Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1987, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1987, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 1987. 45 Ég hef tekið eftir því nokkur undanfarin ár að íslendingar verða margir hverjir veikir um þetta leyti, ekki þó líkamlega heldur andlega og kemur þetta fram í mörgum og mismunandi myndum og fer eftir því hvernig skammdegið leggst í fólk. Til dæmis vann einu sinni með mér kona sem mölvaði bolla í bræði sinni yfir því að það hafði einhver drukkuð allt kaffið sem til var í húsinu og í staðinn fyrir að hella upp á henti hún boll- anum eins fast og hún gat í vegginn og bölvaði síðan þessum helvítis andskotans kaffiþömburum sem væru ævinlega búnir með allt kaff- ið þegar hún ætlaði að fá sér sopa. Þessi viðbrögð eru dæmigerð fyr- ir skammdegissjúklingana, þeir reiðast oft af litlu tilefni og láta reiði sína bitna á saklausum. Skömmu eftir áramót fór að bera talsvert á þessum sjúkdómi og þótt ég ætlist ekki til þess að hann verði gerður að kosningamáli eins og farið er fram á varðandi annan sjúkdóm, gott ef ekki er lagt til að skipaður verði smokkamálaráð- herra, held ég að menn ættu að íhuga veikina annaðhvort hver í sínu homi eða margir saman þvi að hann skýrir oft undarlega hegð- un fólks og getur komið í veg fyrir misskilning. Það er þó dálítið slæmt að oft og tíðum getur reynst erfitt að greina hvort sjúkdómurinn er á byrjunar- stigi eða kominn eitthvað lengra og er nýársleikrit sjónvarpsins gott dæmi um það. Eins og allir vita sem lesa blöðin þótti þjóðinni óþægilegt að horfa á tvo leikara þykjast vera að búa til barn uppi á eldhúsborði, margir klikkuðust og skrifuðu blöðunum um þessa reynslu sína, sumir höfðu tekið þetta upp á band og horft á það aftur og aftur og orðið því reið- ari sem þeir horfðu oftar á það og allir báðu sjónvarpið að hlífa sér við slíkum ófögnuði í framtíðinni því að þeir væru búnir að fá nóg og meira en nóg þeir sem áttu vídíótæki. Allt er þetta svo sem gott og blessað enda dæmigerð einkenni skammdegisveikinnar sem veldur mönnurn hrolli af minnsta tilefni en það sem mér finnst dálítið skrý- Háaloft Benédikt Axelsson tið er að þeir sem hneykslast á tilbúningi bama skuli ekki hafa neitt við beinu útsendinguna af hrútspungunum að athuga en sýn- ing á þessum dónaskap fór fram ekki alls fyrir löngu í sjónvarpi allra landsmanna. Finnst mönnum virkilega ekkert athugavert við það að þessi dóna- skapur skuli vera sýndur og þar að auki étinn frammi fyrir alþjóð í beinni útsendingu? Mér finnst að það hefði mátt veita fólkinu, sem smjattaði svo rækilega á áður- nefndu líffæri fyrir framan sjón- varpsvélamar, dálitla áminningu og skrifa kannski eins og eitt skammarbréf um það í blöðin. Kosningar Ég gæti svo sem nefnt mörg fleiri dæmi um títtnefndan sjúkdóm og væri kannski ástæða til svo að menn rugluðu honum ekki saman við kosningamar og allt sem þeim fylgir en upp á síðkastið eru svo- kallaðir pólitíkusar famir að skjálfa og myndu þessar hræringar í þeim sjálfsagt mælast á Richter ef þeir væru í sambandi við hann. Ékki alls fyrir löngu varð til að mynda mikill Suðurlandsskjálfti sem átti upptök sín í bankastjóra í Vestmannaeyjum og olli tals- verðu tjóni í ónefhdum alþingis- manni. Skömmu seinna rak ráðherra við Hverfisgötuna mann fyrir norðan vegna þess að hann vildi endilega kenna tomæmum bömum að lesa og skrifa en eins og þeir vita sem stjórna þessum málum og hinir sem hafa vit á þeim er ekki nauðsynlegt að vera vel að sér í þessum greinum á að minnsta kosti einum vinnu- stað svo ég viti til. Og nú bíðum við, háttvirtir kjós- endur, eftir kosningaloforðunum sem verið er að semja í þríriti og kosta okkur ekki neitt frekar en kádiljálkar og oldsmóbílar eigend- ur sína. Stundum eru kosningaloforðin umdeild og menn tala um bruðl og klíkuskap og að menn séu að hygla sínu kjördæmi. Þetta var sagt um Borgarfjarðar- brúna á sínum tíma og fundu menn henni allt til foráttu, hún var of löng, of breið, of dýr og lá upp í Borgames. í dag eru menn hins vegar afskap- lega ánægðir með þessa brú og einnig hvert hún liggur. Að minnsta kosti þekki ég engan sem treystir sér til að aka yfir Borg- arfjörðinn brúarlausan. Kveðja Ben. Ax. Finnurðu átta breytingar? 28 Þessar tvær myndir sýnast í flj ótu bragði eins. En á neðri myndinni hafa fallið burt hlutar af myndinni eða þeir breyst, alls á átta stöðum. Það er misjafnlega erfitt að finna þessar breytingar en ef fjölskyldan sameinast um að leysa þetta trúum við því að allt komi þetta að lokum. Merkið með hring eða krossi þar sem breytingarnar eru og sendið okkur neðri myndina. Skilafrestur er tíu dagar. Að þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum og veitum þrenn verðlaun: Supertech ferðaútvarp frá hljóm- tækj aversluninni Steríó (verðmæti kr. 2.360,-), Supertech vasadiskó frá Steríó (verðmæti kr. 1.690,-) og Supertech vasaútvarp frá Steríó (verðmæti kr. 890,-). I þriðj a helgarblaði héðan í frá birtast nöfn hinna heppnu en ný þraut kemur í næsta helgarblaði. Góða skemmtun! Merkið umslagið: „Átta breytingar- 28, c/o DV, pósthólf 5380,125 Reykjavík. Verðlaunahafar reyndust vera: Valur Birgisson, Reyni- grund 44, 300 Akranesi (ferðaútvarp, kr. 2.360,-), Gunnar Skúlason, Vesturbergi 146, 111 Reykjavík (vasadiskó, kr. 1.690,-), Sigríður T. Óskarsdóttir, Háaleitisbraut 32, 108 Reykjavík (vasaútvarp, kr. 890,-). Vinningarnir verða sendir heim. DF.SWAEN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.