Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1987, Síða 11
f- FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 1987.
11
DV
Fréttir
Ríkissaksóknari um okurmálið:
Ekki akært i málum þegar
engir hámarksvextir giltu
„Það er ljóst að þessi dómur hefur
veruleg áhrif á framgang málatil-
búnaðar ákæruvaldsins í þessum
okurmálum," sagði Hallvarður Ein-
varðsson ríkissaksóknari í samtali
við DV þegar hann var spurður að
því hver áhrif dómur Hæstaréttar í
okurmálinu svokallaða á dögunum
myndi hafa á þau mál sem í uppsigl-
ingu væru.
Sagði Hallvarður að ákæruvaldið
og héraðsdómarar myndu líta til
dóms Hæstaréttar í þeim málum sem
framundan væru og yrði fallið frá
ákærum í málum þeim þar sem meint
brot væru framin á þeim tíma þegar
ekki giltu hámarksvextir, sam-
kvæmt dómi Hæstaréttar, en í öðrum
málum myndi ákæruatriðum fækka.
! fréttatilkynningu sem Seðla-
bankinn sendi frá sér nýlega, vegna
dóms Hæstaréttar í máli þessu, kem-
ur meðal annars fram að Seðlabank-
anum hafi ekki borið skylda til að
ákveða hámarksvexti heldur hafi
bankanum aðeins verið það heimilt.
Um það að auglýsingar Seðlabank-
ans skuli, að mati Hæstaréttar, ekki
vera grundvöllur refsiábyrgðar f
málinu segir bankinn að það sé hlut-
verk löggjafans en ekki Seðlabank-
ans að tryggja að refsiheimildir séu
jafnan I samræmi við þá stjórnsýslu-
löggjöf sem bankanum sé ætlað að
starfa eftir.
Þá segir í frétt bankans að dómur
Hæstaréttar leiði til verulegrar rétt-
aróvissu við beitingu okurlaga
samhliða nýrri bankalöggjöf sem
miðist við brevttar forsendur. Því sé
tímabært að móta heildstæða löggjöf
um vaxtamál og refsiheimildir til
samræmis við þróun undanfarinna
ára og eyða þar með þeirri réttar-
óvissu sem nú ríkir. -ój
Aukinn þorskkvoti:
Meiri afli en
við ráðlögðum
- segir Jakob Jakobsson
„Því er ekki að leyna að þessi 30
þúsund tonna aukning á þorskkvótan-
um er gagnstæð okkar ráðleggingum.
Við lögðum til að veiðunum yrði hald-
ið í skefjum næstu tvö árin meðan
þorskárgangamir frá 1983 og 1984
væru að stækka en ljóst er að árgang-
urinn frá 1983 verður uppistaða aflans
á næsta ári. Ágangarnir frá 1981 og
1982 eru báðir lélegir þannig að hinn
sterki 1983 árgangur mun bera veiðina
uppi. Hitt er svo annað mál að þorsk-
stofninn er ekki í hættu þótt kvótinn
sé aukinn um 30 þúsund tonn, þetta
er bara spuming um hvemig menn
vilja nýta hann,“ sagði Jakob Jakobs-
son, forstjóri Hafrannsóknastofnunar-
innar, þegar hann var spurður mn álit
á auknum þorskkvóta á næsta ári.
Jakob sagði að talið væri að þorsk-
stofninn væri um ein milljón lesta og
þar af væri 1983 árgangurinn um 460
þúsund lestir. Hann verður ekki kyn-
þroska fyrr en 1989 til 1990, fer nokkuð
eftir skilyrðum í sjónum.
Þvi má svo bæta við að veiðin á
hverju ári fer alltaf eitthvað fram úr
áætlun og því ekki óeðlilegt að gera
ráð fyrir því að á næsta ári veiðist 350
til 360 þúsund lestir af þorski.
-S.dór
Aramotadansleikurinn:
Kostaði um
eina milljón
Kostnaður sjónvarpsins vegna ára-
mótadansleiksins í Broadway var um
ein milljón króna. Beinn dagskrár-
kostnaður nam um 480.000 krónum og
reikna má með að annað eins hafi far-
ið í þann mannskap sem vann fyrir
sjónvarpið þessa nótt auk upptöku-
kostnaðar.
Að sögn Péturs Guðfinnssonar,
framkvæmdastjóra sjónvarpsins,
þurftu þeir ekkert að greiða fyrir hú-
sið sjálft og náðust mjög hagstæðir
samningar við Ólaf Laufdal, eiganda
þess.
„Mér sýnist að sjónvarpið hafi slopp-
ið nokkuð vel frá þessu dæmi,“ sagði
Pétur í samtali við DV.
-FRI
STERKIR
TRAUSTIR
Vinnupallar
írá BRIMRÁS
Kaplahrauni 7 65 19 60