Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1986, Side 43

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1986, Side 43
LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986. 43 lOHjy.’ií ’ FFWMSriG 6A. 121RETKJAVÍK, SÍMN9I-25I88 RolH Og^uPP Jónas Jónasson Bók um baráttu við alkohólisma og það góða fólk sem þorði að segja frá. Bók sem á erindi til allra þeirra sem láta sig mann- leg örlög einhverju varða.Einlægni og hispursleysi þeirra,sem hér segja frá,snerta tilfinningar allra þeirrasem finna þörf til að lifa betra lífi-í sátt við sjálfa sig og aðra. „Slíkar bækur stækka vonandi yfirráðasvæði vonar- innar í blautum og köldum heimi“Árni Bergm.Þjódv. „Lífsreynsla sem er áhugaverð aflestrar" Eysteinn Sigurðsson, Tíminn „Jónas Jónasson hefur skrifað áhrifaríka bók“ Elías Snæland Jónsson, DV Verð kr. 1.588.00 Ólafur Gunnarsson „Það er óhætt að mæla með þessari bók“ Eysteinn Sigurðsson, Tíminn Dag nokkurn ákveður Össur-Mamma að bjarga jörðinni en alls staðar liggur hið illa í leyni og ekki heiglum hent að sjá við því. „í sögunni er fjallað um hluti sem eru ekkert hégómamál, tilvist Guðs, líf og dauða, endi veraldar. Til bess að fjalla um þessi alvarlegu mál notar höfunaur óspart fantasiu og húmor, enda er sagan bæði fynain og full af hugarflugi.“ Margrét Eggertsdóttir, Þjóðviljinn „Þessi sérkennilega blanda látleysis og fantasíu verkar sterkt á lesanda og hrífur hann með inn í hugarheim þeirra Stóra Össurar og Ólafs.“ Verð kr. 13754» Gunnlaugur Astgeirsson, HP Minningar Þuríðar Pálsdóttur mmi ígai Jónína Michaelsdóttir skráði ()G (jll'Dl Lífssaga Bjarnfríðar Leósdóttur Elísabet Þorgeirsdóttir skráði filísabet ÞorgeicsáÓttir skrádi Ævi Þuríðar Pálsdóttur er ævintýri líkust. Hún er komin af einni merkustu tónlistarfjölskyldu á íslandi og hefur komið meira við sögu tónlistar hér á landi en flestir aðrir síðastliðin fjörutíu ár. Hún er meðal brautryðjenda á íslensku óperusviði og hefur átt ómældan þátt í að kynna löndum sínum sönglist innlendra og erlendra meistara. Saga Þuríðar er ekki aðeins tengd tónlist. Hún hefur starfað ötullega að félagsmálum og er vinsæll fyrirlesari. Á síðustu árum hefur Þuríður orðið fyrst manna til að ræða hispurslaust og af þekkingu um breytinga- skeið kvenna. Ekki er ofmælt að hvar sem Þuríður kemur við sögu, fylgir hugur máli. Forlagið gefur einnig út plötu með söng Þuríðar Pálsdóttur. Verð kr. 1.988.00 Bjarnfríður Leósdóttir er þjóðkunn baráttukona. í aldarfjórðung tók hún þátt í verkalýðsbaráttu á Akranesi og var félagi í Alþýðubandalag- inu frá stofnun þess. Bjarnfríður kvaddi flokkinn á þessu ári, er henni þótti sýnt að honum var þrotið baráttuþrek gegn láglaunastefnu ríkis- stjórnarinnar. Frásögn Bjarnfríðar er opinská og heiðarleg. Lýsing hennar á hlutskipti drykkjumannskonunnar er ein eftirminnilegasta frásögn bókarinnar. Hún segir tæpitungulaust frá baktjaldamakki í verkalýðshreyfingunni og hlífir engum. Að baki alvörunni býr leiftrandi skopskyn, hvort heldur hún segir frá óvæntum ævintýrum áhugaleikara á Akranesi, lýsir hlutskipti þeirra sem tóku út þroska sinn á stríðsárunum eða rifjar upp landleguslagsmál á síldarárunum. Verð kr. 1.888.00 noiiismiiíið Doris Lessing piinjjpino Alice Walker gs&Z . SALUMESS4 Ramón J. Sender femkin.|.Semfcr „Hér er sögð mögnuð saga af mikilli kúnst“ Jóhanna Kristjónsdóttir, Morgunblaðið Mary, hvít kona í Rhódesíu, hafnar í gæfusnauðu hjónabandi með bónda nokkrum. Hún hefur andúð á lífinu í sveitinni og lítur niður á þá innfæddu. Af ofstækisfullri hörku snýst hún gegn svörtum þjóni sínum, uns valdið snýst að lokum í höndum hennar... Meistaraleg saga sem vitnar um djúpan mann- skilning og tilfinningahita hins mikla rithöfundar. Birgir Sigurðsson þýðir söguna. Verð kr. 1.087.00 „Grípur lesanda sinn og heldur honum föst- um allt til Ioka.“ Eysteinn Sigurðsson, Tíminn Þótt Celie sé varla læs eða skrifandi, sest hún niður og skrifar Guði bréf. Hann er sá eini sem Celie treystir. Hér á jörðu hefur hún engu að treysta nema þeirri visku sem blundar innra með henni. En smám saman lærir Celie að berjast fyrir lífi sínu og öðlast kjark til að hlæja, ærslast og loks - að elska. Purpuraliturinn er saga um gleðina, sársaukann og ástina - saga sem höfðar til dýpstu tilfinninga lesandans. Ólöf Eldjárn þýðir söguna. Verð kr. 1.088.00 innb. - kr. 594.00 kilja „Besta bók sem ég hef lesið í langan tíma“ Súsanna Svavarsdóttir, Morgunbiaðið „Með afbrigðum vönduð saga“Árni Bergmann, Þjóðv Paco er sveitadrengur á Spáni. Barnungur hlýðir hann á kærleiksboðskap prestsins síns um leið og hann horfir á eymd og niðurlægingu sveitunga sinna. Hvar er réttlætið sem guðsmaðurinn boðar? Þegar Paco vex úr grasi ákveður hann að taka réttlætið í sínar hendur. Það á eftir að kosta grimmilegar blóðsúthellingar. Álfrún Gunnlaugsdóttir og Þorgeir Þorgeirsson þýða söguna. Verð kr. 988.00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.