Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1987, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1987, Blaðsíða 18
60 LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 1987. Popp Robbie Nevil, hippalegur ungur maður á uppleið í poppinu á blómaskeiði uppanna. Robbie Nevil haslar sér völl Söngvarinn og lagasmiður- inn Robbie Nevil hefur haslað sér völl með frum- smíð sinni, laginu C’est La Vie, sem nýtur vinsælda víða um þessar mundir. Robbie er nokkuð sérstæður þótt ekki sé fyr- ir aðrar sakir en þær að hann lítur út eins og hipparnir gerðu fyrir teimur áratugum. Hann er með hárlubba sem nær niður á mitt bak og hlustar öllum stundum á Led Zeppelin. Og ekki er klæðaburður- inn skárri, gallabuxur og leður- jakki með gæruskinni. Fyrir innan leðrið og gæruna klæðist drengur- inn þunnum T-bol. Robbie Nevil hefur sterka söngrödd og þrátt fyr- ir að hann sé bandarískur kaus hann að hljóðrita þessa frumsmíð sína í Lundúnum. Þar naut hann liðsinnis upptökustjórans, Alex- ander Sadkin. Að auki komu fyrrum tæknilegur ráðunautur Cure, Phil Thornally, nokkuð við sögu. Robbie nýtur góðra krafta fleiri þekktra manna úr tónlistar- iðnaðinum því fyrrum umboðs- maður Madonnu sér um þá hlið mála fyrir Robbie. Það er því greinilegt að hann hefur ráðið ein- valalið til að annast faglegu vinnuna en þetta byggir ekki síður á huglægri vinnu. „Ég vinn að því að semja tónlist sem kemur mér í beint samband við hlustendur mína,“ segir herra Nevil. Reyndar er hann ekki einn um tónsmíðarnar því hann nýtur aðstoðar góðra manna á því sviði sem öðrum. „Ég er skapandi sam- verkamaður,“ segir Robbie og meinar að honum takist best upp er hann vinnur með öðrum. Eiginmaður + eiginkona + kassettutæki = ramtíðin er svo björt að Fég verð að nota sólgler- augu,“ syngur Pat McDonald í samnefndu lagi sem hljómar oft á öldum ljósvakans nú um stundir. Pat er annar helmingur hins skemmtilega Timbuk 3 dúetts. Hinn helmingurinn heitir Bar- bara og er eiginkona Pats. Þessi skötuhjú eru frá Austin í Texas en þar eiga kántrýútla- garnir Waylon Jennings, Willie Nelson og fleiri heimkynni sín. En þau Pat og Barbara blása á útlagana því þeirra tónlist er ekkert annað en hluti af kántrý- iðnaðinum í dag. Að vísu sækja Pat og Barbara áhrif sín jafnt í kántrýið sem og aðra tónlist, t.d. ryþmablús og popp í sinni víð- ustu mynd. En samsetningin er með sérstökum blæ því þau leika á rafgítara, hljómgítara, fiðlu, munnhörpu, mandólín og bassa við hljómfall trommumaskínu. Munnharpan og gítararnir eru aðaleinkennishljóðfærin og bera tónlistina uppi. Þegar þau koma fram á hljómleikum notast þau við lítið kröftugt stereo útvarps- og segulbandstæki af bestu gerð. Þetta tæki sér þeim fyrir bak- grunnsspilverkinu. Þessu ágæta tæki er stillt þannig upp að það blasir við áhorfendunum og ei því þriðji meðlimurinn þótt ekki renni blóð um æðamar enda eru slík tæki ekki búin blóðrása- kerfi. Nafn þessa sérstæða flokks er afbökun á heiti borgarinnar Timbuktu í Afríkuríkinu Malí en þetta borgarheiti er gjaman not- að í bandarísku máli sem samnefnari fyrir afskekktan út- kjálkastað. En þar sem meðlimir sveitarinnar em þrír talsins, þ.e. þegar tækið góða er talið með, þá þótti sjálfsagt að kalla hana Timbukthree í stað Timbuktwo. Fyrir einu ári vom McDonald hjónin óþekkt fyrir utan Austin. Þegar MTV myndrokkssjón- varpið gerði úttekt á tónlist hljómsveita frá Texas komust þau í sviðsljósið. IRS útgáfan gerði samning við þau og á rúm- lega einu ári hefur vegsemd Timbuk 3 vaxið svo um munar. Tvö laga þeirra vom notuð i myndinni The Texas Chainshaw Massacre 2, auk þess sem þau Tiníbuk 3 hjónin hafa ferðast um Banda- ríkin og Bretland og hvarvetna hlotið góðar móttökur og frá- bæra dóma. Fyrsta breiðskífa þeirra, Greetings From Timbuk 3, var nýverið tilnefnd til Grammy verðlauna sem besta frumsmíð ársins 1986. Aukheldur hlutu þau tilnefningu sem bestu nýliðar ársins. Framtíðin virðist vera björt en þau Pat og Barbara em ekki á þeim buxunum að halda starf- semi Timbuk 3 áfram til eilífð-. arnóns. Þau segja: „Framtíð Timbuk 3 er undir því komin hvert tilraunaþorsti okkar leiðir okkur. Við ætlum ekki að vera Pat og Barbara með kassettu- tækið að eilífu. Þessa stundina hentar nafnið Timbuk 3 okkur einkar vel. En eftir eitt ár getur vel farið svo að við verðum búin að finna nýtt nafh og farin að leika Louisiana Hip Hop dans- tónlist, - hver veit? Og hver fæst um það? Aðalmálið er að fólk hafi gaman af tónlistinni." Nýfundinn Ijóðabálkur eftir Jim Morrison veldur deilum Allt frá því að Jim Morrison, söngvari hljómsveitarinnar Doors, lést með dularfullum hætti í París 3. júli 1971 hefur áhuginn á tónlist og ljóðlist hans farið vaxandi með hverju árinu. Þessa dagana ganga ólöglega fjölfaldaðar snældur með hljómleikaupptökum Doors kaup- um og sölum vestur í Bandaríkjun- um og er jafnvel búist við að eftirlifandi félagar Morrisons í Doors geri alvöru úr því að gefa eitthvað af þessu efni út á hljóm- plötu innan tíðar. Aðalfjaðrafokið þar vestra er hins vegar vegna þess að fyrir skömmu voru ýmis gögn úr dánar- búi Morrisons seld fyrir u.þ.b. 8 Jim Morrison, Hjónin Barbara og Pat McDonald sem skipa Timbuk 3. milljónir íslenskra króna. Þetta eru handrit að ljóðum, textum, lög- um og öðrum sköpunarverkum Jim Morrisons sem ekki hafa komið fyrir almenningssjónir eða eyru áður. Allt hafði þetta verið geymt í stórum stálkassa sem merktur var „127 Fascination". I kassanum reyndust vera hátt í 200 blaðsíður af ýmiss konar ritverkum og minnispunktum skrifaðir með rit- hönd Jim Morrison með blýanti á gulan skrifpappír. Þar á meðal var hluti mikils ljóðaflokks sem hann var að fást við að semja síðustu mánuðina sem hann lifði og bjó í París. Einnig nokkur lög sem aldr- ei voru hljóðrituð, skráð á nótna- blöð, lítil minnisbók sem ber titilinn The Square Of Life og handrit fyrstu ljóðabókar Morri- sons sem gefin var út, The Lords and the New Creatures. Það sem er líklega merkilegast af þessu ný- fundna efni er söguljóð í óperustíl sem kallast An American Night og spannar 43 blaðsíður. Meginhluti þessara verka er frá árinu 1971 þegar Morrison bjó ásamt eigin- konu sinni, Pamelu Courson, í París. Þegar Morrison lést í júlí 1971, trúlega vegna ofneyslu eitur- lyfja þótt dánarorsökin sé skráð hjartaáfall í opinberum skjölum, fluttist Pamela aftur til Bandaríkj- anna. Hún flutti handrit og minnisblöð Jims með sér í stórum stálkassa en þegar hún lést árið 1974 vegna ofneyslu heróíns, varð kassinn eftir í vörslu þáverandi kærasta hennar. Nýlega seldi þessi fyrrum kærasti Pamelu Courson kassann með öllu innihaldinu fyrir 8 milljónir og nú er deilt um það hvort hann hafi í raun réttri átt kassann með innihaldinu eða hvort dánarbú Morrisons og konu hans, Courson, hafi talist lögmætur eig- andi munanna. Fjölskyldur þeirra tveggja gera tilkall til þessara handrita, sem og gömlu félagarnir í Doors, sem segjast eiga höfundar- réttinn á öllum hugverkum hins fallna félaga síns. Gamlir Doors-aðdáendur bíða þess nú að útgáfufyrírtækið Ran- dom House gefi þessi verk út á bók en af því getur víst ekki orðið fyrr en búið er að útkljá hver teljist lögmætur eigandi þessara dýrmætu hugverka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.