Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1987, Side 6
6
FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1987.
Atvinnumál
DV
Enn fiskverðshækkun
á Bandaríkjamarkaði
- ýsuflök hækkuðu um 20 sent pundið og blokk um 10 sent
„Fiskverð hækkaði enn einu sinni
hér i byrjun febrúar og hefur fiskverð
á Bandaríkjamarkaði aldrei verið
hærra. Það er erfitt að tala um þetta
í prósentum vegna þess að hækkunin
er mismunandi eftir tegundum. Ætli
það mætti ekki nefha 6% til 8% hækk-
un. Sem dæmi má nefha að þorskblokk
hækkaði um 10 sent pundið, fór úr
1.50 dollurum upp í 1.60 dollara pund-
ið. En það sem skiptir þó enn meira
máli fyrir okkur er hækkunin á flök-
um. Sem dæmi má nefna að ýsuflök
hækkuðu úr 2.30 dollurum pundið upp
í 2.50 dollara," sagði Magnús Gústafs-
son, framkvæmdastjóri Coldwather
dótturfyrirtækis SH í Bandaríkjunum.
í samtali við DV í gær.
Magnús var spurður hvort sú mikla
fiskverðshækkun sem orðið hefur á
Bandaríkjamarkaði síðustu misserin
>töí ekki til þess að fólk minnkaði við
sig fiskneyslu.
„Fiskur hefur verið ódýr fæða en
hann er það ekki lengur og keppir þvi
við kjúklingakjöt og nautakjöt hér á
markaði. Hann rýmar hins vegar lítið
við matreiðslu, öfugt við kjötið, þann-
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára ogeldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn-
stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru
verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Nafnvextir eru 15,5% og ársávöxtun 15,5%.
Sérbók. Við innlegg eru nafnvextir 10%
en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði
án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á óhreyfðu
innleggi er 13,64% á fyrsta ári. Hvert innlegg
er meðhöndlað sérstaklega. Áunnið vaxtastig
helst óbreytt óháð úttektum en vaxtahækkun
seinkar um þrjá mánuði ef innleggið er snert.
Á þriggja mánaða fresti er gerður saman-
burður við ávöxtun þriggja mánaða verð-
tryggðs reiknings, nú með 1% vöxtum, og sú
tala sem hærri reynist færð á höfuðstól. Út-
tekt vaxta fyrir undangengin tvö vaxtatímabil
hefur ekki áhrif á vaxtahækkanir.
Búnaðarbankinn: Gullbók er óbundin
með 19,25% nafnvöxtum og 20,2% ársávöxtun
á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun verð-
tryggðs reiknings með 3,5% vöxtum reynist
hún betri. Af hverri úttekt dragast 0,7% í
svonefnda vaxtaleiðréttingu. Vextir færast
misserislega.
Metbók er með hvert innlegg bundið í 18
mánuði á 19,75% nafnvöxtum og 20,7% árs-
ávöxtun, eða ávöxtun verðtryggðs reiknings
með 3,5% vöxtum reynist hún betri. Að 18
mánuðum liðnum er hvert innlegg laust í
mánuð en binst síðan að nýju í 12 mánuði í
senn. Vextir eru færðir misserislega og eru
lausir til úttektar næstu sex mánuði eftir
hveija vaxtafærslu en bindast síðan eins og
höfuðstóllinn
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningur er
óverðtryggður reikningur og ber 16% vexti
með 16,6% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu.
Verðtryggð bónuskjör eru 2,5%. Á sex mán-
aða fresti er borin saman verðtryggð og
óverðtryggð ávöxtun og gildir sú sem hærri
er. Heimilt er að taka út tvisvar á hverju sex
mánaða tímabili. Hreyfðar innstæður innan
mánaðarins bera sérstaka vexti, nú 0,75% á
mánuði, og verðbætur reiknast síðasta dag
sama mánaðar af lægstu innstæðu. Vextir
færast misserislega á höfuðstól.
18 mánaða bundinn reikningurer með
18% ársvöxtum.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
19,25% nafnvöxtum og 20,2% ársávöxtun. Af
óhreyfðum hluta innstæðu frá síðustu ára-
mótum eða stofndegi reiknings síðar greiðast
20,9% nafnvextir eftir 16 mánuði og 21,5%
eftir 24 mánuði. Á þriggja mánaða fresti er
gerður samanburður á ávöxtun 6 mánaða
verðtryggðra reikninga og gildir hærri ávöxt-
unin. Af hverri úttekt dragast 0,7% í svo-
nefnda vaxtaleiðréttingu. Vextir færast
misserislega á höfuðstól. Vextina má taka út
án vaxtaleiðréttingargjalds næstu tvö vaxta-
tímabil á eftir.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrstu 3 mánuðina 11%, eftir 3 mánuði 15,5%,
eftir 6 mánuði 19%, eftir 24 mánuði 20%. Sé
ávöxtun betri á 3ja eða 6 mánaða verðtryggð-
um reikningum gildir hún um hávaxtareikn-
Fiskverö í Bandaríkjunum hefur aldrei verið hærra en nú. Myndin var tekin er
þeim gula var landað í Reykjavikurhöfn í gær. DV-mynd GVA
inginn. Vextir færast á höfuðstól síðasta dag
hvers árs.
Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 19,5%
nafnvexti og 20,4% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu. Ef ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs
reiknings reynist betri gildir hún. Vextir fær-
ast misserislega. Af útttekinni upphæð
reiknast 0,75% úttektargjald, nema af upp-
færðum vöxtum síðustu 12 mánaða.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 16,64% (ársávöxtun 17,24%),
eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reikn-
ings, sem reiknuð er eftir sérstökum reglum,
sé hún betri. Samanburður er gerður mánað-
arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út
af reikningnum gilda almennir sparisjóðs-
vextir, 9%, þann mánuð. Heimilt er að taka
út vexti og vaxtaábót næsta árs á undan án
þess að ábót úttektarmánaðar glatist. Ef ekki
er tekið út af reikningnum í 18-36 mánuði
tekur hann á sig kjör sérstaks lotuspamaðar
með hærri ábót. Óverðtryggð ársávöxtun
kemst þá í 17,79-19,49%, samkvæmt gildandi
vöxtum.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur.
Meginreglan er að innistæða, sem er óhreyfð
í heilan ársfjórðung, nýtur kjara 6 mánaða
bundins óverðtryggs reiknings, nú með 17.5%
nafnvöxtum og 18,7% ársávöxtun, eða 6 mán-
aða verðtryggðs reiknings, nú með 2%
vöxtum, eftir því hvor gefur hærri ávöxtun
fyrir þann ársfjórðung.
Vextir og verðbætur færast á höfuðstól í lok
hvers ársfjórðungs, hafi reikningur notið
þessara „kaskókjara“. Reikningur ber kaskó-
kjör, þótt teknir séu út vextir og verðbætur,
sem færðar hafa verið á undangengnu og yfir-
standandi ári. Úttektir umfram það breyta
kjörunum sem hér segir:
Við eina úttekt í fjórðungi reiknast almenn-
ir sparisjóðsvextir af úttekinni íjárhæð, en
kaskókjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttektir
fær öll innistæða reikningsins sparisjóðs-
bókarvexti.
Sé reikningur stofnaður fyrsta eða annan
virkan dag ársQórðungs, fær innistæðan hlut-
fallslegar verðbætur m.v. dagafjölda í inn-
leggsmánuði, en ber síðan kaskókjör út
fjórðunginn. Reikningur, sem stofnaður er
síðar fær til bráðabirgða almenna sparisjóðs-
bókavexti en getur áunnið sér kaskókjör frá
stofndegi að uppfylltuin skilyrðum.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3,5% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 17,5% með
18,23% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp-
vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt
á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn-
an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 9%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði,
óverðtryggða en á 18,25% nafnvöxtum. Miss-
erislega er ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs
reiknings, nú með 3,5% vöxtum, borin saman
við óverðtryggða ávöxtun, og ræður sú sem
meira gefur. Vextir eru færðir síðasta dag
hvers árs.
Topp-bók nokkurra sparisjóða er með inn-
stæðu bundna í 18 mánuði óverðtryggða á
18% nafnvöxtum eða á kjörum 6 mánaða
verðtryggðs reiknings, nú með 3,5% vöxtum.
Vextir færast á höfuðstól misserislega og eru
lausir til útborgunar á næsta vaxtatímabili á
eftir. Sparisjóðimir í Keflavík, Hafnarfirði,
Kópavogi, Borgarnesi, á Siglufirði, Ólafsfirði,
Dalvík, Akureyri, Neskaupstað, og Sparisjóð-
ur Reykjavíkur, bjóða þessa reikninga.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða
óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Algengustu vextir á óverðtryggðum skulda-
bréfum vegna fasteignaviðskipta eru 20%.
Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er
almennt 12 16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins getur numið 2.461.000 krónum á 1. árs-
fjórðungi 1987, hafi viðkomandi ekki átt íbúð
á síðustu þrem árum, annars 1.723.000 krón-
um. Út á eldra húsnæði getur lán numið
1.723.000 krónum, hafi viðkomandi ekki átt
íbúð á sl. þrem árum, annars 1.206.000 krón-
um.
Undantekningar frá þriggja ára reglunni
eru hugsanlegar vegna sérstakra aðstæðna.
Lánin eru til allt að 40 ára og verðtryggð.
Vextir eru 3,5%. Fyrstu tvö árin greiðast
aðeins verðbætur og vextir, síðan heQast af-
borganir af lánunum jafnframt. Gjalddagar
eru fjórir á ári.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru mjög mishá eftir sjóðum, starfs-
tíma og stigum. Lánin eru verðtryggö og með
5-6,5% vöxtum. Lánstími er 15 42 ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað-
ir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir
reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári
verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður
þá hærri en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma-
bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því
10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu
dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún
getur jafnvel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónumar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft-
ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravisitala í febrúar 1987 er 1594
stig en var 1565 stig í janúar. Miðað er við
grunninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 1. ársijórðungi 1987
er 293 stig á grunninum 100 frá 1983.
Húsaleiguvisitala hœkkaði um 7,5% 1.
janúar. Þessi vísitala mælir aðeins hækkun
húsaleigu þar sem við hana er miðað sérstak-
ig að hann er enn ódýrari miðað við
magn.Það er alveg ljóst að samkeppni
fiskbitastaðanna við hamborgarastað-
ina er mikil. Læknar hvetja fólk til
að auka fiskneyslu og það styrkir okk-
ur í samkeppninni. Við verðum bara
að sjá hvort verðið helst og vona það
besta,“ sagði Magnús.
Hann bætti því við að í sínum huga
væri það alveg númer eitt í þessum
viðskiptum að vera talinn áreiðanleg-
ur, númer tvö koma gaíðin og verðið
í þriðja sæti. Hann sagði ennfremur
að nú færi að rætast úr erfiðleikunum
sem sjómannaverkfallið og síðan far-
mannaverkfallið hefðu valdið og því
bjart framundan.
-S.dór
Þorskrannsóknir við Grænland:
Mikið af áiganginum 1984
fúndið á Grænlandsmiðum
-gæti komið á íslandsmið 1990 til hrygningar
„Við töldum að allmikið af þorsk-
árganginum frá 1984 hefði farið héðan
til Grænlands og nú hafa rannsóknir
Þjóðverja á Grænlandsmiðum leitt í
lega í samningum leigusala og leigjenda.
Hækkun vísitölunnar miðast við meðaltals-
hækkun launa næstu þrjá mánuði á undan.
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðttyggð
Sparisjóðsbækur óbund. 8.S-10 Ab.Bb. Lb.Sb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 10-15 Sb
6 mán. uppsögn 11-17,5 Vb
12 mán. uppsögn 12-18,25 Sp.vél.
18 mán. uppsögn 18-19,75 Bb
Ávisanareikningar J-10 Ab
Hlaupareikningar S-7 Sp
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5-2 Ab.Bb, Lb.Úb.Vb
6 mán. uppsögn 2,5-4 Ab.Úb
Innlán með sérkjörum 5-20
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalur 5-6 Ab
Sterlingspund 9,5-10,5 Ab
Vestur-þýsk mörk 3,5-4 Ab.lb
Danskar krónur 8.5-9,5 Ab.Lb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 16,5-20 Lb
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kge/21-22
Almenn skuldabréf(2) 17,5-21 Lb
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 17,5-21 Lb
Utlán verðtryggð Skuldabréf
Að2.5árum 5,75-6,75 Lb
Til lengritíma 6,25-6,75 Bb.Lb
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 15-18,5 Sp
SDR 9-8,25 Ui.Úh
Bandarikjadalir 7,5-7.75 Sb.Sp
Sterlingspund 12,5-13 Lb.Úb.Vb
Vestur-þýsk mörk 6-6,25 Lb.Úb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-6,5
Dráttarvextir 27
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitalafeb. 1594 stig
Byggingavisitala 293 stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði 7,5% l.jan.
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 113 kr.
Eimskip 300 kr.
Flugleiðir 310 kr.
Hampiðjan 140 kr.
Iðnaðarbankinn 135 kr.
Verslunarbankinn 125 kr.
(1) Við kaup ú viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa
þó viðskiptavíxla gegn 21% ársvöxtum.,
(2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs
vanskilalána er 2% bæði á verðtryggð
og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubanka
og Verslunarbanka.
Skammstafanir: Ab — Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbank-
inn, Vb = Verslunarbankinn,
Sp = Sparisjóðirnir.
ljós að þar er mikið af ungfiski að al-
ast upp, þar á meðal verulegt magn
af árganginum 1984. Og ef sú kenning
er rétt, sem þó hefur ekki verið sönn-
uð, að þorskur, sem fer ungur til
Grænlands frá íslandi, komi aftur til
að hrygna þá megum við eiga von á
göngu frá Grænlandi 1990,“ sagði Sigf-
ús Schopka fiskifræðingur í samtali
við DV.
Sigfus sagði að þetta hefði gerst 1963,
1973 og 1981. Þá hefðu miklar göngur
komið frá Grænlandi af þorski sem var
kominn til að hrygna í fyrsta sinn. I
öll skiptin urðu vertíðir einstaklega
góðar, samanber vertíðina 1981, sem
er ein sú besta sem hér hefur komið.
Allra síðustu ár hefur mjög lítið ve-
rið um þorsk á Grænlandsmiðum og í
íyrra var einhver lélegasta vertíð sem
þar hefur komið í hálfa öld. Svo leiða
rannsóknir Þjóðverja það í ljós nú að
mikið af ungfiski er að alast þar upp.
Það gæti því verið bjart framundan í
þorskveiðum okkar ef sú kenning
reynist rétt að fiskurinn komi á upp-
eldisstöðvamar til að hrygna.
-S.dór
Óvenju
mikið er
af smáfiski
á miðunum
skyndilokanir orðnar 24
Það sem af er þessu ári hefur 24 sinn-
um orðið að grípa til skyndilokana
veiðisvæða á nokkrum stöðum við
landið en mest á Austfjarðamiðum.
Þetta eru óvenju margar skyndilokan-
ir á svo stuttum tíma og má til
samanburðar geta þess að á fyrstu 6
mánuðum ársins í fyrra urðu skyndi-
lokanir 24.
„Það er óvenju mikið af smáþorski
á miðunum núna. Árgangarnir frá
1983 og 1984 eru að koma á miðin og
því ekki um annað að ræða en loka
veiðisvæðunum. Við látum loka svæð-
um ef 30% aflans er fiskur undir 55
sentimetrum," sagði Sigfús Schopka
fiskifræðingur í samtali við DV.
Sigfus sagði að þorskárgangurinn
frá 1983 væri talinn sterkur og 1984
árgangurinn í meðallagi þannig að
þeir væru báðir yfir rauða strikinu
hvað þetta varðar. Sigfús sagði enn-
fremur að 1983 árgangurinn yrði
uppistaðan í þorskveiðunum hér við
land á næsta ári.
-S.dór