Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Blaðsíða 3
49
LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987.
Kosningamál
Nú eru kosningar á næsta leiti
eins og að minnsta kosti sá helm-
ingur þjóðarinnar veit sem er í
framboði og vegna þess að nú eru
breyttir tímar hafa menn tekið upp
nýjar aðferðir til að ná til kjósenda
þótt flestir virðist ætla að syngja
sig inn á þing á stórdansleikjum
við munnhörpuundirspil og minnir
þessi baráttuaðferð á ljóðið um
Kristófer kadett í hernum:
Og svo verður sungið og spilað
á sítar og mandólín tvö.
Ó, komdu og höndlaðu
Herrann,
það hefst klukkan rúmlega sjö.
Á þessa stórdansleiki er boðin frí
ferð aðra leiðina og á einum þeirra
á hljómsveit að spila sem var upp
á sitt besta fyrir sjötíu og fimm
árum og er eins gott að menn rug-
list nú ekki á gamalmennum og
sendi vitlausa hljómlistarmenn á
þing því að þótt menn hafi ein-
hvem tímann komist á toppinn á
vinsældalistanum í Bretlandi er
ekki víst að það komi almennt að
miklu gagni niðri við Austurvöll
og kannski einna síst þegar farið
væri að ræða hvort afnema skyldi
tolla af niðursoðnum kartöflum til
verndar þeim bændum sem gætu
hugsanlega látið sér detta í hug að
koma með dósakartöflur á markað-
inn en eins og nú standa sakir
finnst mönnum yfirleitt ekki varið
í neitt nema það hafi einhvern tím-
ann verið vistað í dollu.
Það er meira að segja ekkert
langt síðan hér var framin hetjudáð
í dollu og fór hún þannig fram að
útlendingur nokkur, sem keyptur
var til landsins af mönnum sem
settu hér upp heimilissýningu,
klifraði upp á pall sem var mjög
hátt uppi og þegar kallinn var bú-
inn að koma sér vel fyrir á pallinum
kveikti hann í sér.
En hetjudáðin var ekki fólgin í
því að kveikja í sér, það getur hver
sem er gert ef hann er með eldspýt-
ur á sér eða kveikjara, hún var
fólgin í því að hoppa af pallinum
niður í dollu fulla af vatni, sem var
fyrir neðan hann, og slökkva þann-
ig í sér.
- Og hvað ef þú hittir nú ekki á
dolluna? var spurt forðum daga.
- Þá þætti mér vænt um ef ein-
hver hefði tíma til að hringja í
slökkviliðið, sagði sá gamli og
glotti við tönn.
Meðgamla laginu
Ekki ætla ég að fara að amast
við því þótt menn noti nýjar að-
ferðir við öflun atkvæða en samt
sem áður sakna ég þess að það skuli
sáralítið vera minnst á gömlu góðu
baráttumálin eins og herinn og
verðbólguna og ef ég hefði farið í
framboð eins og konan mín var
Háaloft
Benédikt Axelsson
alltaf að leggja til af því að ég hefði
svo lítið vit á öllum sköpuðum
hlutum hefði ég sett það á oddinn
að herinn æti í fyrsta lagi allt
lambakjöt sem til væri í landinu
og í öðru lagi eins og helminginn
af kartöfluuppskerunni fyrir norð-
an.
Að öðrum kosti yrði herinn send-
ur rakleiðis til Njú Jork og látinn
halda þar uppi lögum og óreglu en
í þeirri borg mun einn maður vera
drepinn á fimm mínútna fresti og
er það víst ekki aldeilis alltaf sá
sami enda væri hann vafalítið orð-
inn í það minnsta dálítið fölur
þegar líða tæki á daginn svo ekki
sé meira sagt.
En þótt lítið sé minnst á blessað-
an herinn að þessu sinni gegnir
dálítið öðru máli um verðbólguna
því að ég las það í blaði um daginn
að einhverjum góðum mönnum
hefði tekist að koma henni úr
hundrað og þrjátíu prósentum og
niður í þrettán prósent í Hafnar-
firði og vildi ég óska að til væri sá
maður sem gæti komið henni niður
í þessa tölu hérna í Breiðholtinu
því að hér rignir gluggaumslögum
ekki síður en annars staðar.
Eins og ég gat um í upphafi þátt-
arins ætlar helmingur þjóðarinnar
að reyna að komast á þing að þessu
sinni og hvar i fiokki sem menn
standa ætla þeir að stuðla að betra
mannlífi og minni mjólkurneyslu
auk annarra mála sem telja má til
hagsbóta fyrir þjóðfélagið í heild
og í tilefni af því hvað þetta fólk er
í rauninni fallegt og gáfað og með
margar ágætar skoðanir, til dæmis
á niðurfellingu tekjuskatts og stað-
greiðslu hans, legg ég hér með til
að þingmönnum verði ekki fjölgað
um þrjá í næstu kosningum heldur
þrjátíu þúsund.
Þá þyrftum við nefnilega ekki að
hafa áhyggjur af neinu framar.
Kveðja
Ben. Ax.
MBR F/ViÞú
VÍKSÆ.LASTUR.
&V£RG.i#_{
M® mm
______________________________________37
Finnurðu
átta breytingar?
Þessar tvær myndir sýnast í fljótu bragði eins. En á neðri
myndinni hafa fallið burt hlutar af myndinni eða þeir breyst,
alls á átta stöðum. Það er misjaihlega erfitt að finna þessar
breytingar en ef fjölskyldan sameinast um að leysa þetta tnium'
við því að allt komi þetta að lokum.
Merkið með hring eða krossi þar sem breytingamar eru og
sendið okkur neðri myndina. Skilafrestur er tíu dagar. Að
þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum og veitum
þrenn verðlaun: Ferðaútvarpstæki með segulbandi frá Radíó-
bæ, Armúla 38 (verðmæti kr. 2.860,-), ferðaútvarp frá Radíóbæ
(verðmæti kr. 1.595,-) og heymartól frá Radíóbæ (verðmæti
kr. 1.295,-).
í þriðja helgarblaði héðan í frá birtast nöfn hinna heppnu
en ný þraut kemur í næsta helgarblaði.
Góða skemmtun!
Merkið umslagið:
„Átta breytingar - 37, c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík.
Verðlaunahafar reyndust vera Svanbjörg H. Jóhannsdóttir,
Einholti 8 A, 600 Akureyri (ferðaútvarpstæki, kr. 2.860,-); Sig-
ríður Finnbogadóttir, Borgarvík 1, 310 Borgamesi (ferðaút-
varp, kr. 1.595,-); Gunnar Öm Haraldsson, Hléskógum 21, 109
Reykjavík (heymartól, kr. 1.295,-).
Vinningamir verða sendir heim.