Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1987, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1987, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1987. íþróttir • Mark Hughes er ekki i miklum metum hjá Hassan. Hótar mönnum Ivfláti Sá knattspymumaður sem vakið hefiir hvað mesta athvgli á Spáni í vetur heitir Faddil Hassan. Hann er Marokkómaður og leikur með baðstrandarliðinu Real Mallorca. Þó er það hvorki leikni né geta sem hefiir fatrt Hassan sess í sviðsljós- inu heldur kjaftháttur og hvers- kyns dólgslæti. Hann hefur fengið að líta gula spjaldið átta sinnum á þessu keppnismisseri og einu sinni hefur kempan verið kæld með rauðu spjaldi. Hassan hefur verið óspar á yfir- lysingar í spænskimi fiölmiðlum og meðal annars hótað að ganga frá nokkrum leikmönnum dauð- um. NTú n\rverið réðst hann til að mynda gegn Wales-búanum Mark Hughes: ..Það er furðuleg mótsögn að Hughes skuli leika í röðum Barcel- ona eða á Spáni yfirhöfuð. Hann hefur hvorki tækni né hraða til að leika hér á landi. hvað þá í iiði sem Barcelona." sagði Hassan. ..Getu heftu- hann. jú. mikil ósköp, en aðeins á því sviðinu að stjaka við andstæðingnum og skapa sér rými með pústrum og hrindingum. Markvörðum stafar því engin hætta af Hughes enda er hann svona álíka leikinn og líkneski eða mvndastytta. Ég fæ ekkert skilið í þeirri ákvörðun framkvæmda- stjóra Barcelona. honum Teny Venables. að semja við slíkan við- vaning" sagði Hassan að lokum og skók höfrtð sitt ákafiega. -JÖG. Roxburgh kom mjög á övart Andy Roxburgh, þjálfari skoska landsliðsins, er búinn að tilkynna landsliðshóp sinn sem mætir ír- landi næstkomandi miðvikudag. Iæikurinn, sem fer fram á Hamp- den Park, er liður í 7. riðli undankeppi Evrópumeistaramóts- ins. Val Roxburgh kemui- að mörgu leyti mjög á óvart. Hann skiptir um fimm leikmenn og þverskallast enn við að nota þá Graeme Sou- ness og Charlie Nicholas. Þeir Kenny Dalglish, Ally McCoist, Ian Durrant, Derek Ferguson og Ro- bert Connor eru allir úti í kuldan- um þrátt fyrir að Skotar hafi unnið Luxemburg, 3 0. I staðinn koma þeir Willie Miller, David Narey, Henry Smith og Gordon Strachan inn í hópinn. Roxburgh hefur ávallt farið eigin leiðir er hann heftir valið skoska Iandsliðið og engin breyting varð á því nú -SMJ „Hef aldrei dansað við þessa konu“ - fínnski skíðastökkvarinn, Matti Nykánen, enn í fréttunum ,.Ég er í toppformi um þessar mund- ir“. segir finnski skíðastökkvarinn Matti Nvkánen. Hann hefur enda æft af kappi upp á síðkastið og stökk hans hafa verið löng og glæsileg. Nykánen hefur þvi fengið upppreisn æru og hefur val hans í landslið Finna komið fáum á óvart. Hann mun þvi skíða fyrir hönd heimalands síns á heimsmeistaramótinu í norrænum greinum í Oberstdorf síðar í þessum mánuði. Þótt fæstir efist um snilli garpsins eru flestir landar hans á einu máli um að hann láti lítt eða illa að stjóm og framkvæmi eftir geðþótta sínum. Nykánen þykir sopinn ákaflega góður en sú nautn hefur ekki alveg átt við á skíðalandsmótum þar sem finnska þjóðin heimtar ávallt sigur. Það er trú alþýðu í Finnlandi að kappinn hafi nú rasað út í bili, enda er hann nýkominn frá Sri Lanka þar sem hann dvaldi á hveitibrauðsdögum sínum. Finnar em því einstaklega bjarsýnir á góðan árangur á HM, -jafnvel þótt sá kvittur sé nú kominn upp að Nykánen sé orðinn faðir. f raun er ekkert nema ágætt um það að segja nema hvað móðir bamsins er víst önn- ur en eiginkona Nykánen. Nykánen hafði svar á reiðum hönd- um er blaðamenn gengu á hann nú nýverið:„Ég hef ekki einu sinni dansað við þennan kvennmann, hvað þá meira.“ Heimamenn vita hins vegar að margt getur gerst í góðu teiti og sér- lega þegar sá þjóðlegi siður er við- hafður að leggjast kviknakinn á trébekk í gufubaði. -JÖG. Dalglish langar í Beardsley íþróttablaðamenn í Englandi velta nú mjög vöngum yfir þeirri féþúfú sem lan Rush hefúrreynst forráðamönnum Liverpool-liðsins. Þarlendir blaða- menn hnvkla jafnan brúnir þegar peningar em annars vegar enda verða knattspyrnufélög að fjárfesta og nýta fengið fé með skjótum hætti. Hver kvitturinn rekur nú annan en sá lífseigasti segir að Kenny Dalglish, framkvæmdastjóri Liverpool, hyggist kaupa sóknarmennina Peter Beards- ley frá Newcastle og skoska ungling- inn Joe Miller frá Aberdeen. Dalglish hefur þegar keypt John Aldridge frá Oxford og bíður hans það hlutskipti að skora mörk fyrir rauða herinn. Þannig á hann að leysa áður- nefnda markavél af hólmi. sóknar- kempuna Ian Rush sem er á förum til Juventus á Ítalíu. Það er þó ljóst að Rush er tveggja manna maki og verður því róðurinn þungur hjá Aldridge. Rush er ákafur markvarðaskelfir og skori hann mark í leik verður Liverpool ekki lagt að velli. Sú hefur að minnsta kosti verið raunin fram að þessu. „Ian Rush er ekki einn að verki,“ sagði einn fylgis- maður Liverpool-liðsins nú nýverið, „forsjónin leikur við hlið hans.“ Það telst því vart annarlegt þótt Dalglish hyggist hafa tvo eða jafnvel þijá afburðaleikmenn til að hlaupa í skarðið fyrir Ian Rush einan. Peter Beardsley á til að mynda fast sæti í enska landsliðinu. Joe Miller er hins vegar að flestra dómi einn efhi- legasti sóknarmaður sem komið hefur fram í Skotlandi síðan Kenny Dalglish hóf feril sinn fyrir nokkrum árum. Dalglish hefúr nú lagt skóna til hlið- ar að mestu leyti og lætur sér nægja að halda um stjómvölinn hjá Liver- pool. Liverpool er án efa eitt frægasta knattspymulið heims þótt leikmenn þess hafi aðeins haldið jöfnu gegn KR-ingum hér um árið. -JÖG Tvöfaldur sigur Carls Carl J. Eiríksson vann janúar- og febrúarmót í skotfimi sem lauk nýver- ið. Keppt var í liggjandi stöðu með riffla og tuttugu skot. í janúarmótinu hlaut Carl 195 stig, Lárus Fjeldsted 187, Þórjón P. Pétursson 177, Þor- steinn Þ. Guðjónsson 175 stig og Emil Kárason 172 stig. Carl hlaut síðan 197 stig í febrúarmótinu, Gissur Skarphéð- insson 196, Þorsteinn Þ. Guðjónsson 185, Láms Fjeldsted 181 og fsleifur Gíslason 179 stig. -SK Rochtekur stöðu Thiel AtH Hilmajsson, DV, Þýskalandt Nú er ljóst að Sigfried Roch, markvörður Grosswaldstadt í handknattleik, mun taka sæti Andreas Thiel í v-þýska landsliðinu í b-keppninni á Ítalíu en Thiel meiddist á dögunum og getur ekki leik- ið. „Maður verður að hjálpa til í neyð,“ sagði Roch sem hafði lýst því yfir að hann væri hættur í landsliöinu. Morten Olsen var stórkostiegur Atli Htaiaisscn, DV, Þýskalandi: Leikmenn vestur-þýska knatt- spymuliðsins FC Köln fengu 1,6 milljónir króna fyrir að vinna sigur á þriggja liða móti í ísrael á dögunum. Köln vann Bomssia Múnchenglad- bach í úrslitum, 5-2. Morten Olsen átti stórkostlegan leik og skoraði eitt marka Kölnar en hin skomðu þeir Klaus Allofs (2), Paul Steiner og Len- hof. Hochstátter skoraði bæði mörk Gladbach en leikmenn liðsins fengu 1,2 milljónir fyrir 2. sætið. Maccabi varð neðst á mótinu. -SK Hörkuárekstur varð á I kappaksturskeppni sem haldin var í Bandaríkj- I unum nýverið. Eins og sjá má á myndinni, sem j tekin var í þann mund sem áreksturinn átti sér j stað eins og sjá má, skemmdust báðir bílarnir j mikið en ekki urðu teljandi meiðsli á ökumönn- j unum. Símamynd Reuter I Það er gamall frasí að knattspyman sé vart dans á rósum. Sjálfsagt er hún þó dans, en á þyrnum rósanna. Eins og fram hefúr komið hér í blaðinu slasaðist írski landsliðs- maðurinn Jim Beglin mjög alvarlega í viðureign Liverpool og Everton nú á dögun- um. Garv Stevens heitir ólánsmaöurinn sem olli þessu íþróttaslysi. Hann hefur vart f'eng- ið frið á síðustu dögum vegna þessarar ógæfu. Almenningi í Bretlandi þykir nú mælirínn fylltur og fon’áðamenn Liverpool- liðsins skera upp herör gegn Stevens í þariendum fjölmiðlum. „Þetta var öðru fremur slys,“ segir lúns vegar breski blaðamaðurinn Peter Stewart. Hann er einn af fáum sem hefúr svarað tíð- imi árásura fjölmiðla á Gary Stevéns. „Báðir leikmenn áttu fúllan rétt á að nálgast bolt- ann. Þetta var því hefðbundin og eðlileg barátta. Beglin varð hins vegar sneggri og fyrri til og því fór sem fór. Mér er kunnugt um að atburður þessi laust Stevens. Hann var niðurbrotinn mað- ur eftir leikinn og grét. Hann bíður því í ofvæni eftir bata Beglin. Gary Stevens er mjög góður leikmaður og þótt hann leiki af krafti er það aldrei ætlun hans að brjóta á andstæðingi. Boltinn er ávallt efstur í huga hans.“ -JÖG. Robson og Allen í landsliðshóp Englands á ný - gegn Spáni 22. febrúar Það fór eins og Ferguson, stjóri Man. Utd, spáði á laugardag Bryan Robson var valinn í enska landsliðshópinn á ný. Lands- líðsþjálfarinn Bobby Rolison valdi lið sitt í vináttuleik gegn Spáni sem fram fer þann 22. febrúar, annan sunnudag. Markakóngur Tottenham, Clive Allen, var á ný valinn í landsliðshópinn en langt er síðan hann hef- ur verið þar. Þá er hinn ungi miðvörður Arsenal, Tony Adams. í fýrsta sinn í hópn- um. Leikmennimir, sem Robson valdi, eru þessir. Markverðir Peter Shilton, Southampton, Chris Woods, Glasgow Rangers, og David Seaman, QPR. Varnarmenn Viv Anderson, Kenny Sansom og Adams, Arsenal, Gary Stevens og Dave Wafson, Everton, Terry Butcher, Rangers, Mark Wright, Sout- hampton og Gary Mabbutt, Tottenham. Framverðir em Glenn Hoddle, Steve Hodge og Chris Waddle, Tottenham, Bryan Robson, Man. Utd, Trevor Steven, Evorton og Neil Webb, Nott. Forest, og framlínu- menn em Gary Lineker, Barcelona, Peter Beardsley, Newcastle, Mark Hateley, AC Milano, John Barnes, Watford, og Clive . Allen. -hsim •Jim Beglin engist af kvölum, fótbrotinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.