Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1987, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1987, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 1987. Ymislegt Tímaritið Þroskahjálp 4. tölublað 1986 er komið út. Útgefandi er Landssamtökin Þroskahjálp. Að venju eru í ritinu ýmsar greinar, upplýsingar og fróðleikur um málefni fatlaðra. Það tölu- blað sem hér um ræðir er að nokkru helgað 10 ára afmælisþingi Landssamtakanna, frá ))VÍ nú í haust. Þar stöldruðu menn við, litu um öxl og horfðu fram á veginn. í leið- ara þessa heftis hugleiðir Svanfríður Larsen stöðu og störf aðildarfélaga Þroskahjálpar og tvö af erindum afmælis- þingsins birtast: Guðlaug Sveinbjarnar- dóttir rifjar upp atriði úr 10 ára sögu og skoðar hvað áunnist hefur út frá sjónar- hóli foreldris og Halldóra Kristjánsdóttir greinir frá nokkrum framtíðardraumum þroskaheftra. Og í pistli af starfi samtak- anna er svo sagt frá helstu atriðum þessa þings. Af öðru efni má nefna ýmsan fróð- leik um viðhorf til fósturrannsókna í samantekt Ingu Sigurðardóttur og spjall við Eyjólf Finnsson um störfsvæðisstjórn- ar Vesturlands. Evald Sæmundsen fjallar um kennslu- og uppeldisaðferð hreyfi- hamlaðra barna. sem kennd eru við Ungverjann Andreas Petö og skýrir frá námskeiði sem haldið var síðastliðið sum- ar um þetta efni. En þá var Ester Cotton hér á landi á vegum Greiningar- og ráð- gjafarstöðvar ríkisins. Loks má nefna ferðasögu eftir Lilju Pétursdóttur. þar sem höfundur hregður ljósi á ferð sína til Þýskalands síðastliðið sumar. Tímaritið Þroskahjálp kemur út fjórum sinnum á ári. Það er sent áskrifendum og til sölu á hlaðasölustöðum og á skrifstofu Þroska- hjálpar. Nóatúni 17. Áskriftasíminn er 91 29901. Happdrætti Almanakshappdrætti Lands- samtakanna Þroskahjálpar Vinningurinn í desember kom á nr. 1477. Aðrir vinningar á árinu eru: 14927. 16911. 4792. 11769. 11639. 7767. 1185, 16619. 360. 4404 og 7314. Á sunnudag verður frumsýnt leik- ritið um Kaj Munk eftir Guðrúnu Ásmundsdóttur sem hún jafhframt leikstýrir og leikur í. Sýningin verð- ur í Hallgrímskirkju kl. 16.00 og verður framvegis sýnt á sunnudög- um á sama tíma og á mánudags- kvöldum kl. 20.30. Kaj Munk var, eins og kunnugt er, danskur prestur og leikritahöfundur. Á árunum 1932 til 1934 var Munk blaðamaður og þótti svo góður að hann var sendur til Þýskalands þar sem allt var að gerast, nasisminn að vinna sigur og Hitler að komast til valda. Nokkrum árum fyrir stríð var hann farinn að skrifa á móti nasis- manum og hafði það þær afleiðingar að í lok stríðsins drógu nasistar hann út af heimili hans og skutu hann. Líkið fannst svo í skurði nálægt Silkiborg 4. janúar árið 1944. Sautján leikarar taka þátt í sýn- ingunni, þar af þrjú böm. Þeir em Amar Jónsson, sem leikur Kaj Munk, Guðrún Ásmundsdóttir, Karl Guðmundsson, Jón Hjartarson, Ragnheiður Tryggvadóttir, Andri Öm Clausen, Hallmar Sigurðsson, Edda V. Guðmundsdóttir, Helga Þ. Stephensen, Helena Jóhannsdóttir, Þorsteinn Guðmundsson, ívar Öm og Daði Sverrissynir, Elín Edda Ámadóttir, Ragnar Kjartansson, Unnur ösp Stefánsdóttir, Reinhold Richter og Margrét Guðmundsdótt- ir. Birgitta Hellerstedt og fleiri sjá um dansa og hreyfingar. Fjölmörg þekkt andlit mátti sjá í blysförinni í tilefni vígslu Litla sviðsins. Nýtt leikhús undir handarjaðri Þjóðleikhússins Smiðshöggið var rekið á nýtt leik- hús á þriðjudaginn undir handarjaðri Þjóðleikhússins, en það var Litla svið- ið að Lindargötu 7 sem var vígt við hátíðlega athöfri með frumsýningu á verki eftir Þómnni Sigurðardóttur, í smásjá. Blysför var farin klukkan 20 um kvöldið þar sem íslenskir leikarar og starfsmenn Þjóðleikhússins ásamt bamalúðrasveit Mosfellssveitar gengu frá anddyri Þjóðleikhússins að Litla sviðinu. Fjöldi fólks var þar saman kominn og allir virtust una undirleik bamalúðrasveitarinnar vel. -GKr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.