Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1987, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1987, Síða 29
FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1987. 29 Smáauglýsingar Fréttir Veldur hárlos áhyggjum? Ný þjónusta á íslandi. Meðhöndlun orkupunkta (akupunkta) með leysigeisla hefur gef- ið góða raun. Meðferð þessi stöðvar hárlos, er hættulaus og hefur engar þekktar aukaverkanir. Uppl. og tíma- pantanir í síma 11275 frá kl. 10-17. Fataskápar, frá kr. 7.648., glerborð, frá kr. 7.240., leðurstólar, frá kr. 4.179., eldhússtólar, frá kr. 1.916., klapp- stólar, frá kr. 920. Nýborg hf., Skútuvogi 4, s. 82470. Útsala - Útsala! Stórkostleg verðlækk- un á hollenska gæðagaminu. Einnig 40-70% afsláttur af handavinnu. Zar- eska-húsið, Hafnarstræti 17, Reykja- vík, sími 11244. ■ Sumarbústaðir Seljum ýmsar gerðlr sumarhúsa á mis- munandi byggingarstigum. Getum útvegað lönd. S.G. Einingahús hf., Selfossi, sími 99-2277. ■ BOar til sölu Dodge Van 71 til sölu, snúningsstólar, innréttaður, 6 cyl., beinskiptur, út- varp. Fæst með 15 þús. út og 10 á mán. á 165 þús. S. 79732. Mazda 626 GLX 2000 árg. ’87 til sölu, ekinn 10.000 km, sjálfskipt, vökva- og veltistýri, sentrallæsingar, útvarp/ segulband, sumar- og vetrardekk. Uppl. í síma 73058. Mazda 626 GLX 2000 árg. '83, 2ja dyra. sjálfskiptur, vökvastýri o. fl. Uppl. í síma 611741 og 617016. Ford Escort 1300 Laser '86 til sölu. ekinn 22 þús. km, útvarp + segulband. auk fleiri aukahluta. Uppl. í síma 611742 og 617016. Fimm ferðaskrifstofur: Hafa samvinnu um innkaup Ferðaskriístofumar Pólaris, Terra, Ferðamiðstöðin, Atlantik og Saga hafa tekið upp samvinnu um innkaup, undir nafninu Reisuklúbburinn, sam- kvæmt upplýsingum sem DV fékk hjá Karli Sigurhjartarsyni, forstjóra ferðaskrifstofunnar Pólaris. Sagði Karl að þessar fimm ferða- skrifstofur ættu það sammerkt að bjóða upp á sumarleyfisferðir til út- landa og meðal annars með leiguflugi. Síðastliðið haust hefðu ferðaskrifstof- umar átt viðræður um samstarf af þessu tagi og hefði þessi samvinna orðið árangurinn. Sagði Karl að með samstarfi af þessu tagi væri hægt að ná meiri hagkvæmni og beta verði en ef hver væri að vinna út af fvrir sig. Sagði Karl að gengið hefði verið frá samningum um leiguflug og náðst hefði hagstætt verð þannig að þegar væri farinn að sjást árangur af sam- starfinu. Einnig sagði hann að sam- starfið myndi leiða af sér rneiri fjölbreytni á ferðamarkaðimmi ásamt því að betri nýting væri á sætum. Enda þótt samvinna þessara aðila væri fyrir hendi að þessu levti sagði Karl að áfram mvndu ferðaskrifstof- urnar keppa á markaðinum og setti hver ferðaskrifstofa saman sínar ferðir og hóteltilboð hér eftir sem hingað til. -ój Hætt við samflot í samningunum í vikubyrjun var haldinn fundur með þeim félögum ríkisstarfsmanna og Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar sem til þessa hafa hafl samflot í kjarasamningum og þar var ákveðið að hætta samfloti og hvert félag fari með viðræðurnar sjálft. Starfsmannafélög sveitarfélaganna hafa þegar samið, sem kunnugt er, en þau höfðu samflot í samningagerðinni og funduðu á Akureyri á dögunum og náðu samkomulaginu á methraða. -S.dór Skjálfti á KEA Jón G. Haúksson, DV, Akureyri; Kosningaskjálfti verður á Hótel KEA í kvöld og á morgun þegar þingmenn, ráðherrar og fólk í efstu sætum á list- um Framsóknarflokksins mæta til að móta stefnuna í komandi kosningum og ræða kosningastarfið. Ráðstefnan hefst í kvöld klukkan 20. í fyrramálið verður farið í fyrirtæki en eftir hádegi verður lagt á ráðin fyrir kosningarnar sem margir spá að verði 25. apríl næst- komandi. Hið íslenska kennarafélag: Ætlar að leita eftir verkfallsheimild Ákveðið hefur verið að allsherjar- atkvæðagreiðsla fari fram innan Hins íslenska kennarafélags 20. fe- brúar um verkfallsheimild fyrir félagið og stíla kennarar, að sögn Kristjáns Thorlaciusar, formanns félagsins, á að til verkfalls komi 16. mars hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma. Verkfall má ekki hefjast fyrr en 15 sólarhringum frá boðun þess. Boðað hefur verið til samn- ingafundar með kennurum og full- trúum fjármálaráðuneytisins á morgun, fimmtudag. Höfuðkrafa kennara er, að sögn Kristjáns, að lágmarkslaun verði 45 þúsund krónur á mánuði og að met- in verði löggildingarbréf kennara samkvæmt nýjum lögum. Þessi sama kaupkrafa var sett fram þegar stjóm BHMR leitaði eftir rammasamningi fyrir félögin en henni var hafnað af fulltrúum ríkisins. Nú greinir menn á um hvað ríkið bauð. Stjómarmenn BHMR segja 35 þúsund krónur en fulltrúi fjármálaráðherra segir 40 þúsund krónur. Upp úr viðræðum heildarsamtakanna og ríkisins slitn- aði i lok janúar og fer nú hvert félag- - innan BHMR með samninga fyrir sig. „Við sjáum til hvað þeir bjóða á fundinum á fimmtudaginn." sagði Kristján Thorlacius. -S.dór Jón Páll vinsæll á Akureyri. Jón Páll vann hug og hjörtu Jón G. Hauksson, DV, Akureyri; Sterkasti maður heims, Jón Páll Sigmarsson, hélt námskeið í bekk- pressu og almennri þrekþjálfun á Akureyri í síðustu viku. Hátt á ann- að hundrað drengir mættu til Jóns Páls og þótti þeim mikið til þess koma að fá að sjá kappann með eig- in augum. Hann vann hug og hjörtu þeirra og ku sjálfur hafa haft jafh gaman af drengjunum og leikið á als oddi þegar hann aðstoðaði þá með lóðin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.