Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1987, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1987, Síða 7
LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 1987. 49 Kathleen Turner í hlutverki Peggy Sue. Fyrsta stóra hlutverkið I Body Heat. fyrstu myndinni, Body Heat, fyrir aðeins fimm árum. Þá var hún í hlutverki heimsku ljóskunnar. Næst lék hún með Michael Dou- glas í Romancing the Stone. Douglas leikstýrði einnig þeirri mynd. Honum leist alls ekki á þessa ungu leikkonu þegar fundum þeirra bar fyrst saman. Þá var hæst í honum að neita henni um hlutverk í myndinni. „Ég gerði mér samt fljótlega ljóst að það sem háði henni var feimni og óöryggi," er haft eftir Douglas. „Það var ekki fyrr en ég hitti hana öðru sinni að ég sá að þetta var hlutverk fyrir hana.“ Douglas réð hana síðan aftur til að leika í fram- haldi myndarinnar. Áður en það var lék hún undir leikstjórn Ken Russell í myndinni Crimes and Passion. Þar var hún í hlutverki konu sem lifði tvöföldu lífi. Hún var hóra milli þess sem hún sinnti virðingarverðari við- skiptum. í nýjustu myndinni leikur hún þjóðsagnapersónu sem er þeim hæfileika búin að geta skroppið aftur í tímann og breytt eigin sögu. Þegar Tumer er spurð að því hvort hún vildi vera í sömu aðstöðu þá neitar hún því. „Það er eiginlega ógnvekjandi að hugsa til þess að geta breytt fortíðinni því engin leið er að gera sér grein fyrir hvaða áhrif það hefði á líðandi stund. Auk þess sé ég ekki eftir neinu sem ég hef gert.“ Það gilti einu fyrir Turner þótt hún væri önnur á óskalista leik- stjórans. „Þetta er stórkostlegt hlutverk. Peggy Sue á sér samsvör- um í svo mörgum konum," segir Tumer. „Söguna á enda breytir hún rétt eins og ætlast var til af konum á hennar tíma. Hún lauk menntaskólanámi, varð ólétt og gifti sig. Þegar maðurinn hennar yfirgefur hana fertuga fmnur hún að hún er á engan hátt undirbúin til að standa á eigin fótum. Hana vantar alla starfsþjálfun og allan vilja til að gera eitthvað í málinu.“ í sögunni segir frá því að Peggy Sue hittir skólafélaga sína 25 árum eftir að námi lauk. Þar líður yfir hana og hún vaknar upp á seinasta ári sínu í skólanum og getur nú breytt ferli sínum. í þessum hluta myndarinnar þarf Tumer að leika Peggy Sue eins og hún var innan við tvítugt. „Það olli mér engum vandræðum," segir Turner. „Þegar ég var 18 ára lék ég 13 ára stúlkur." Aldurinn skiptir ekki máli Turner er 32 ára og þarf einnig að leika Peggy Sue þegar hún er 45 ára. Hún verður því að leggja sig alla fram ef þessi aldursmunur á ekki að verða of áberandi. „Fólk verður bara að sætta sig við að þetta er hægt. Það sem fólk hefur mestar áhyggjur af er hvort ég hafi ekki órðið að fara í sérstakan fitunarkúr til að geta leikið hina fullorðnu Peggy Sue. Ég þurfti þess ekki,“ segir Turner ákveðin. „Það eina sem breytist er klæðaburður- inn og farðinn." Það voru einmitt þessi föt sem Turner kunni samt verst við. „Ég fer aldrei í þetta aftur. Sokkamir, kjólarnir og lífstykkin með járn- spennum innan í voru bæði ljót og óþægileg." Turner kunni aftur á móti betur við tónlistina. „Við syngjum í myndinni lög sem ekki hafa heyrst lengi. Mörg þeirra eru stórkost- leg.“ Á menntaskólaárum sínum átti Tumer heima í Lundúnum þar sem faðir hennar starfaði við sendiráð Bandaríkjanna. I hlutverki Peggy Sue er hún hins vegar nær því sem raunin hefði orðið ef hún hefði alist upp í Bandaríkjunum. Hún segist samt alls ekki sjá eftir árunum í Lundúnum. „Það sem ég kynntist þar hefur alla tíð síðan reynst mér mikilvægt." Þegar hún flutti heim til Banda- ríkjanna með foreldrum sínum hóf hún nám við háskólann í Missouri. Þar byrjaði hún að fást við leik- list. Að loknu námi fór hún til New York, réð sér umboðsmann og fékk hlutverk í sápuóperu. Hún vann þó skamman tíma fyrir sjónvarpið því fljótlega bauðst henni að leika í Body Heat. Siðan þá hefur hún aldrei þurft að líta til baka eins og Peggy Sue gerir í nýjustu mynd- inni. Snarað/GK Matsfofan Ríta lokuð í kvöld vegna einkasamkvæmis. FÓSTRUR Fóstrur óskast til starfa á dagvistarheimili Hafnarfjarðar. Fóstru i heila stöðu á dagheimilið Víðivelli. Fóstrur eftir hádegi á leikskól- ana Arnarberg, Álfaberg, Norðurberg og Smáralund. Upplýsingar um störfin veita forstöðumenn viðkomandi heimila og dagvistarfull- trúi í sima 53444 á Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar. Félagsmálastjóri Hafnarfjarðar. I/ •?/ *3/ •?/ *J/ •?/•?/ *S/ •?/ *S/ *S/ *S/ *s/ •5/ S/_*J/ *J/ «9/.4/ í* /É* /fi* /fi* /fi» /*• /fi* /fi* /fi* /fi* /fi* /fi* /fi» /fi* /fi* /fi* /fi* /fi* /fi» /fi FORDHÚSINU Teg. Arg. Km Verð M. Benz 230 TE station 1981 25.000 780.000 M. Benz 280 SE 1983 66.000 1.290.000 Mercury Cougar 1985 26.000 890.000 Blazerdísil 1982 57.000 1.300.000 Volvo 244L 1979 97.000 250.000 Ford Escort A/T 1983 67.000 330.000 Subaru st. 4x4 1984 72.000 430.000 Subaru Fox 1983 68.000 295.000 Mazda 323 1985 27.000 350.000 Ford Escort 1986 15.000 410.000 Ford Sierra 4x4 1985 15.000 1.100.000 Fæst á 3 ára skuldabréfi. Skrifstm: Auöur Haraldsdóttir. Sölumenn: Jónas Ásgeirsson. Þórarinn Finnbogason. Skúli H. Gislason. Frkvstj.: Finnbogi Ásgeirsson. BÍLAKJALLARINN Fordhúsinu v/hlið Hagkaups. Símar 685366 og 84370. . . *s /fi*/É*/ S/Jl/ /fi* ^ Besta húsið í New York Tvö ár eru liðin síðan hún giftist fasteignasalanum Jay Weiss. Þau búa í New York í „besta húsinu í borginni", eins og Turner orðar það. Með því fylgir garður í jap- önskum stíl. Senn hvað líður á fyrsti erfinginn að fæðast. „Ég get ekki séð nokkra ástæðu til að láta bameignir bíða,“ segir Turner. Vitað er að Turner hefur misst fóstur en um það vill hún ekki tala. En á meðan beðið er eftir fyrsta barninu ætlar Turner ekki að sitja auðum höndum. Næst á dagskrá er að leika á sviði. Þar hefur hún tekið að sér að leika í tveim verk- um. Þá er þegar búið að ákveða tvær næstu kvikmyndir. Turner hefur sjálf keypt réttinn til að kvikmynda sögu eftir Robert Stone. Nefnist hún A Flag for Sunrise og er um nunnu í Mið-Ameríku. „Ég hef aldrei leikið hlutverk sem líkist þessu," segir hún og virðist kvíðin. „En ég ætla að eftirláta fólki að geta sér til um hvernig ég tek mig út.“ Þá eru líkur til að enn verði gerð mynd í framhaldi af Romancing the Stone. Önnur á óskalistanum Turner viðurkennir fúslega að á stundum hafi henni gengið illa sem leikkonu. T.d. stóð það ekki til í upphafi að hún léki Peggy Sue. Debra Winger var ráðin í hlutverk- ið en hún varð að hætta eftir að hún varð fyrir slysi. Með Michael Douglas i Romancing the Stone. ^ihiEm hágæða framköllunarvélar LÍTMYNDIR Á KLUKKUSTUND Við bjóðum aðeins það besta $ Hágæðalitmyndir í tveim stærðum: 9X13og 10X15 Einnig stækkanir 13X18 OPIÐ KL. 8.30 TIL 18.00 Framköllun á klukku- stund Hamatör Ljósmyndavöruverslun Laugavegi82 - Sími 12630

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.