Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Side 2
48
LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987.
Einkaritari á móti klámi
Frá því hefur áður verið sagt á
Breiðsíðu DV að ritstjóri tímaritsins
Penthouse hafi lagt hart að Fawn
Hall að sitja fynr á nektarmynd fyr-
ir blaðið.
Fyrir utan að vera fönguleg
kona þá komst Hall í fréttimar fyrir
að aðstoða Oliver North ofursta við
að eyðileggja skjöl varðandi írans-
hneykslið. Hall var einkaritari
ofurstans.
Nú eru úrslit í þessu máli ljós.
Hall neitaði tímaritinu um mynda-
tökuna og bað ritstjórann hvergi að
þrífast. Breiðsíðunefndin dáist að
staðfestu einkaritarans í þessu máli
án þess að mælast þó til þess að kyn-
systur hennar fylgi fordæminu.
Páskaföndur
Páslca.-
matur
Úrslitakostir
í gosdryklqa-
stríði
Gosdrykkjafyrirtækið Coca-Cola
hefur-rekið konu nokkra úr þjónustu
sinni eftir að uppvíst varð að hún
átti vingott við starfsmann Pepsi-
Cola. Þessi fyrirtæki hafa um árabil
verið harðir keppinautar og hvergi
sést fyrir í samkeppninni.
Vinskapur þeirra Amöndu og Dav-
íðs Conklin hófst meðan bæði unnu
hjá Coca-Cola og héldu honum áfram
eftir að Davíð gekk til liðs við Pepsi.
Þau gengu þá í heilagt hjónaband
og þar með var mælirinn fullur. Yfir-
menn Coca-Cola settu Amöndu þrjá
kosti. Hún mátti velja milli þess að
skilja við mann sinn; telja hann á
að snúa aftur; eða segja upp störíúm.
Amanda neitaði og var rekin.
Amanda höfðaði þá mál á hendur
vinnuveitendum sínum og fékk 24
milljónir króna í skaðabætur fyrir
brottreksturinn.
Mmningasafn
háskaleikara
Háskaleikarinn Evel Knievel hefur
nú í hyggju að láta heimabæ sinn,
Buttel í Montana, njóta nokkurs af
frægð sinni. Hann hefúr fest kaup á
aflögðum skóla þar í bæ og ætlar að
setja þar upp safn með munum frá
frægðarferli sínum.
Knievel hætti háskaleik árið 1975
eftir að hann slasaðist alvarlega.
FVægð hans hefur hins vegar haldist
óskert því dirfsku hans í leik á mótor-
hjólum er enn við brugðið. Svo fór þó
fyrir skömmu að maður nokkur veitt-
ist að hetjunni á veitingastað, sló til
hans og sagði að hann kynni ekki á
hjól. Af þessu urðu töluverðar rysk-
ingar og er ekki búist við að vininum
verði boðið til opnunar Evel Knievel
safiisins.
Versti
ökumaðurinn
Karen nokkur Cullen frá Cam-
bridge á Englandi hefur verið út-
nefrid versti ökumaðurinn þar í
landi. Þónokkur hópur manna kom
til greina og varð að efna til öku-
keppni til að fá skorið úr málinu.
Cullen ók spölkom eftir beinum
og breiðum vegi. Með í bifreiðinni
voru þrír ökukennarar sem allir
skipuðu dómnefnd í keppninni. Þeg-
ar þeir stigu út úr farartækinu að
ökuferðinni lokinni höfðu þeir kom-
ist að sameiginlegri niðurstöðu.
„Hræðilegt,“ var umsögnin sem
Cullen fékk.
Sigurlaunin i keppninni eru ókeyp-
is ökutímar þar til aksturslagið er
orðið svo gott að ekki stafar hætta af.
Oliver Stone
vekur ótta í
Wáll Street
Fjármálaspekingar í Wall Street
em nú nokkuð uggandi vegna mynd-
ar sem Oliver Stone er að gera um
líf manna og leiki þar í götunni.
Stone þykir næsta hispurslaus í
kvikmyndagerðinni og hefur enda
hlotið mikið lof fyrir. Hann sópaði
að sér óskarsverðlaununum nú fyrir
skemmstu og skar þar upp árangur
erfiðis síns við gerð Platoon.
í myndinni um Wall Street ætlar
Stone að fá til liðs við sig menn sem
vanir eru kauphallarbraski. Ekki er
þó hugmyndin að fá þá til að leggja
fé í myndina, því þau mál eru öll á
hreinu, heldur eiga kappamir að
leika sjálfa sig.
Þetta uppátæki er þó ekki svo ótta-
legt eitt sér heldur óttast íjármála-
menn að Stone fari sem fyrr
ómjúkum höndum um viðfangefni
sitt og myndin verði síst til að fegra
atvinnulíf í Wall Street.