Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1987, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1987, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 1987. Meiming Nýtt verk á nýju sviði Þjóóleikhúsið sýnir á Litla sviðinu: I Smá- sjá Höfundur: Þórunn Sigurðardóttir. Leikmynd og búningar: Gerla. Tónlist Ámi Harðarson. Lýsing: Bjöm Bergsteinn Guðmundsson Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson Leikendur: Anna Kristin Amgrimsdóttir, Arnar Jónsson. Ragnheiður Steindórs- dóttir og Sigurður Skúlason. Auk þeirra koma fram nokkrir sjónvarpsfréttamenn. Loksins hefur ræst langþráður draumur og Litla sviðið í Þjóðleik- húsinu fengið endanlegan sama- stað. í íþróttahúsi Jóns Þorsteins- sonar hefur verið innréttað reglulega snoturt leikhús og var það vígt þann 30. des. með pomp og prakt. Þetta er stór áfangi í starfi leikhússins því að slík að- staða er bráðnauðsynleg og for- senda þess að hægt sé að sinna ýmsum þeim verkefnum sem ekki væri kostur að setja upp ella. Litla sviðið hefur alla tið verið á hrakhólum með húsnæði eða öllu heldur verið rekið við ófullkomnar aðstæður þó að þetta sé lögboðinn þáttur í starfsemi leikhússins. Það var um árabil starfrækt í Lindarbæ og síðar í Þjóðleikhúskjallaranum. Þrátt fyrir erfiðan húsakost voru settar þarna upp margar eftir- minnilegar sýningar. A síðasta leikári lá starfsemi þess alveg niðri svo að það gefur augaleið að nú blasir við betri tíð með þeirri ágætu aðstöðu sem fæst í þessu nýja, notalega leikhúsi. Sérstaklega er það fagnaðarefni að á fyrsta starfsári Litla sviðsins er fyrirhugað að sýna eingöngu ís- lensk verk. Leikrit Þórunnar Sigurðardótt- ur, í smásjá, er að mörgu leyti verðugt vígsluverkefni og heppi- legt til sýningar í því nána and- rúmslofti sem skapast í leikhúsi sem ekki er stærra en þetta. Þórunn er auðvitað þaulreyndur leikhúsmaður, leikari og leikstjóri, en hér reynir fyrst og fremst á hana sem rithöfund, þó að leikhúsreynsl- an komi til góða. í verki hennar, „Guðrúnu", sem sýnt var hjá Leik- félagi Reykjavíkur 1983, voru það persónur og atburðir Laxdælu sem byggt var á. Söguþráðurinn var þekktur en höfundur velti upp ýmsum spurningum um samband þeirra Guðrúnar, Bolla og Kjart- ans og skoðaði söguna í nýju ljósi. Efniviðurinn í þetta nýja leikrit er hins vegar sóttur í okkar sam- tíð. Fjallað er um fólk á „besta“ aldri sem átt hefur samleið allt frá Anna Kristín Arngrímsdóttir leikur Dúnu, þá persónu verksins sem skýrustum dráttum er dregin. Mér fannst Anna Kristín ná styrk- ari tökum á hlutverkinu eftir því sem á leið. I upphafi er Dúna beisk og lífsleið, þó að í eðli sínu sé hún létt, en verður síðan að horfast í augu við þungbær tíðindi og sýnir þá hvað í henni býr. í upphafi fannst mér vanta fyllingu í túlkun Önnu Kristínar en í seinni hlutan- um sýndi hún vel þann innri kraft sem Dúna á að hafa yfir að ráða þegar mótlætið herjar. Læknaþrenningin er leikin af þeim Arnari Jónssyni, sem leikur Bjarna, eiginmann Dúnu, og Ragn- heiði Steindórsdóttur og Sigurði Skúlasýni sem leika hjónin Hildi og Alla. Arnar sýnir ágætlega mann sem er að lokast inni í heimi sjálfum- gleðinnar, ekkert skiptir máli nema starfið og rannsóknir sem vissulega gætu orðið til blessunar fyrir fjölda sjúklinga. En sá hængur er á að í hans augum hafa sjúklingarnir misst öll persónueinkenni, þeir eru aðeins tilfelli sem hann skoðar kalt og hlutlaust. Og Arnar var kaldur og hlutlaus, kannski um of undir lokin þegar hann átti að bráðna. Sigurður Skúlason leikur „mannlega“ lækninn sen kannski fmnur of mikið til með öðrum. Hann hefur hallað sér um of að flöskunni en raunir konunnar, sem hann elskar, verða til þess að lækna hann af áfengissýkinni og bæta hans eigið hjónaband í leið- inni (vonandi). Dálítið melodra- matískt en sleppur fyrir horn vegna hins ágæta texta Þórunnar sem er laus við alla væmni, sannur og ein- lægur. Og er ekki lífið sjálft einmitt eitthvað þessu líkt? Sigurður leikur sem fyrr segir hlutverk Alla og er hæfilega gal- gopalegur en nær þó að sýna inn í kviku á honum þegar við á. Ragnheiður Steindórsdóttir er Hildur, aðstoðarlæknir Bjarna. Hún gerði um margt vel í þessu hlutverki þó að það gæfi ekki mikla möguleika fyrr en í seinni hlutan- um þegar áhorfendur kynnast Hildi fyrst ofurlítið sem sjálfstæðri per- sónu. Þórhallur Sigurðsson leikstjóri heldur blæ hófstillingar yfir sýn- ingunni sem kemur ljómandi vel fyrir á þessu nýja sviði. AE skólaárum. Þetta eru tvenn hjón, þrjú þeirra eru læknar en sú sem gefið er í skyn að léttast hafi átt með að læra varð að hætta lækna- náminu af því að það fór ekki saman að lesa fræðin og vera með barn á brjósti. Hjá þessu fólki er lífsgæðakapp- hlaupið að baki, starfsframinn er það sem lífið snýst um. Sá tími nálgast óðum þegar staldrað er við, litið til baka og lífið endurmetið. Til hvers var allt erfiðið, hvað hef- ur áunnist, týndist ef til vill eitt- hvað mikilvægt á leiðinni? Nema persónur Þórunnar fá ekkert ráð- rúm, þeim er harkalega kippt niður á jörðina þegar óvæntir atburðir gerast. Aðstæður, sem hver og einn getur hvenær sem er þurft að horf- ast í augu við, verða til þess að gjörbreyta viðhorfum persónanna, bæði til sjálfra sín og hverrar til annarrar. Höfundur fjallar hér um ást og vináttu, líf og dauða, mismunandi gildismat og viðbrögð einstaklings- ins við breyttum aðstæðum. Þetta er þannig verk sem fjallar um venjulegt fólk af holdi og blóði, saga úr daglega lífinu, sem vel er til þess fallin að vekja til umhugs- unur um það andvaraleysi og til- litsleysi sem allt of oft einkennir líf nútímamannsins, að minnsta kosti á meðan allt leikur í lyndi. Höfundur og leikstjórinn Þór- hallur Sigurðsson hafa á æfinga- tímanum haft nána samvinnu og verkið kemur fyrir sjónir áhorf- enda í stílhreinni umgjörð leik- myndar sem er verk Gerlu. Atriði eru nokkuð mörg og skipt- ingar tíðar og mér fannst Gerla Leiklist Auður Eydal leysa sitt verkefni harla vel. Um- hverfið er hæfilega kalt, sviðsmun- ir fáir en hver og einn prýðilega valinn. Myndskjáir eru notaðir og gegna töluverðu hlutverki og tónlist er ákaflega mikilsvert atriði í sýning- unni en Árni Harðarson sér um hana. Hvort tveggja setur nútíma- legan svip á sýninguna. Á frumsýn- ingu voru einhverjir tækniörðug- leikar á stjórn myndbandstækj- anna er. það stendur væntanlega til bóta. Leikritið gefur nokkuð góða mynd af þeim fjórum einstakling- um sem koma við sögu þó að persóna Dúnu sé skýrast mótuð. Hún verður sá möndull sem at- burðarásin snýst um og hennar skapgerðareinkenni verða skýrust í verkinu. Lýsing hinna þriggja er grynnri þó að þau hvert um sig hljóti að gera upp sín mál í ljósi nýrra viðhorfa og þá komi í ljós hver þau eru þegar á reynir. Mér fannst fyrri hluti verksins sterkari. í seinni hlutanum, eftir hvörfin sem verða þegar Ijóst er að Dúna er haldin sjaldgæfum sjúkdómi, hægir á atburðarásinni. Það verður visst spennufall og upp- gjör persónanna við sjálfar sig og stefnubreytingar þeirra verða ekki eins dramatísk og efni standa til. Hin sterka hlið Þórunnar er að mínu mati textasköpun hennar. Samtölin eru mjög vel upp byggð, textinn er leikhæfur, hún fjallar hér um margslungnar persónur og margháttuð tengsl þeirra í milli og skeikar hvergi hvað hið talaða orð varðar. Ragnheiður Steindórsdóttir og Arnar Jónsson í hlutverkum sinum í „í smásjá“. Er enthvað að? Kolbrún Ema Pétursdóttir, Amór Benónýsson og Briet Héðinsdóttir í „Lifi til einhvers" eftir Nínu Björk Árnadóttur. Sjónvarpiö, 1987: Lif til einhvers. Handrit Nina Björk Árnadóttir. Tónlist: Hilmar örn Hilmarsson. Leikmynd og búningar: Guðrún Sigriöur Haraldsdóttir. Stjórn upptöku: Þrándur Thoroddsen. Leikstjóri/klipping: Kristín Jóhannesdóttir. Sjónvarpsleikritið, Líf til einhvers, var tekið upp á árinu 1985, en ekki frumsýnt fyrr en nú að kvöldi nýárs- dags. Það hefur því legið töluverðan tíma í salti hjá stofnuninni af ein- hverjum ástæðum sem ég hef ekki séð skýringu á. Það er heldur dapurleg mynd af mannlegum samskiptum, sem dregin er upp í þessu verki Nínu Bjarkar Ámadóttur, og mér finnst úrvinnsla leikstjórans, Kristínar Jóhannesdótt- ur, skerpa og magna þennan dapur- leika. Konumar íjórar, sem koma við sögu, standa allar einar hver á sirrn hátt en þrá mannleg samskipti og það að komast út úr einangruninni. Undir lokin eygjum við von fyrir sumar per- sónanna þó að ekki séu gefhar ákveðnar lausnir. Yfirbragð myndarinnar er bjart, nærri kalt, og myndatakan stundum miskunnarlaus og hörð. Nokkur atriði em allhrottaleg og ástarlífslýsingar hispurslausar. Erótík gegnir stóm hlutverki í lífi og samskiptum fulltrúa þriggja kynslóða, Mörtu, móður henn- ar og dóttur, en þar kemur við sögu sami maðurinn í draumum þeirra allra, Haraldur, sambýlismaður Mörtu. 1 myndinni em ýmis tákn og vísan- ir, nokkur draumkennd atriði falla inn í söguþráðinn og speglar gegna miklu hlutverki og koma hvað eftir annað fyrir. Einstaklingurinn þráir snertingu við aðra mannvem en fyrir verður aðeins kalt yfirborð glersins eða speg- ilsléttur vatnsflöturinn. Annars fer fram ýmsum sögum í myndinni eins og sjónvarpsáhorfendur frá því í gærkvöldi vita. Minnstu mun- ar að afskipti félagsráðgjafans, Mörtu, af málum einstæðu móðurinnar, Bryndísar, hverfist í óbærilegan harm- leik. Á sama tíma fer fram uppgjör mála á heimili Mörtu og eins og fyrr segir hillir kannski undir betri tíð í lokin. Persónumar em allar sjálfhverfar, þjakaðar af eigin einmanakennd og tómleikatilfinningu, nema Haraldur, sem reynir að bæta fyrir einhverja óljósa sektarkennd frá því í bemsku Leiklist Auður Eydal með því að vera öllum góður en vekur þá upp tilfinningar sem hann ræður ekki við og kunna að draga dilk á eftir sér. Hanna María Karlsdóttir nær góð- um tökum á hlutverki Mörtu og manngerðin fellur mjög vel að stíl og andblæ myndarinnar. Sama er að segja um Bríeti Héðinsdóttur sem á létt með að túlka móður Mörtu. Guðlaug María Bjamadóttir fcrnnst mér þvinguð í hlutverki Bryndísar, framsögnin óeðlileg og kom þess vegna slagsíðu á atriðin á milli þeirra Hönnu Maríu. Guðlaug lék hins vegar lokaatriðin mun betur þegar botnlaus örvæntingin knýr Bryndísi út á ystu nöf. Kolbrún Erna Pétursdóttir gerði margt vel í hlutverki unglingsstelp- unnar Sifjar. Hún lufsast um einmana og óánægð og enginn hinna fullorðnu sér hvemig henni líður. Haraldur, full- trúi allra karlmanna í myndinni, er leikinn af Amóri Benónýssyni og var nokkuð sannfæandi, sem þessi bjarti og væni draumaprins þriggja kyn- slóða. Þetta verk er í rökréttu samhengi við fyrri verk þeirra Nínu Bjarkar og Kristínar Jóhannesdóttur. Ég verð að viðurkenna að mér fannst þó meira af Kristínu en Nínu í myndinni, úr- vinnslan á handritinu er bæði sterk og persónuleg frá hendi leikstjórans. En eins og sagði í upphafi fannst mér þetta verk dapurlegt og í því mik- il angist. Aðeins á einum stað tók ég eftir að ögn var slegið af alvömþung- anum og áhorfandanum leyft að brosa út í annað. En lífið sjálft er nú sem betur fer oftar en ekki blanda af súm og sætu. AE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.