Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1987, Síða 9
LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 1987.
51
Ekki svo galinn
Breytt viðhorf til Vincent van Gogh
Málverk Vincent van Gogh £rá
síðustu mánuðunum sem hann lifði
hafa undanfarið vakið mikla at-
hygli á sýningu í Metropolitan
Museum of Art í New York.
Á sama tíma bíða listaverkasafn-
arar eftir að frægt verk eftir van
Gogh verði boðið upp í Lundúnum
og er búist við að myndin fari fyrir
mikið fé.
Sýningin í Metropolitan er í
beinu fram haldi af annarri sýn-
ingu á myndum van Goghs sem
haldin var í þessu sama safni á
árinu 1984. Þá voru eingöngu sýnd-
ar myndir írá hinu svokallaða
„gula tímabili" á ferli meistarans.
Seinasta árið sem van Gogh lifði
var hann fyrst á geðveikrahæli í
Suður-Frakklandi. Þaðan fórhann
til Norður-Frakklands og framdi
þar sjálfsmorð sumarið 1890. Bróðir
hans, Ted, sagði þá að „Vincent
hefði fengið hvíldina sem hann
fann aldrei í lífinu."
Brjálaði málarinn
Hugarangur van Goghs þessa
síðustu mánuði sem hann lifði hef-
ur mikið verið rannsakað og orðið
rithöfundum tilefni til skáldsagna-
gerðar. Þá hafa verið gerðar
kvikmyndir og heimildamyndir um
ævilok málarans. -
Á sýningunni í Metropolitan eru
margar frægustu myndir van
Goghs frá þessu skeiði. Það er Ron-
ald Pickvance sem setur sýninguna
upp og segist stefna að því að eyða
„goðsögninni um brjálaða lista-
manninn" sem sprottið hefur af
myndum van Goghs. Þess í stað
leggur Pickvance áherslu á að van
Gogh hafi verið vinnufær þrátt fyr-
ir sjúkdóminn. Sjúkdómurinn hafi
hins vegar á engan hátt einkennt
myndir listamannsins.
„Ég veit ekki hvað amaði að van
Gogh,“ skrifar Pickvance í sýn-
ingaskrána. „Það skiptir litlu máli
því ég fæ ekki séð að þessi sjúk-
dómur hafi haft teljandi áhrif á
myndirnar. Myndirnar eru ekki
vitnisburður um geðveiki hans. Ég
tel að hann hafi verið fullkomlega
með sjálfum sér þegar hann málaði
þessar myndir.“
Vissi hvað hann var að gera
Pickvance styður kenningu sína
með tilvísunum í bréf sem gengu á
milli van Gogh-bræðranna og einn-
ig til annarra listamanna þar sem
van Gogh skýrði í smáatriðum til-
ganginn með verkum sínum og þar
á meðal hvernig hann notaði liti.
Pickvance segist hafa lagt hug-
myndir listamannsins sjálfs til
grundvallar þegar hann valdi
myndimar á sýninguna.
Pickvans segir að listamaðurinn
hafi undir lokin verið farinn að
hallast að því að myndir ætti að
setja saman úr afmörkuðum flöt-
um. Á sýningunni eru tólf myndir
af ólífutrjám sem listamaðurinn
sagði sjálfur í bréfi að væru til-
raunir með að stilla upp hlut í
forgrunninum sem andstæðu við
himininn. Á sýningunni eru einnig
margar myndir af sedrustrjám í
garði hælisins þar sem hann dvaldi.
Síðustu 70 dagana sem van Gogh
lifði gerði hann tilraunir með tvö-
falda ferhyrninga í myndum sínum
og eru flestar þeirra mynda á sýn-
ingunni. Frægust þeirra er af
krákum yfir hveitiakri. Mikið hef-
ur verið spáð í þessa mynd og
krákurnar á henni eru af mörgum
taldar eins konar aðskotahlutir
sem sem beri geðveiki listamanns-
ins vitni.
Pickvance er á annarri skoðun.
„Þessi mynd hefur verið skoðuð
sem eins konar helgimynd og að á
henni birtist eins konar dómsdagur
listamannsins. Hún á að vera tákn-
mynd fyrir sálarástand van Goghs
áður en hann framdi sjálfsmorðið.
Þá hefur verið gengið út frá því sem
visu að þetta væri síðsta mynd
hans. Það er alls ekki víst,“ segir
Pickvance.
Fleiri á sömu skoðun
Listfræðingurinn Mark Roskill
er á sömu skoðun og Pickvance.
Hann heldur því fram að sjálfs-
myndir van Goghs beri ekki
geðveiki vitni heldur sýni þær
þvert á móti að listamaðurinn hafi
vitað fullvel hvað hann var að gera.
Roskill hefur einnig verið þeirrar
skoðunar lengi að síðustu myndir
van Goghs einkennist ekki af geð-
veilu.
Sýningunni í Metropolitan hefur
verið vel tekið af gagnrýnendum
og hún sögð áhrifamikil og sterk.
Hún hefur og verið vel sótt því 250
þúsund manns hafa séð hana á
þeim þrem mánuðum sem hún hef-
ur staðið.
Ein af myndum van Goghs, Sól-
blómin, verður seld á uppboði hjá
Christies í Lundúnum í mars.
Myndin er í einkaeigu en hefur
lengi verið í láni hjá National Gall-
ery í Lundúnum. Talið er að fyrir
myndina fáist ekki undir 400 millj-
ónum króna. Þetta þykir mörgum
kaldhæðnislegt því sjálfum tókst
van Gogh aðeins að selja eina
mynd um dagana og fékk lítið verð
fyrir.
Snarað/GK
James Roundel hjá Christies i Lundúnum vonast til að selja „Sólblóm" Vincents van Gogh
fyrir ekki minna en 400 milljónir króna.
LAUSAR STÖÐUR
Tvær stöður fulltrúa í fjármálaráðuneytinu eru lausar
til umsóknar. Viðskipta- og/eða hagfræðimenntun
áskilin.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um fyrri störf, sendist
fjármálaráðuneytinu fyrir 10. febrúar 1987.
15. janúar 1987.
Fjármálaráðuneytið.
Skinfaxi - ritstjóri
Ungmennafélag íslands óskar eftir að ráða ritstjóra
fyrir blað hreyfingarinnar, Skinfaxa. Umsækjendur
þurfa að hafa gott vald á íslensku máli og hafa áhuga
á starfi og stefnu ungmennafélagshreyfingarinnar.
Nánari upplýsingar fást hjá stjórnarmönnum UMFÍ
og á skrifstofunni að Öldugötu 14, Reykjavík, en þar
fá umsækjendur umsóknareyðublöð. Umsóknarfrestur
er til 10. febrúar 1987.
Ungmennafélag Islands.
Frá Borgarskipulagi
Kynning í Byggingaþjónustunni að Hallveigarstíg 1 á
tillögum að deiliskipulagi tveggja reita í Þingholtum.
1. Reitur sem afmarkast af Bergstaðastræti, Spítala-
stíg, Óðinsgötu og Bjargarstíg.
2. Reitur sem afmarkast af Bankastræti, Þingholts-
stræti, Amtmannsstíg og Skólastræti.
Fulltrúar höfunda og Borgarskipulags verða á staðn-
um til að veita upplýsingar á fimmtudögum kl.
15.00-18.00. Athugasemdum eða ábendingum skal
koma til Borgarskipulags, Borgartúni 3, fyrir 20. febrú-
ar nk.
TÖGGURHR
SAAB UMBOÐIÐ
Bildshöfða 16 - Simar 681530 og 83104
Seljum í dag
Bronco árg. '74, mjög góður, 6 cyl..
I beinskiptur, m/vökvastýri, sportfelg-
I ur, ný dekk, kassettutæki.
VW Golf GL árg. '84. 3ja dyra, gull-
brons, beinskiptur, 4 gira, ekinn 24
þús. km. Mjög góður bill.
Opið laugardag kl. 12-16. Ath. breyttan opn-
unartíma.
INNANHÚSS-
ARKITEKTÚR
í frítíma yðar með bréfaskriftum
Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til
þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota.
Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti,
lýsingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll,
blóm, skipulagning, nýtisku eldhús, gólfiagnir, vegg-
klæðningar, vefnaðarvara, þar tilheyrir gólfteppi, hús-
gagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o. fl.
Ég óska án skuldbindingar að fá sendan bækling yðar um
INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ.
Heimilisfang.....................................
Akademisk Brevskole
Jyllandsvej 15 • Postboks234
2000 Krederiksberg • Kobenhavn • Danmark DV 31/01 1987