Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1987, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 1987.
47
Næstu verkefni
- Hvað eruð þig svo að fást við
í dag?
Það er Signý sem verður fyrir
svörum: „Við Rannveig erum nú
á kafi í undirbúningi íyrir næstu
óperu, Ariadne frá Naxos eftir
Richard Strauss. Það verður farið
í 3ja vikna óperuferðalag nú í
febrúar sem verður með svipuðu
sniði og fyrri ferðin. Óperan er í
tveimur þáttum og það eru 15
hlutverk í sýningunni en enginn
kór. Þar af leiðandi eru hlutverk-
in umfangsmeiri og erfiðari en í
Brúðkaupi Fígarós. Ég syng Ar-
iadne í þessari uppfærslu og er
það mitt stærsta hlutverk til
þessa.“
Og Rannveig bætir við:
„Strauss blandar þarna skemmti-
lega saman tveimur stíltegund-
um, óp'era buffa og ópera seria,
þ.e.a.s. léttri og alvarlegri óperu,
og það má geta þess að Strauss
taldi sjálfur þessa óperu eitt af
sinum bestu verkum. Ég syng
hlutverk tónskáldsins sem er
mjög erfitt og umfangsmikið
hlutverk fyrir mezzosópran.
Verkið fjallar einmitt að hluta til
um stöðu tónlistarfólks um alda-
mótin 1800.“
„Það má kannski skjóta þvi inn
í,“ segir Haukur, „að 5 af þessum
15 hlutverkum i sýningunni eru
skipuð nemendum frá Karusso
og þykir okkur það ekki verra."
- Já, Haukur, þú syngur ekki í
Ariadne, hvað hefur þú íyrir
stafni þessa dagana?
„Ég einbeiti mér aðallega að
þvi að syngja og ég var svo hepp-
inn að í gegnum hlutverk Dr.
Bartolo var ég meira og minna
tekinn inn í óperudeildina sem
er mjög sjaldgæft því að í raun-
inni þyrfti ég fyrst að ljúka 2
árum í viðbót. Þarna fæ ég að
spreyta mig á ýmsum hlutverk-
um, m.a. Collini í La Boheme og
Alfonso í Cosi fan tutte eftir
Mozart."
Framtíðin frekar óljós
- Svona að lokum, að hverju
stefnið þið í framtiðinni að námi
loknu?
Haukur fær orðið: „Ég hef
hugsað mér að vera 3-4 ár í við-
bót í þessum skóla en hvað svo
gerist er frekar óljóst. Mig langar
til að kynnast öðrum skólum, t.d.
í Ameríku eða jafnvel á Ítalíu.
Minn draumur er að geta starf-
að sem söngvari við óperuhús í
Evrópu en geta samt haft mögu-
leika á að starfa tímabundið
heima á íslandi."
Rannveig er næst með svar: „Ég
reikna með að verða 2-3 ár hér í
skólanum í viðbót og jafnframt
byrja að koma mér á framfæri.
Ég býst nú fastlega við að verða
hér í nágrenni Vínarborgar þvi
ég tengist Vín og Austurríki
ákveðnum böndum. En auðvitað
langar mig heim, eða a.m.k. að
vera með annan fótinn heima á
íslandi.Það er að vísu fyrirsjáan-
legt að Island rúmar okkur ekki
öll, söngnemendurna.“
Hér grípur Haukur fram í: „Ég
held að það sé öllum mikilvægt
að fá tækifæri til að starfa í Evr-
ópu, við það mundi maður öðlast
ómetanlega reynslu."
„Það er e.t.v. rétt,“ segir Signý,
„en það er kannski meira hin
mikla samkeppni og framboð á
frábærum listamönnum sem
heldur manni við efnið og ýtir
undir sjálfsgagnrýni sem er
hverjum listamanni bráðnauð-
synleg. Mitt takmark er að geta
starfað sem söngvari heima á ís-
landi, hvort sem það yrði eftir
reynslutíma í Evrópu eður ei. En
lokatakmarkið er að geta starfað
að söngmálum á íslandi því þar
er geysilega mikil gróska og mik-
ið að gerast í listinni. Það er
spennandi, mjög spennandi verk-
efni.“
Lokaorð
Þá er nú lítið eftir annað en að
þakka íyrir sig og slá botninn í
þetta. Og um leið og við kveðjum
söngfuglana þrjá vonum við að
bæði lánið og lánin leiki við þá.
Viðtal og myndir:
Jóharma Rútsdóttir og
Snorri Valsson, DV, Vínarborg
Söngtríóið fyrir framan Mozart- minnismerki en þau tóku öll þátt i uppfærslu á óperu Mozarts, Brúðkaupi Figa-
rós, sem farið var með til margra Evrópulanda.
Ford Escort XR3 i árg. ’84, ekinn MMC Pajero, styttri, disil, árg.
32.000 km, sóllúga. Verð kr. 1986, ekinn 10.000 km, gullsans.
480.000. Verð kr. 760.000. Mælir.
Honda Accord EX, 3ja dyra, árg. BMW 315 árg. 1982, ekinn 65.000
1982, ekinn 41.000 km, grásans. km, rauður. Verð kr. 320.000.
Verð kr. 340.000.
MMC Cordia GLS árg. 1983, ekinn
65.000 km, grænsans., vökvastýri,
rafmagn i rúðum, sumar- og vetr-
ardekk. Verð kr. 320.000.
VW Golf CL árg. '84, ekinn 47.000
km, rauður, sumar- og vetrardekk.
Verð kr. 330.000.
GOTT ÚRVAL NÝLEGRA BÍLA Á
STAÐNUM, TÖLVUVÆDD ÞJÓNUSTA.
OPIÐ: Mánud.-föstud. kl. 9.00-18.30.
Laugard. kl. 10.00-17.00.