Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1987, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1987, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 1987. Fréttir Reykjavík: Erilsöm nýársnótt án alvariegra vandræða Nýársnóttin var fremur erilsöm hjá lögreglunni í Reykjavík en án stór- slysa, að sögn Einars Bjamasonar varðstjóra. Að hans sögn var þetta eins og mjög slæm helgi og ekki hægt að líkja þessu við gamlárskvöldin hér áður íyrr. Þó var mikið af rúðubrotum víðs vegar um bæinn og tókst í fæstum tilfellum að ná sökudólgunum. Rúður voru bæði brotnar í verslunum sem og í íbúðarhúsum. í fjölbýlishúsi í Árbæ vom allnokkrar rúður brotnar. Einnig vom brotnar rúður í Árbæjarskóla, Breiðholtskjöri og í KRON í Fella- görðum. Um klukkan níu á gamlárskvöld var maður tekinn á Skólavörðustíg þar sem hann var að skjóta úr haglabyssu, en athæfi hans skapaði ekki hættu fyrir nærstadda. Ekið var á gangandi mann á Bústaðavegi og var hann flutt- ur á slysadeild. Undir morgun var nokkuð um út- köll og þá aðallega vegna ölvunar í heimahúsum og deilna milli fólks. -SJ Suðumes: Rólegt oggott gamlárs- kvöld Lögreglumenn á Suðumesjum vom ánægðir með nýársnóttina í sínu um- dæmi og töldu gamlárskvöldið hafa verið rólegt og gott. Það var sama sagan hjá þeim og víðast annars stað- ar. flest útköllin voru í heimahús. Fjórir voru teknir gmnaðir um ölv- un við akstur. En fangageymslur lögreglunnar í Keflavík vom ekki full- nýttar. _SJ Himinn var svo sannarlega fallegur yfir Reykjavík þegar klukkan sló tólf og árið 1987 rann upp og var gamla árið kvatt myndarlega eins og sjá má á myndinni sem Ijósmyndarinn okkar tók þegar flugeldarnir lýstu upp himininn á miðnætti. DV-mynd S Ohappa- laust á Akureyri Það var margt fólk á ferðinni á Akureyri á nýársnótt, að sögn lögregl- unnar þar. Nóttin gekk þó vel fyrir sig og án óhappa. Ein rúða var brotin i miðbænum. Lögreglan vai' ánægð með útkom- una og taldi að nóttin hefði verið heldur rólegri en í fyrra. -SJ Kópavogur: Með rólegri gamlárs- kvöldum Að sögn lögreglunnar í Kópa- vogi var talsvert af útköllum hjá henni á gamlárskvöld og nýársnótt en ekki var um að rasða nein alvar- leg tilfelli. Flest útkallanna vom í heimahús. 'IVeir voru teknir í Kópavogi grunaðir um ölvun við akstur. Þrátt fyrir erilinn töldu lögreglu- mennirnir þetta hafa verið með rólegri gamlárskvöldum í nokkur ár og mun rólegra en í fyrra. -SJ ísafjörður: Góð mðBting á brennur Að sögn lögreglunnar á ísafirði vom áramótin þar með rólegra móti og var lítið að gera hjá henni. Það var góð mæting á brennurnar fyrir vestan en á Isafirði vom tvær brennur og ein í Hnífsdal. Áramótin gengu sem sagt vel fyrir sig og vom lögreglumenn ánægðir með hversu vel tókst til. _____________ -SJ Talsverð ölvuná Akranesi Það var talsverður erill hjá lög- reglunni á Akranesi á nýársnótt og þá sérstaklega seinni hluta næturinnar. Talsverð ölvun var í bænum og var fólk mikið á ferð- inni enda hið besta veður. Engin slys urðu í bænum en fangageymslur vom fullnýttar þegar leið á nóttina. -SJ Hafnarfjörður: Fullar fanga- „Samúð okkar er einhuga“ -sagði Vigdís Finnbogadöttir í nýársávarpi sínu í byrjun nýársávarps síns talaði forseti Islands Vigdís Finnboga- dóttir um „skuggann sem hvílt heíúr yfir hátíðarhöldum okkar við fregnir af miklum sjóslysum undan ströndum landsins. Á slíkum raunastundum kemur ávallt í ljós hinn mikli samhugur sem býr með Islendingum. Missir eins er missir allra. Samúð okkar er einhuga um þessar mundir með fjölskyldum látinna sjómanna og alíra annarra sem að hefur verið höggvið." Einnig minntist hún í ávarpi sínu á Kristján Eldjám sem heföi orðið 70 ára á þessu ári. Þar sagði hún: „Rifjast það enn upp fyrir okkur að hve allt of snemma við máttum sjá á bak svo dýrmætum manni sem hann var.“ Auk þess minntist hún á að um aldamótin væri það fynrséð að aldraðir yrðu um 17% þjóðarinnar. „Þá um leið mun færri sem sjá þurfa öldruðum, sem skilað hafa sínum hlut til sam- félags þjóðarinnar, fyrir góðu og sómaríku ævikvöldi.“ -GKr Álfar og aðrar furðuverur fara gjarnan á kreik á nýársnótt og ekki vant- aði við borgarbrennuna i Breiðholti alls kyns verur sem stigu léttan dans. DV-mynd GVA Það var töluverð ölvun í Hafhar- firði á nýársnótt, að sögn lögregl- unnar þar í bæ. Fangageymslumar vom fullnýttar sem er ekki vaninn á gamlárskvöld. Lögreglan fór í allnokkur útköll og var það aðllega vegna deilna í heimahúsum. Annars vom lög- reglumenn í Hafnarfirði ánægðir með áramótin og töldu að nóttin hefði verið rólegri en í fyrra. -SJ Rólegt hjá slokkvi- liðinu Það var mun rólegri nýársnótt hjá slökkviliðinu í Reykjavík held- ur en í fyrra þegar bærinn logaði nánast vegna sinubruna. Nú fór slökkviliðið aðeins í þrjú minni háttar útköll, eitt vegna þess að kveikt hafói verið í póst- kössum fjölbýlishúss í Breiðholti. Annað útkallið var vegna elds á svölum og það þriðja vegna elds í mannlausum bíl við Reykjanes- braut. Bíllinn mun ekki hafa skemmst að ráði vegna eldsins. -SJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.