Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Side 6
LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987.
Frá uppboði hjá Sotheby í Lundúnum í haust. Þar seldist verk ettir Rembrandt fyrir metfé.
Kaupæði lista-
verkasafnara
Sólblóm van Goghs. Þetta verk seld-
ist á nærri hálfan annan milljarð
króna.
„Ég þori að veðja að það er hœgt
að fá 500 franka fyrir myndina af
sólblómunum,“ skrifaði Vincent van
Gogh bróður sínum Theo árið 1889.
Tæpri öld síðar var þetta sama verk
selt fyrir nærri hálfan annan milljarð
króna. Þetta gerðist á uppboði hjá
Christies í Lundúnum núna þann 30.
mars og verðið er það hæsta sem um
getur fyrir eitt málverk.
Það er að vísu ekki sanngjarn sam-
anburður að miða við þessa 500
franka, eða rúmar 3000 krónur, sem
van Gogh lét sig dreyma um að fá
fyrir verkið en þetta metverð er engu
að síður vitnisburður um þá gífur-
legu ásókn sem nú er í listaverk frá
síðari hluta 19. aldar. Van Gogh kom
sjálfur aðeins einu málverki í verð
og fékk lítið fyrir. Sólblómin seldi
hann ekki þrátt fyrir sanngjarnt
verð.
Helmingi hærra
en reiknað
var með
Fyrir uppboðið hjá Christies var
gert ráð fyrir að þetta fræga verk van
Gogh fengist aldrei fyrir minna en
700- 800 milljónir en þegar til kom
reyndist verðið vera helmingi hærra.
Þegar þessar tölur sjást er von að
menn spyrji sig hvort nokkurt lista-
verk geti verið svo mikils virði.
Sólblóm van Goghs eru að vísu með
frægustu málverkum allra tíma og
sjálfur er málarinn orðinn að eins
konar goðsagnaveru í listinni. Verð
svona listaverks verður því ekki
metið á mælikvarða venjulegrar íjár-
festingar því það er fegurð sem er til
sölu.
Engu að síður er erfitt að benda á
fagurfræðileg rök fyrir því að greiða
hálfan annan milljarð fyrir málverk.
I jólamánuðinum var málverk eftir
Edouard Manet selt á um 430 millj-
ónir og þótti firnamikið. Um sama
leyti var fyrsta verkið eftir
Rembrandt, sem selt hefur verið í 20
ár, selt á um 400 milljónir. Þá eru á
þessu ári nokkur dæmi um að mál-
verk hafi selst á yfir 100 milljónir.
„Kaupendurnir eru ekki að sækjast
eftir listinni. Þeir eru að fjárfesta,"
er haft eftir Sir William Rees-Moog,
fyrrum ritstjóra The Times og for-
manni British Arts Council. „Sá
lærdómur, sem hægt er að draga af
þessari verðsprengingu, er að til er
fólk sem á meira en nóg af peningum
og hefur ekkert betra við þá að gera.“
Richard Feigen, listaverkasali frá
New York, tekur í sama streng og
segir að „listin sé orðin að fjárfest-
ingu“. Undirrótin er sú að auðmenn
um víða veröld hafa komist að því
að fjárfesting í listaverkum sé ráð til
að verjast verðbólgu og verðfalli
peninga.
Takmarkað
framboð
Einn af kostunum við fjárfestingu
í listaverkum er að framboðið er tak-
markað. Það er engin hætta á
verðfalli vegna offramboðs. Gömlu
meistaramir senda ekki frá sér fleiri
verk og á síðustu árum hefur verð á
listaverkum hækkað jafnt og þétt.
Að vísu er engin trygging fyrir arði
af þessari fjárfestingu og mögulegt
er að tapa ef menn láta blekkjast til
að kaupa léleg verk dýru verði. En
á móti kemur að mikill álitsauki felst
í því að leggja fé í dýr listaverk.
Nú síðustu árin ber mikið á að
hópur listaverkasafhara er að
stækka. í þennan hóp fagurkera hafa
bæst nýríkir Bandaríkjamenn með
fullar hendur fjár. Þar ber einnig
stöðugt meira á Japönum sem nú
kaupa tíunda hvert verk af hinum
betri listaverkum.
Þá er greinilegt að verðminni list-
munir og minjagripir eru einnig að
hækka í verði. Þessir munir em
keyptir af fólki sem ekki stenst
auðkýfingunum snúning en vill samt
vera með í listaverkaæðinu. Hins
vegar grunar ýmsa reynda lista-
verkasafnara, þegar gamlir bangsa'
seljast fyrir metfé, að sumir haf
meira fé en vit til að nota það.
Grunur um
verðfall
Þá hefur einnig vaknað sá grunui
að listaverkaæðið renni senn á enda
og fyrir dyrum standi verulegt verð-
fall á listmunum. Christopher J.
Burge, sem ræður fyrir útibúi
Christies í Bandaríkjunum, hefúr
Þú boigar alltaf sama gjaldið,
hvort sem þú ert einn eða með fleirum í
Hreyfill bvður sætaferðir til Keflavíkur
Ef þú ert á leið til útlanda er þægilegt að fara fyrsta spölinn í Heyfilsbíl.
Hringdu í okkur með góðum fyrirvara og greindu frá áætluðum flugtíma. Viö vekjum þig
með hressilegri simhringingu, óskir þú þess.
\ HREVFILL7
68 55 22