreyfingar Elvis og söngurinn lika.
Elvis í Las Vegas hét sýningin sem Liberty Mounten hélt í Broadway um helgina. Aðdáendum rokkkóngsins sáluga til óblandinnar ánægju flutti Liberty
flest vinsælustu og þekktustu lögin hans og spannaði sýningin aðallega tímabil það er Elvis Presley kom fram í Las Vegas. Undirleik annaðist átta manna
hljómsveit hans, DE SOTO.
Konurnar í lífi Dons Johnson:
Flókinn en æsandi
Don Johnson (Miami Vice) hefur
skotið Tom Selleck (Magnum) ref
fyrir rass og er nú orðinn mesta
aðdráttaraflið á skjánum. Konurn-
ar í lífi Dons kunna skýringu á
því. Móðir sonar hans og fyrrver-
andi sambýliskona, Patti D’arban-
ville, segir hann alltaf hafa verið
gæddan þeim eiginleikum sem þarf
til þess að verða stjama. Það hafi
bara tekið Hollywood langan tíma
að gera sér grein fyrir því. Að sögn
Patti er Don dásamlegur faðir,
hann sé reyndar mjög flókin mann-
gerð en óneitanlega spennandi.
Don var fyrsta ástin hennar
Donyu Fiorentini sem nú er í slag-
togi með Andrew Ridgeley í Wham.
Donya hefur verið ástkona Dons
af og til og segir hún hann hafa
sérstakt lag á því að láta henni líða
eins og hún sé alveg sérstök.
Undir það tekur Olivia Brown
sem leikur með Don í Miami Vice.
„Það skiptir engu máli hvort kon-
an er stór, feit, hvít eða svört, hann
kemur eins fram við þær allar. Don
er fæddur daðrari," segir hún.
„Hann horfir á mann á alveg sér-
stakan hátt og bara það hvernig
hann snertir olnbogann á manni
er æsandi.“
Don Johnson var fyrsta ástin hennar Donyu Fiorentini og enn þá laetur
hann henni líða eins og hún sé alveg sérstök, að því er hún fullyrðir.
segir Olivia Brown (Miami Vice) um kvennagullið Don Johnson.
Patti D'arbanville, barnsmóöir Dons, segir hann vera umhyggjusaman
föður og spennandi manngerð.
Ólyginn
sagði...
Timothy Dalton
leikur James Bond í fimmtándu
Bondmyndinni sem fengið hef-
ur heitið „The Living Daylight".
í heimalandi sínu, Englandi,
hefur Timothy getið sér góðan
orðstír sem Shakespeareleikari
svo að honum virðist flest til
lista lagt. Timothy er sagður
mjög hlédrægur, hann reykir
ekki, drekkur ekki og hann ku
hafa óbeit á samkvæmum. Það
kemur greinilega til með að
reyna á leikhæfileikana í James
Bond myndinni.
Ilona Grubel
man varla hvernig Sascha
Hehn, hann sem leikur eigin-
manninn Udo í Svartaskógi,
lítur út, hvað þá hvernig það var
að kyssa hann. Hún lítur engan
annan en eiginmanninn hýrum
augum nema ef vera skyldi son
þeirra hjóna. Ilona er menntaður
sálfræðingur þannig að um-
hverfið í Svartaskógi var henni
ekki með öllu ókunnugt.
Reyndar hefur hún langan leik-
feril að baki, var aðeins fimm
ára þegar fyrsta kvikmyndahlut-
verkið bauðst, fjórtán ára var
hún komin með eigin umboðs-
mann og átján ára hlaut hún
eftirsótt verðlaun.
Stacy Keach
er fyrrverandi fangi og við upp-
töku á einum þætti í Mike
Hammer sjónvarpsseríunni var
Mike kastað I steininn. Óljúfar
endurminningar hrjáðu þá
Stacy en hann sat sjálfur nokkra
mánuði í fangelsi I Bretlandi þar
sem hann var sekur fundinn um
eiturlyfjasmygl. Heimtaði sjón-
varpsstjarnan að allar senur
innan veggja fangelsins yrðu
teknar með dyrnar opnar upp á
gátt. Vonandi er Stacy jafn-
hræddur við eiturlyf eins og
lokaðar dyr eftir þessa lífs-
reynslu.