Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1987, Blaðsíða 2
44
LAUGARDAGUR 31. JANIJAR 1987.
Ekki þessa
hraðbraut
Vegamálastjórinn á Ítalíu ráðgerir
nú að leggja hraðbraut mikla rétt
við hina fornu borg Pompei. Um-
hverfisverndarmenn og fornleifa-
fræðingar hafa brugðist ævareiðir
við og hóta öllu illu ef ekki verður
hætt við lagningu vegarins.
í Pompei eru fádæma vel varðveitt-
ar 2000 ára gamlar fomleifar því sem
kunnugt er fór borgin undir ösku í
miklu gosi í Vesúvíusi. Yfirvöld segja
að hraðbrautin hafi ekki áhrif á forn-
leifarnar því brautin verði skilin frá
borginni með 30 metra breiðri gras-
flöt.
Þeir sem eru á móti segja að tæring
vegna loftmengunar eigi eftir að fær-
ast mjög í aukana ef brautin verður
lögð á þessum stgð. Fróðir menn
Breið
siðan
segja þó að engin ástæða sé til að
óttast þessar ráðagerðir því enn
muni líða mörg ár áður en hrað-
brautin komist á fjárlög og enn
lengri tími þangað til hafist verður
handa við lagninguna.
VIKAN
er blaðið
Gefðu mér gott stríð
og ég harðna
- segii Albert Guðmundsson iðnaðanáðherra í Vikuviðtalinu
Rauður
kjóll,
smásaga eftir
Oddnýju Björgvins-
dóttur. Fyrsta smá-
saga höfundar sem
birtist á prenti. Viðtal
við höfundinn.
í þrjá mánuði á eftir
leið ég vítiskvalir í
fráhvörfum efdr aHa
neysluna. Hefði ég
ekki átt fjölskyldu
mína að hefði ég
svipt mig lífi, segir
fyrrverandi eitur-
lyflaneytandi í viðtali
við Vikurta.
Hvað vantar? Tilbú-
inn varahlut eöa líf-
fræðilegan, gervis-
inar eða beinmerg?
Lesið um varahluta-
þjónustu líkamans í
Vikunni.
Missið ekki af þessari Viku
Mafíósinn Castellano.
Eins dauði er
aimars brauð
Á Sikiley standa nú yfir umfangs-
mikil réttarhöld í tveimm mafíumál-
um. Þrátt fyrir að áhrifamiklir
mafíósar standi í vitnastúkunum
virðast áhrif mafíunnar ekki hafa
dvínað.
Alls eru það 11 mafíuleiðtogar sem
bíða dóms og með þeim 468 minni-
háttar gangsterar. Réttarhöldin fara
fram í rammgerðu dómshúsi í Pal-
ermó. Þaðan eiga engin boð að geta
gengið frá glæpamönnunum en samt
virðast félagarnir utan veggja hafa
nóg að dunda.
Þegar réttarhöldin hófust fyrir
tæpu ári lýsti Bettino Craxi, forsæt-
isráðherra Ítalíu, þeim sem miklum
ósigri fyrir mafíuna því þarna áttu
allir helstu mafíósamir að vera
komnir fyrir dóm.
Handtökumar höfðu óumdeilan-
lega mikil áhrif á heróínviðskipti
mafíunnar í Bandaríkjunum en fyrir
ítali hafa sigurlaunin reynst minni.
Bandarísk yfirvöld halda því og fram
að nú sæki mjög í sama farið og fyrr
með heróínverslunina um Sikiley.
Auk þeirra sem settir voru undir
lás og slá voru um eitt hundrað mafí-
ósar aðrir ákærðir án þess að til
þeirra hefði náðst. Það em þessir
menn sem nú er talið að hafi komið
ár sinni vel fyrir borð þegar
keppinautunum fækkaði.
Drottningin
í klössun
Þýskir skipasmiðir em nú hálfnað-
ir við að breyta skemmtiferðaskipinu
Queen Elizabeth II í fljótandi ferða-
mannastað. Þetta eru umfangsmikl-
ar breytingar sem kosta ekki undir
milljarði króna þegar allt er komið.
„Það verður síst minni hefðarbrag-
ur á frúnni eftir þessar breytingar
en áður,“ er haft eftir skipstjóranum
Lawrence Portet.
Þetta er fyrsta meiriháttar breyt-
ingin á skipinu síðan því var hleypt
af stokkunum fyrir tveim áratugum.
Þó var ofurlítið lappað upp á skipið
þegar það var tekið í þjónustu breska
flotans á dögum Falklandseyja-
stríðsins.
Drottning skemmtiferöaskipanna - eins og hún var.
Queen Elizabeth II er seinasta í land og gríðarmikil dísilvél sett í
skemmtiferðaskipið sem búið er staðinn.
gufuvél. Nú verður gufuvélin tekin
Séð í gegnum
pýramída
Japanskir fornleifafræðingar hafa
fengið leyfi egypsku stjómarinnar til
að kanna innviði pýramídanna
miklu í Giz suðvestur af Kaíró.
Með nýjustu tækni má skoða þessa
grjóthauga að innan.
Egyptar ætlað að leggja leiðangri
Japananna lið og einnig nokkrir
franskir sérfræðingar sem þó unnu
sér það til óvinsælda í fyrra að bora
í einn pýramídann.
Japanirnir ætla þó ekki að nota
bora heldur rafsegulbylgjur sem
draga auðveldlega í gegnum þessa
miklu steinveggi. Lengi hefur því
verið trúað að í pýramídunum sé að
finna leyniherbergi sem kunni að
geyma mikil undur.
Frakkarnir, sem áður eru nefndir,
boruðu í Keopspýramídann í leit að
múmíu faraósins Keops en fundu
ekkert nema grjót. Nú er ætlunin að
finna hugsanleg leyniherbergi fyrst
og bora síðan sem jafnvel Breiðsíðu-
nefndin hefur orðið sammála um að
sé skynsamlegt.